Heimsmynd - 01.06.1991, Page 101

Heimsmynd - 01.06.1991, Page 101
The WorldPaper SOVÉT SAMVELDI EÐA STÖK RÍKI Ofsafenginn uppreisnar- maður í Georgíu Er föðurlandsvinur eða Mússólíni í forystu hins sjálfstæðiselskandi lýðveldis? EFTIR LEONID MLETSJÍN í Moskvu, SSSR „ÉG MUN EKKI stíga fæti inn fyrir múra Kremlar, þar til Georgía er frjáls,“ lýsti Zviad Gamsakhurdia, æðsti maður Georgíulýðveldisins, yfir. Með þessari og álíka full- yrðingum hefur þessum 52 ára gamla Georgíu- manni tekist að skipa sér í hlutverk heilags Georgs nútímans, sem ótrauður leggur til atlögu við sov- éska drekann. Georgía er bara eitt af mörgum Sovétlýðveldum, sem lúta forystu and- kommúnískra og þjóðern- issinnaðra andstöðuafla. Þing Georgíu hefur lýst inngöngu landsins í Sovét- ríkin árið 1921 ólöglega, neitað að fara að sovésk- um lögum og lýst yfir upphafi breytingaskeiðs, sem enda skal með yfir- lýsingu um sjálfstætt ríki Georgíu. Georgía endurtekur þannig það fordæmi sem sett var af Litháen í fyrra, þegar þar var ákveðið að segja skilið við Sovétrík- in. En sá reginmunur, sem er á Georgíu og baltneska lýðveldinu, er fólginn í ofsafengnu eðli þess fyrrnefnda. Á síð- asta ári hófst sjálfstæðisbaráttan í Georgíu með illskeyttum, pólitískum hryðjuverkum. Byssumenn hafa skotið jafnt á pólitíska keppinauta sem fólk af öðrum þjóðernum. Til algerrar styrj- Leóníd Mletsjín er aðstoðar aðalritstjóri vikublaðs- ins Novoe Vremja í Moskvu. aldar virðist draga milli Georgíumanna og Osseta, þjóðernisminnihluta innan lýðveldisins, sem áfram kýs að tilheyra Sovétsamveldinu. Annar reginmunur á Litháen og Georgíu liggur í skapgerð leiðtoga þeirra. Vitautas Landsbergis er próf- essor og stjórnmálamaður, sem lætur stjórnast af skynseminni. Gamsak- hurdia er maður ósáttfús og eldfimur í lund, og stjórnmálaskýrendur lýsa hon- um ýmist sem lýðræðissinna, þjóðernis- sinna eða jafnvel sem öðrum Mússó- líni, allt eftir þvf hvar þeir eru sjálfir staddir í hinu pólitíska litrófi. Gamsak- hurdia er sonur vel þekkts georgísks rithöfundar og einhver torræðasti pers- ónuleiki í pólitísku lffi Sovétríkjanna. Fyrir perestrojku sameinaðist öll andstaðan gegn sameiginlegum óvini - alræði kommúnistanna. Nafn Gamsak- hurdias var nefnt í sömu andrá og nób- elsverðlaunahafanna Alexanders Sol- sjínitsíns og Andrejs Sakharoffs. En síðan hann komst til valda í Georgíu hafa yfirlýsingar Gamsak- hurdias hvað eftir annað komið göml- um samherjum hans, frjálslyndum menntamönnum Sovétríkjanna, á óvart. Yfirlýsing hans „Georgía fyrir Georgíumenn" var algert og alvarlegt áfall. Stuðningsmenn hans reyndu að bera í bætifláka fyrir hann og héldu því fram að hann hefði verið misskilinn. En Gamsakhurdia sagði ná- kvæmlega það sem hann meinti, þegar hann stað- hæfði, að „blönduð. hjónabönd væru ógnun við tilvist georgísku þjóð- arinnar." Hann bannaði þátttöku í þjóðaratkvæðinu 17. mars og hélt svo sína eigin allsherjaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Georgíu, g sem hlaut eindreginn o stuðning þjóðarinnar. 5; Og meirihluti Georgíu- u manna sér Gamsakhurdia z sem sterkan þjóðernis- s leiðtoga og styður hann af 5 alefli. Fyrirætlanir hans “ um sjálfstæða Georgíu “ kitla sjálfsvirðingu þeirra. u Margir í Georgíu óttast þó að þjóðemisofstæki hans kunni að kalla fram hernaðaríhlutun frá Moskvu. En Moskva hefur engan stuðning í Georgíu; það fyrirfinnst ekki einu sinni nokkur fimmta herdeild í Kommúnistaflokki landsins. Þar að auki eru Georgíumenn engir Litháar. Þeir eru reiðubúnir til að taka sér byssu f hönd til varnar heimilum sín- um. Gamsakhurdia hefur varað við því að reyni Moskva að blanda sér í málin muni Georgía verða „annað Afghanist- an.“* i The Worldfíaper appears as a special intemational section in the followingpublications: In English: Mainichi Daily News Tokyo The Business Star Manila Executive HongKong Korea BusinessWorld Seoul Business Review Bangkok The Nation Lahore Daily Observer Colombo Business India Bombay Daily Joumal Carncas The News Mexico City The Star Amman In Spanish: Actualidad Económica Sanjosé Gerencia Gmtemala City La República Bogotá E1 Diario de Caracas Caracas Cronista Comercial Buenos Aires Diario Noticias Asunción La Epoca Santiago Debate Lima Hoy Quito In Russian: Novoe Vremia Moscow In Chinese: China & the World Beijing Economic Information Beijing In Pölish: Zarzadzanie Warsaw In Icelandic: Heimsmynd Reykjavik y WORtuTiMtS *: • TRIBtNtMONDIAtt; • TltMPOMtNDIAt -T \ ís m*/ President & Editor in Chief Crocker Snow, Jr. The WorldPaper / Vferld Tunes Inc. 210 Wbrld Trade Center, Boston MA 02210, USA Tel: 617-439-5400 Telex: 6817273 Fax: 617-439-5415 thlume XIII, Number 5 c Copyright Wbrld Times HEIMSMYND 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.