Heimsmynd - 01.06.1991, Qupperneq 102
The WorldPaper
SOVÉT SAMVELDI EÐA STÖiTrÍKÍ
Tyrkland styður einingu, umbætur
Ankara vill styrkan nágranna í norðri
EFTIR HALDUN ARMAGAN
í Ankara, Tyrklandi
SNEMMA Á ÁTTUNDA áratugnum
var Tyrkjaeining áberandi pólitísk
hreyfing í Tyrklandi. Stuðningsmenn
hreyfingarinnar litu öfundaraugum til
sovétlýðveldanna, sem eru heimkynni
fjölmennra tyrkneskumælandi þjóð-
erna eins og Usbeka, Tatara, Kasakka
og Aserbædsjana. Um þessar mundir
eru eru þeir hins vegar áberandi þöglir,
einmitt þegar ólgan í Sovétríkjunum
virðist bjóða talsmönnum samtyrknesks
málstaðar það tækifæri, sem þeir hafa
lengi beðið.
Sumir segja að Tyrkir hafi lært sína
lexíu eftir að hafa opnað dyr sínar fyrir
fólki af tyrknesku bergi, sem flúði
Búlgaríu eftir borgaraleg átök í því
landi. Fyrir þremur árum náðu kúgun-
araðgerðir fyrrverandi stjórnvalda
kommúnista í Búlgaríu hámarki, þegar
þau reyndu að knýja tyrkneska þjóð-
ernisminnihlutann þar til að taka upp
búrgörsk nöfn. Margir flóttamannanna
áttu erfiðleikum að mæta í Tyrklandi;
atvinna var torfundin, erfitt um útveg-
un húsnæðis og þeir urðu fyrir von-
brigðum, þegar þeir fundu að enn var
farið með þá sem útlendinga í nýjum
heimkynnum. Síðan búlgarski forset-
inn, stalínistinn Todor Sjívkoff, sagði
af sér árið 1989 hefur meira en helm-
ingur tyrknesku Búlgaranna ákveðið
að snúa aftur.
Sumir samfélagsskýrendur segja að
þessi reynsla hafi breytt viðhorfum
Tyrkja og orðið til að gera út af við
óraunsæja draumóra. Tyrknesk stjórn-
völd láta sér þó eftir sem áður annt um
málefni málbræðra sinna í Sovétlýð-
veldunum. Ósal forseti ferðaðist um
Sovétlýðveldin og hitti Gorbatsjoff for-
seta strax að loknum Flóabardaga.
En för Ósals var ekki farin til að
ávíta sovétleiðtogann. Þeir, sem móta
stefnu Tyrkja, telja að vestrið eigi enn
að halda áfram að styðja við bakið á
Gorbatsjoff. Um þessar mundir þýðir
það stefnu, sem ýtir undir stöðugleika
á svæðinu - og verkar letjandi á allar
tilhneigingar til að rjúfa einingu Sovét-
veldisins.
Ósal lagði einnig fram tillögur um að
stofna til efnahagsbandalags Svarta-
hafsríkja, sem ná skyldi yfir Tyrkland,
Sovétríkin og lönd á Balkanskaga.
Hugmyndunum var vel tekið í Moskvu
og samningar þar að lútandi eru í und-
irbúningi. Tyrkneskir fjármagnseigend-
ur eru hvattir til að fjárfesta í fyrirtækj-
um í Sovétlýðveldunum, ekki aðeins til
að hjálpa upp á sakimar í samfélögum
málbræðra Tyrkja, heldur og til þess að
verða áhrifaaðilar í efpahagslegri end-
umýjun Sovétríkjanna.
Samt sem áður eru ýmsir stjórnmála-
skýrendur hér svartsýnir á að öflugt
Sovétsamveldi eigi eftir að lifa af í lítt
breyttu formi. Einn þeirra er Coskun
Kirka, fyrrverandi ambassador og nú
stjórnmálaskýrandi: „Kommúnista-
flokkurinn og skriffinnar ríkisapparats-
ins eiga nú í úrslitaátökum til að forð-
ast missi sérréttinda sinna og forrétt-
inda. Þrátt fyrir úrslit þjóðaratkvæðis-
ins sýnast líkurnar á því, að
Sovétveldið eigi eftir að hrynja, til
muna meiri en líkumar á því að efna-
hagur þess eigi eftir að batna.“
En sem stendur er stefna Tyrkja
hliðholl Gorbatsjoff og lætur sig mestu
skipta stöðugleika og velmegun á
svæðinu og ekki síst eftir nýlegt návígi
við hugsanlegar hörmungar í Persaflóa-
stríðinu.*
INVESTIN HUNGARY
WEDO
AND SO SHOULD YOU
LET’S DOIT TOGETHER!
HUNGARIAN-AMERICAN ENTERPRISE
FUND
3314 P Street, NW
Washington, DC 20007
Phone: (202) 342-2590
Fax: (202) 342-1707
535 Madison Avenue
NewYork,NY 10022
Phone: (212) 339-8340
Fax: (212) 339-8359
Kecskemeti u. 10-12
1053 Budapest
Phone: (36-1) 117-7598
Fax: (36-1) 118-3821
102 HEIMSMYND
Haldun Armagan skrifar að staðaldri í Turkish
Daily News í Ankara.