Sveitarstjórnarmál - Jun 2019, Page 6
6
SVEITARSTJÓRNARMÁL
OneSystems®
sími: +354 660 8551 | fax: +354 588 1057
www.onesystems.is | one@onesystems.is
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum sveitarfélaga og þjónustu við íbúa
VELJU
M
ÍSLENST - VELJU
M
ÍS
LE
N
SK
T
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Þróunarstefna OneSystems styður MoReq2,
kröfur evrópulanda um gagnsæi, rekjaleika og öryggi.
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneSystems hefur hannað og rekur yr 40 gagnvirkar
þjónustugáttir af ýmsum toga, víðsvegar um landið hjá
sveitarfélögum og fyrirtækjum.
Þar á meðal eru: Íbúagáttir, starfsmannagáttir, nefndarmanna- og
gagnagáttir.
Auktu aðgengi gagna og gagnsæi ákvarðanatöku með öruggu og
rekjanlegum hætti. Stórauktu þjónustu án þess að auka
yrbyggingu og sparaðu með skilvirkari stjórnun mála.
Gagnvirkar þjónustugáttir
Upplýsingagátt
Portal Information
Vefgátt fyrir íbúa
Citizen
Nefndarmannagátt
Committee
Starfsmannagátt
Employee
Self-Service
Portal Project
Verkefnavefur
Stefnumótandi áætlun ríkisins í
málefnum sveitarfélaga
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
ákvað á fundi sínum þann 29. maí sl.
að boða til aukalandsþings föstudaginn
6. september nk. til að ræða tillögu
að stefnumótandi áætlun ríkisins
í málefnum sveitarfélaga. Markar
niðurstaða þingsins lokahnykkinn áður
en áætlunin verður lögð fyrir Alþingi sem
þingsályktunartillaga.
Um mitt ár 2018 tóku gildi ný ákvæði í
sveitarstjórnarlögum sem kveða á um
stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni
sveitarfélaga. Á þeim tíma sem liðinn er
hefur ráðherraskipaður starfshópur skilað
af sér umræðuskjali, svonefndri Grænbók
um stefnu í málefnum sveitarfélaga og
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, hefur tilkynnt
að hann muni leggja fram tillögu til
þingsályktunar um áætlunina þegar á
næsta haustþingi.
Starfshópurinn heldur lögum samkvæmt
utan um stefnumótunarvinnuna. Í honum
sitja fyrir hönd ráðherra Valgarður
Hilmarsson, fv. sveitarstjóri á Blönduósi
en hann er formaður hópsins, og
Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi
á Akureyri. Fulltrúar sambandsins
í hópnum eru Aldís Hafsteinsdóttir
formaður og Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri. Valgarður segir í samtali við
Sveitarstjórnarmál að þó hlutirnir hafi
gerst hratt þá hafi það verið vel gerlegt að
vinna á þessum hraða. „Við getum gert
þetta á þessum hraða, vegna þess að
við höfum úr heilmiklum efnivið að moða,
sem búið er að vinna og fjalla ítarlega
Valgarður Hilmarsson, formaður starfshóps
um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum
sveitarfélaga.