Sveitarstjórnarmál - jun. 2019, Qupperneq 26
26
„Ég fór og skoðaði sveitarfélagið, las
fundargerðir og heimasíðuna og allt efni
sem ég komst yfir og það má segja að
ég hafi heillast. Allt þetta heita vatn sem
hægt var að nýta, stöðugur og styrkur
fjárhagur, lágt skuldahlutfall og varfærni
í rekstri. Þarna voru tækifæri og góður
jarðvegur til að gera góða hluti.“ Svo lýsir
Guðný Hrund Karlsdóttir fyrstu kynnum
sínum af Húnaþingi vestra, sveitarfélagi
sem hún hefur stýrt með glans undanfarin
fimm ár. Guðný var um þetta leyti búsett
í Kanada og alls ekki á leiðinni heim.
Örlögin höguðu því nú samt svo, að
stuttu síðar var hún komin með lögheimili
á Hvammstanga.
„Ég bjó í Kanada á þessum tíma og líkaði
vel. Það er samt alltaf eitthvað við Ísland
og Íslendinga sem er svo heillandi; þessi
drifkraftur, stuttu boðskipti og stundum
óhefluðu samskipti,“ rifjar Guðný upp,
spurð út í aðdragandann að þessu öllu.
„Þegar svo einkadóttirin ákvað að flytja
heim og fara í Háskóla Íslands, kom það
róti á hugann.“ Vinkona Guðnýjar benti
henni á auglýsingu um stöðu sveitarstjóra
í Húnaþingi vestra og hratt þar með
atburðarásinni endanlega af stað. „Ég
ákvað að sækja um og var svo lánsöm að
fá starfið. Einhvern veginn smellpassaði
þetta allt saman,“ segir hún og brosir.
Kraftmikið samstarf og
skemmtilegt fólk
Nú ber hins vegar svo við, að Guðný
hefur ákveðið að láta staðar numið og
sagði hún nýverið starfi sínu lausu. Það
er því vel við hæfi að nota tækifærið og
fá sveitarstjórann til að staldra aðeins
við og líta yfir farin veg. „Samstarf við
kraftmikið og skemmtilegt fólk er það sem
stendur mest upp úr,“ svarar Guðný að
bragði, umhugsunarlaust. „Samfélagið er
einstakt og aðgreiningarlaust, held ég að
óhætt sé að segja, bæði hvað varðar stétt
og stöðu, samskipti og samvinnu innan
sveitarfélagsins.“
Sem dæmi um þetta, bendir hún á
móttöku flóttamanna í maí sl. þegar
fimm fjölskyldur frá Sýrlandi settust
að á Hvammstanga. „Samfélagið
hefur tekið þeim opnum örmum og öll
undirbúningsvinna og þátttaka íbúa
Heilbrigður rígur er
bara af því góða
Viðtal við Guðnýju Hrund Karlsdóttir, fráfarandi sveitarstjóra
Húnaþings vestra