Sveitarstjórnarmál - jún. 2019, Blaðsíða 30
30
SVEITARSTJÓRNARMÁL
víða. Við erum hluti af Markaðsstofu
Norðurlands og gengur það samstarf
vel og hefur skipt okkur hér miklu máli.
Ég bind miklar vonir við beint flug til og
frá Akureyri, sem gefur ferðamönnum
meira frelsi til að ferðast innanlands.
Það er hægt að byrja í Keflavík og enda
á Akureyri eða öfugt og þannig keyra
flestir í gegnum Húnaþing vestra sem er
lykilstaður til að stoppa á.“
Norðurstrandaleið á einnig eftir að
verða stór áfangastaður, en fyrst verði
samgönguyfirvöld að lagfæra vegi á
leiðinni, eins og Vatnsnesvegur (nr.
711) er glöggt dæmi um. „Mjór vegur,
ofaníburður farinn, vegkantar svikulir,
einbreiðar brýr og mikil umferð. Það er
enginn að tala um malbikaða 7 metra
vegbreidd heldur að valkostirnir hljóti að
vera aðrir og fleiri en bara reiðgata eða
hraðbraut,“ segir Guðný og bætir við að
samgöngumál séu ekki einkamál íbúa á
svæðunum þar sem hagsmunir íbúa og
ferðamanna fari almennt saman.
Vandann megi að mörgu leyti rekja til
þeirrar stöðnunar sem einkennt hefur
samgöngumál. Áherslur í vegagerð hafi
verið svipaðar á síðustu 30 til 40 árum.
Á sama tíma hafa áherslur í samfélaginu
gjörbreyst. „Ég held að við viljum öll
geta keyrt um landið okkar og að búið
sé á öllu landinu, en það kostar góðar
samgöngur. Það þarf samstöðu allra, ekki
bara stjórnmálamanna í sveitarstjórn eða
í landspólitíkinni heldur líka landeigenda,
löggæslu og ferðaþjónustunnar.“
Fámenn þjóð í stóru landi
Þegar talið beinist að stöðu sveitarfélaga
og stærð segist Guðný ekki viss
hvort umræðan sé á réttu róli. Henni
finnst nærtækast að byrja að sameina
sveitarfélög þar sem landfræðileg
staðsetning er hagfelld og fjöldi verkefna
er þegar rekinn á sameiginlegum
grunni. „Sameining sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu blasir þannig við
sem augljós kostur með mikla möguleika
á hagræðingu. Mikilvægast að mínu
mati er, að horft sé sérstaklega til þess
hvort þjónustan komi til með að batna
og hvort fjárhagslegur ávinningur sé af
sameiningu. Ég er ekki alltaf viss um
að það fáist endilega með því að festa
íbúatölu, þar sem taka verður einnig tillit
til landfræðilegrar legu. Við erum fámenn
þjóð og stjórnsýsla verður ekkert endilega
faglegri eða öflugri þó að sveitarfélagið
sé fjölmennara. Það breytir ekki öllu hvort
íbúar séu 500 eða 20000, heldur eru það
verkefnin sem skipta máli og þau fara
ekki endilega eftir íbúafjölda. Þetta ættum
við Íslendingar að vita manna best enda
er allur samanburður við útlönd hvað
varðar mannfjölda hlægilegur hvort sem
við berum Reykjavík saman við aðrar
höfuðborgir, eða minni bæi á Íslandi við
bæi með sambærilega þjónustu erlendis.“
Þeir málaflokkar sem sveitarfélög sinna
eru enn fremur margir og ólíkir og veldur
sveitarfélag sjaldnast eitt og sér umsjón
með þungum verkefnum á borð við veitur,
brunavarnir og félags- og skólaþjónustu.
„Flest sveitarfélög leysa úr þungu
málaflokkunum í samvinnu við nágranna
sína. Þegar um mjög dreifbýlt samfélag er
að ræða, þar sem fjarlægðir spara hvorki
tíma né peninga, þá getur besti kosturinn
samt verið, að hafa málaflokkana í
héraði og ná með því móti þeirri yfirsýn
sem nauðsynleg er, svo að þjónusta við
íbúana verði leyst sem best af hendi.“
Lagafrumvörp á skjön við gildandi
lög og reglur
Húnaþing vestra er á jaðrinum til vesturs
og leitar eðlilega, að sögn Guðnýjar, í þá
átt sem hentar best. Heilbrigðisþjónusta
er þannig í samstarfi við Vesturland en
ekki Norðurland og gengur vel. Þá eru
málefni fatlaðra sameiginleg með öðrum
sveitarfélögum á Norðurlandi vestra, þó
að ekki sé vitað hvernig það verður síðar.
Þetta sé enda fjársveltur málaflokkur þar
sem kröfur til sveitarfélaga aukast jafnt
og þétt án þess að fjármagn fylgi með frá
ríkinu.
Sveitarfélög eru, að mati Guðnýjar,
almennt fær um að sinna verkefnum
sínum með hliðsjón af þeim tekjustofnum
Vatnsnesvegur er glöggt dæmi um veg sem er
ákaflega illa farinn og getur verið hættulegur
þeim sem um hann aka. (Ljósm.: Húnaþing
vestra).
Guðný sér fjölmörg tækifæri til frekari vaxtar og þróunar í Húnaþingi vestra og hefur mikla trú á
framtíðarmöguleikum sveitarfélagsins. (Ljósm. GHK).