Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 41
Óvænt heimsókn
Doctor Who var vinsæll þáttur á
árum áður. Jónína Ólafsdóttir leik-
kona fór með eitt hlutverkið og
fékk óvænta heimsókn á dögunum.
SÍÐA 4
Ella’s Kitchen hefur nú bætt bragð-góðu barnanasli í lífrænu flóruna sína. „Við foreldrar vitum nefnilega að
bragðgott og skemmtilegt nasl getur gert
kraftaverk þegar halda þarf litlu krílunum
uppteknum,“ segir Guðrún Húnfjörð, vöru-
merkjastjóri hjá Nathan & Olsen. „Naslið
er sniðugt fyrir lítil kríli sem eru að læra að
halda sjálf á mat og narta því það er létt og
fellur fullkomlega að litlum lófum og bráðn-
ar auðveldlega í munni.“
Naslið kemur í litlum pokum sem
frábært er að hafa í töskunni til að grípa
í hvar og hvenær sem er. Hver naslpoki
inniheldur hæfilegan skammt fyrir eitt
kríli og hentar börnum frá ýmist sjö eða
tólf mánaða aldri.
„Naslið inniheldur engan viðbættan
sykur, salt, litarefni eða rotvarnarefni, og
eins og allar aðrar Ella’s Kitchen-vörur þá
er naslið að sjálfsögðu hundrað prósent
lífrænt. Það er einfaldlega búið til úr
nokkrum korntegundum ásamt þurrkuðum
ávöxtum og grænmeti,“ útskýrir Guðrún.
Hún segir vörumerkið Ella’s Kitchen
vera vel þekkt hér á landi fyrir bragðgóð-
ar og bráðhollar skvísur fyrir börn frá
fjögurra mánaða aldri. „Vörumerkið á
rætur sínar að rekja til pabba sem vildi
að Ella dóttir sín fengi eins næringar-
ríkan mat og hugsast gæti og vildi ala
hana upp við að hollur matur getur líka
verið skemmtilegur og bragðgóður. Í dag
er Ella orðin táningur og Ella’s
Kitchen-barnamatur orðinn
þekktur um allan heim fyrir
bragð og gæði.“
Allar vörurnar eru hann-
aðar með það í huga að
örva öll skilningarvit barna
með bragði, áferð og litum.
Ella’s Kitchen leggur auk
þess áherslu á að vera
umhverfisvænt og gefa
til baka til samfélags-
ins.
Hægt er að lesa
allt um það á www.ellaskitchen.co.uk.
NÝTT LÍFRÆNT
NASL FYRIR KRÍLIN
NATHAN & OLSEN KYNNIR Komið er á markað lífrænt, bragðgott barnanasl
frá Ella’s Kitchen, búið til úr korni, þurrkuðum ávöxtum og grænmeti.
GÓMSÆTT NASL
Skemmtileg lögun fyrir
litla putta til að æfa sig
og frábært bragð fyrir
litla mallakúta.
GOTT FYRIR KRÍLIÐ
Sonur Guðrúnar, Dagur
Freyr, er ánægður með
naslið frá Ella’s Kitchen.
MYND/STEFÁN
Söngelskar systur
Ardís Ólöf ætlar að
fylgja systur sinni
Maríu til Vínar-
borgar.