Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 28
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Hvernig hefur þér liðið á Alþingi?
Vel og illa, eins og flestir upplifa
eflaust í nýju og krefjandi starfi.
En starfið er spennandi og opnar
á fjölmörg tækifæri til að hafa
áhrif. Þetta eru lítil eiginleg völd
– óbreyttir þingmenn eru ekki
í raun með löggjafarvaldið, það
er að mestu í ráðuneytunum – en
þingmenn geta haft mikil áhrif á
stefnumótun í samfélaginu ef þeir
leggja sig fram við það, og jú, ein-
hver áhrif stundum á löggjöf.
Hafa kjósendur mikið samband?
Öðru hvoru, og þá geri ég þeim
grein fyrir hvaða verkfæri ég
hef sem þingmaður og að mér sé
gert að beita þeim sem best til
að ná grunnstefnu Pírata, sem er
mitt umboð frá kjósendum. Aukið
gagnsæi hins opinbera er eitt
meginmarkmið okkar Pírata svo
ég aðstoða fólk oft við að afla upp-
lýsinga sem því hefur verið neitað
um að fá með öðrum leiðum. Með
upplýsingabyltingunni er gagnsæi
orðið sjálfsagður hlutur í hugum
fólks og þegar tæknibyltingar
breyta forgangsröðun á gildismati
fólks þá snúa valdhafar ekki þeirri
þróun við. Framtíðin verður gegn-
særri.
Varstu spenntur fyrir starfinu?
Stór tækifæri til að hafa áhrif sem
auka sjálfræði og minnka kúgun
hreyfa við mér – hugurinn hefur
alltaf sjálfkrafa leitað þangað – og
ég er yfirleitt tilbúinn að sinna for-
ystuhlutverki, ef og á meðan það
er nauðsynlegt. Nú ætla ég hins
vegar að hætta í haust.
Af hverju? Varaþingmaðurinn
okkar, Ásta Helgadóttir, er til í
Í malbikun er hugurinn frjáls
Jón Þór Ólafsson sá möguleika í þingmannsstarfinu til að hafa áhrif sem ykju sjálfstæði fólks og minnkuðu kúgun. Hann
ætlar að víkja af þingi í haust og sinna sjálfboðastörfum fyrir flokkinn sinn enda sáttur við að hafa lítið milli handanna.
ÞINGMAÐURINN „Klassísku prakkarastrikin voru sykur í saltið og salt í sykurinn, já, og í viskíið hans pabba,“ segir Jón Þór grallaralegur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ALSÆLL Með eiginkonunni Zarelu. KÁTIR Hlynur og pabbi. ÚTI AÐ LEIKA Luna Lind og pabbi.
slaginn og hefur sérþekkingu,
meðal annars úr starfi sínu sem
aðstoðarmaður Evrópuþingmanns
Pírata, sem mikilvægt er að koma
að í þingstarfinu. Það er ekki
lengur nauðsynlegt að hafa mig
á þingi til að Píratar nái megin-
markmiðum sínum. Það eru hins
vegar önnur verkefni innan Pírata
sem nauðsynlega þarf að setja í
gang og gera sjálfbær, svo sem að
fá kjósendur okkar á kjörstað, þar
mun ég nýtast sem sjálfboðaliði.
Ég hef alltaf verið sáttur með lítið
á milli handanna og bý við þann
lúxus að geta gert það sem mér
finnst mestu máli skipta hverju
sinni.
Eitthvert starf sem heillar? Mal-
bikun. Þar er hugurinn frjáls.
Vinnan mín þar er líkamleg og
mest á sjálfstýringu svo huganum
er frjálst að sinna því sem áhug-
inn stendur til hverju sinni eða
bara vera kyrr og friðsæll.
Hver er þín helsta fyrirmynd í líf-
inu? Engin í dag. Ég hef þó mikið
lært af Lao Tse, Jesú og Búdda,
Noam Chomskey, Peter Drucker og
Eckhart Tolle – og geri enn.
Hver var uppáhaldsnámsgreinin
þín í grunnskóla? Mér fannst víst
stærðfræði æðisleg þar til ég kom
grátandi heim úr skólanum undan
kennara sem hafði þvingað mig
til að stroka út þær blaðsíður sem
ég hafði reiknað umfram áætl-
un. Stærðfræði í slíkum höftum
var ekki eins skemmtileg. Eins og
margir þá þrífst ég ekki nema við
einstaklingsmiðað nám. En slíkt
hefur ekki verið mögulegt nema
fyrir mjög fáa, mjög efnaða ein-
staklinga í gegnum mannkynssög-
una. Góðu fréttirnar eru að ein-
staklingsmiðað nám fyrir alla er
að verða mögulegt því menntafor-
rit geta í dag lært inn á nemend-
ur. Rétt eins og Facebook veit oft
fyrirfram hverjir eru að fara að
byrja saman eða slíta sambandinu,
þá læra menntaforrit hvaða lexíur
henta hverjum og einum, hvernig
nemandinn meðtekur best upp-
lýsingar og hvort hann þarf frekar
frið eða félagsskap við námið. Það
eru svona 10 til 15 ár í að þetta
verði komið í almenna notkun.
Ertu hjátrúarfullur eða draum-
spakur maður? Nei. En draumar
geta verði ágæt innsýn í eigið til-
finningalíf. Hvaða langanir endur-
taka sig og hvaða ótti gerir oft vart
við sig?
Hvað ertu bestur í að elda? Það
dæma aðrir um en ég elda yfirleitt
á heimilinu og þá eru tvær nálganir
í boði. Einfalt, fljótgert og bragð-
gott, eða skemmtilegt og bragð-
gott. Oftast elda ég núðlukjötsúpu
sem tekur örfáar mínútur að henda
í pott. Matreiðsluþátt, þar sem ég
elda súpuna, er hægt að finna með
því að Googla: „núðlukjötsúpa“.
Hefur þú búið erlendis? Já, í Dan-
mörku við fiskvinnslu og hótel-
störf, í Frakklandi við nám, í
trukki á ferðalagi frá Katmandú
til Kaíró og í Perú sem heimavinn-
andi húsfaðir meðan konan mín
var í námi.
Hvert er mesta prakkarastrik-
ið sem þú hefur gert? Þau
klassísku voru sykur í salt-
ið og salt í sykurinn, já, og í
viskíið hans pabba. Annað sem
kemur upp í hugann er tilraun
okkar krakkanna að fá elsku
frænku okkar á Skaganum til
að hætta að reykja með sígar-
ettusprengju. Fyrir tilviljun
þá er það sama frænka mín
og kom í heimsókn og drakk
salt kaffi. En sígarettan sem
átti að kenna henni mikilvæga
lexíu endaði uppi í hennar
gesti svo við krakkarnir feng-
um að heyra meira en hvellinn
í sprengjunni.
Jón Þór Ólafsson
Fæddur 13. mars 1977
Hvaðan Reykjavík
Maki Zarela Castro
Börn Luna Lind og Hlynur
Menntun Stúdent frá MR
Nám í heimspeki og
viðskiptafræði við HÍ
2002-2013
Störf Sumarstarfsmaður hjá
Malbikunarstöðinni
Höfða, aðstoðarmaður
þingmanns. Alþingis-
maður frá 2013
Í stjórn Hreyfingarinnar,
Grasrótarmiðstöðvar-
innar, IMMI– alþjóð-
legrar stofnunar um
upplýsingafrelsi
Í úrskurðaráði Dögunar, stjórnmála-
samtaka um réttlæti,
sanngirni og lýðræði
Formaður Pírata
Áhugamál Að hugsa, hugleiða og
hanga með fjölskyldu
og vinum
➜ Helstu
baráttumál
● Að auka sjálfræði og
minnka kúgun
● Að efla borgaraleg
réttindi
ÞEKKTU
ÞINGMANNINN
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ÚR FJÖLSKYLDUALBÚMINU
JÓN ÞÓR Í ÞINGSAL GAGNRÝNI Á SÓUN FJÁR OG MÖGULEIKA TIL LÆRDÓMS
11. apríl 2014
Fyrr í dag reif ég þrjá 10 þús. kr.
seðla í ræðustólnum til að benda á
og gagnrýna það að setja 600 millj.
kr. rannsóknarskýrslu upp á 2 þús.
blaðsíður á dagskrá Alþingis degi
eftir að hún kom út.
23. jan 214
… ef við aukum val-
frelsi nemendanna nýtum
við krafta þeirra. Við nýtum
sjálfstæði þeirra, við styrkj-
um frumkvæði þeirra og
forvitni.
26. janúar 2015
Það er svo mikilvægt
að almenningur geti haft
aðhald með þeim sem fara
með framkvæmdarvaldið,
löggjafarvaldið og dóms-
valdið.
Pírati Reykjavík suður