Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 104
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 64
Heimilisofbeldi: Veruleikinn á Íslandi
Dagskrá:
13.00 Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, setur málþingið
13.10 Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og prófessor við HR
Höggva – hýða – hirta – hæða – hóta – hafna – hrista - hræða
13.40 Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og tengiliður vistheimila
Að taka upp úr bakpokanum
14.10 Guðrún Kristinsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði HÍ
Hin mörgu andlit ofbeldisins - frásagnir barna
14.40 Kaffihlé
15.00 Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR
Er þörf á sérstöku ákvæði um heimilisofbeldi í íslenska refsilöggjöf?
15.30 Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf
Úr kvennaathvarfinu: Íslenskur veruleiki/fáránleiki
16.00 Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Heimilisofbeldi er dauðans alvara
16.30 Umræður og fyrirspurnir
17.00 Málþingslok
Málþing á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík í samstarfi
við Kvennaathvarfið, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu,
velferðarsvið Reykjavíkurborgar og umboðsmann barna.
Föstudaginn 15. maí kl. 13-17 í Háskólanum í Reykjavík, stofu V101.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Ef þörf er frekari upplýsinga sendið póst á svala@ru.is
Fundarstjóri: Stefán Eiríksson,
sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og
fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
KVIKMYNDIR ★★★★★
BAKK
LEIKSTJÓRN: DAVÍÐ ÓSKAR ÓLAFSSON
OG GUNNAR HANSSON
HANDRIT: GUNNAR HANSSON
AÐALLEIKARAR: GUNNAR HANSSON,
VÍKINGUR KRISTJÁNSSON OG SAGA
GARÐARSDÓTTIR
KLIPPING: VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
MYNDATAKA: ÁRNI FILIPPUSSON
TÓNLIST: SNORRI HELGASON
BÚNINGAR: JÚLÍANNA LÁRA
STEINGRÍMSDÓTTIR
FRAMLEIÐENDUR: ÁRNI FILIPPUSSON
OG DAVÍÐ ÓSKAR ÓLAFSSON
Bakk segir söguna af smábæjar-
leikaranum og andhetjunni Gísla
(Gunnar Hansson) sem flutti til
Reykjavíkur til þess að gera garð-
inn frægan en hafði ekki erindi
sem erfiði.
Stöðu Gísla er miðlað til áhorf-
enda á einkar klókan máta strax
í upphafi þar sem hann gengur
skrautbúinn og sminkaður á svið
Þjóðleikhússins. Það er epískt bún-
ingadrama á fjölunum en Gísli
þarf að láta sér lynda að vera
stunginn til bana nær samstundis
og liggja sem lík það sem eftir lifir
sýningar.
Það er freistandi að hugsa sér
þetta opnunaratriði sem myndlík-
ingu fyrir Gísla sem persónu og
myndina í heild. Hann er í raun
búinn að vera áður en hann byrj-
ar og þarf svo að halda í sér grát-
inum meðan farsælli menn traðka á
honum þar til tjöldin falla. Myndlík-
ingar verða vart kænlegri en þessi.
Myndin hrekkur af stað án nokk-
urra málalenginga. Gísli er með
allt niður um sig, búinn að missa
vinnuna og konan kastar honum á
dyr. Hann snýr aftur á heimaslóð-
ir með skottið á milli lappanna en
brosandi, því enginn vill játa fyrir
þeim sem hann flúði að betur hefði
verið heima setið.
Í vanhugsaðri örvæntingu og að
hluta til þess að sleppa undan lang-
þreyttum föðurlegum ráðlegging-
um ákveður Gísli að bakka hring-
inn í kringum landið og upp frá því
hefst hin mikla vegferð.
Vegamyndir snúast iðulega um
tvenns konar ferðalög. Annars
vegar hið ytra þar sem land er
lagt undir fót, en hins vegar þá
innri ferð til þroska sem persónur
ganga í gegnum. Eins er fólgin viss
uppreisn í eðli vegamynda, því sá
sem ekur burt segir skilið við gildi
þess samfélags sem hann hverfur
frá og gerist sjálfskipaður útlagi.
Þrjár aðalpersónur myndarinn-
ar deila allar þessum einkennum
þar sem heita má að ferð hvers og
eins sé leiðin til sjálfsuppgötvunar
og sjálfsköpunar. Slík naflaskoðun
gæti virkað hálfþurr á blaði en sú
staðreynd að hún á sér stað í bakk-
gír sýnir fram á að hláturinn getur
stytt stundir þótt hann lengi lífið.
Gunnar Hansson sýnir mikla
leikræna breidd, er allt í senn
óþolandi, kvikindislegur, elsku-
legur, fyndinn og vekur samúð. Ég
hef séð Gunnar spreyta sig víða, í
sjónvarpi og á sviði en það kemst
ekkert af því nálægt frammistöðu
hans í Bakk.
Víkingur Kristjánsson (Viðar),
sem mér hefur nær undantekn-
ingarlaust þótt með betri kvik-
myndaleikurum landsins, skilar
hlutverki sínu á áreynslulausan
en áhrifaríkan máta. Saga Garð-
arsdóttir (Blær), sem leikur hér
í sinni fyrstu stóru kvikmynd, er
sömuleiðis prýðileg þótt hún falli
örlítið í skuggann af frammistöðu
Gunnars og Víkings.
Hlutverk þeirra þriggja vinna
einstaklega vel saman sem er
vafalaust vel skrifuðu handriti
að þakka, þar sem virkni hverrar
persónu og tilgangur er úthugs-
aður. Útkoman er óvænt, uppá-
tækjasöm og fyndin á vitsmuna-
legan máta sem er að mínum dómi
sjaldgæfur í íslenskri kvikmynda-
gerð. Vissri hrynjandi og dýnamík
er viðhaldið alla myndina sem má
hvort tveggja þakka kómísku tíma-
skyni leikstjóranna og listilegri
klippingu sem var í höndum Val-
dísar Óskarsdóttur.
Raunar voru allir tæknilegir
þættir, myndataka, tónlist, hljóð-
vinnsla og búningar eins og best
verður á kosið. Ég má einnig til
með að segja að það var kærkom-
in tilbreyting að sjá íslenska kvik-
mynd sem er tekin upp á lands-
byggðinni án þess að farið væri
yfir strikið með þessu staðlaða
náttúruklámi sem á best heima í
ferðamannabæklingum.
Að því sögðu er rétt að taka
fram að Bakk er ekki hnökralaus.
Hins vegar þarf einbeittan vilja
áhorfanda til þess að laða þau
atriði fram og þykir mér þau svo
smávægileg að það kemur ekki að
sök fyrir verkið í heild. Ég man
ekki eftir að hafa skemmt mér
jafn vel í bíó lengi og mæli hik-
laust með henni fyrir þá sem vilja
fá skammt af þrælfyndinni vellíð-
unarinnspýtingu fyrir sumarið.
NIÐURSTAÐA: Bakk er þroskasaga
sem sýnir að oft þurfi maður að
fara fyrir ofan garð og neðan til að
komast að því að það er blómið við
bæjarvegginn sem maður þráir. Yfir-
borðslegir hlutir á borð við vinsældir
eða frama geta heillað en þegar allt
kemur til alls er það vinátta, fjöl-
skylda og heilindi sem skipta máli.
Kjartan Már Ómarsson
Vellíðunarinnspýting
fyrir sumarið
Oasis-bræðurnir Noel og Liam
Gall agher hafa eldað grátt silfur í
þó nokkurn tíma. Núna varð stráka-
sveitin One Direct ion tilefni til
deilna þeirra á milli.
Noel lét hafa eftir sér í við-
tali við Rolling Stone að hann
væri ekki enn búinn að ná því
hvers vegna Zayn Malik ákvað
að yfirgefa strákasveitina,
en ástæðan sem hann gaf
var að hann vildi lifa líf-
inu eins og venjulegur 22
ára strákur. „Hann er nú
meiri hálfvitinn að hafa
hætt í bandinu. Heldur
hann virkilega að hann muni eiga
eðlilegt líf eftir þetta?“ sagði Noel.
Bróðir hans, Liam, var ekki lengi
að stökkva til og verja stráka-
sveitina og skrifaði á Twitter
„Hey NG, láttu þessa 1D krakka
í friði! Þó það sé saxófónn á nýju
plötunni þinni og þú haldir að
þú sért næsta Pink Floyd.
Það vita allir að þú ert
bara vondi steinninn í
veggnum,“ og vitnaði
með þessum orðum í
lagið „Another Brick
in the Wall“ með Pink
Floyd.
Oasis-bræður þræta um One Direction
Þeir Noel og Liam halda áfram að vera ósammála.
VEKJA DEILUR Strákarnir í One
Direction urðu deiluefni hjá Gallagher-
bræðrum.
BAKK Saga, Gunnar og Víkingur í hlutverkum sínum.