Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 62
www.skagafjordur.is
– lífsins gæði og gleði
ný
pr
en
t e
hf
/
0
52
01
5
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir
eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
Skólastjóri
Varmahlíðarskóla
í Skagafirði
Staða skólastjóra við Varmahlíðarskóla í Skagafirði er laus til
umsóknar. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem
er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu
skólasamfélagsins í héraðinu.
Sjá nánar um starfssvið og menntunar- og hæfniskröfur
á www.skagafjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.
Staða sálfræðings
hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði
Fjölskylduþjónusta Skagfirðinga óskar eftir að ráða sálfræðing
til starfa. Leitað er að öflugum og fjölhæfum sálfræðingi sem
er tilbúinn til að taka þátt í þverfaglegri vinnu með öðrum
sérfræðingum. Fjölskylduþjónustan hefur á að skipa vel menntuðu
fagfólki og er áhersla lögð á að veita heildstæða og samþætta
þjónustu, þverfagleg vinnubrögð og samvinnu þjónustueininga.
Sjá nánar um starfssvið og menntunar- og hæfniskröfur
á www.skagafjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk.
Í Skagafirði búa um 4.100 manns.
Samfélagið er fjölskylduvænt og
þjónusta við íbúa öflug. Tómstunda-,
forvarnar- og íþróttastarf er þróttmikið
og mikil samvinna er á milli skóla og
félagsamtaka sem þjónusta börn.
Skólasamfélagið er kraftmikið.
Leikskólar fyrir börn frá eins árs
aldri, öflugir grunnskólar, góður
fjölbrautaskóli, háskóli sem er í
sterkum tengslum við atvinnu- og
menningarlíf héraðsins, tónlistarskóli,
farskóli og miðstöð símenntunar.
Atvinnulíf í Skagafirði er sterkt og
fjölbreytt þar sem matvælavinnsla
skipar stóran sess í tengslum við
fjölbreyttan landbúnað og öfluga
fiskvinnslu. Ferðaþjónusta er vaxandi
og önnur þjónustustarfsemi er
fjölbreytt. Menningarlíf er blómlegt í
héraðinu og sagan við hvert fótmál.
Leikskólinn Krakkaborg,
Flóahreppi
Deildarstjóri - Leikskólakennari
Leikskólinn Krakkaborg auglýsir eftir leikskólakennurum til
framtíðarstarfa. Um er að ræða stöðu deildarstjóra og/eða
leikskólakennarastöðu.
Leikskólinn er 3ja deilda, fyrir börn á aldrinum 9 mánaða til
6 ára. Leikskólinn er staðsettur í nýju húsnæði á Þingborg í
Flóahreppi.
Leikskólinn Krakkaborg starfar eftir hugmyndafræði John
Dewey. Einnig er lögð áhersla á útinám og gott samstarf
milli skólastiga.
Óskað er eftir jákvæðum, skapandi og metnaðarfullum
einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í að vinna
að uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í nánu sam-
starfi við stjórnendur.
Ef ekki fæst fagfólk til starfa munu leiðbeinendur verða
ráðnir í stöðurnar tímabundið.
Umsóknafrestur er til 23. maí 2015.
Hægt er að sækja um á heimasíðu leikskólans
www.leikskolinn.is/krakkaborg undir flipanum
Um leikskólann – starfsumsóknir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Birna Birgis-
dóttir skólastjóri, s: 480-0150 siggabirna@floahreppur.is
Staða aðstoðarleikskólastjóra
við leikskólann Tjarnarás er
laus til umsóknar.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað,
sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur
áherslu á gott samstarf og þjónustu.
Tjarnarás er 4 deilda leikskóli sem stendur við Kríuás 2
í Hafnarfirði. Í Tjarnarási er lögð áhersla á fjórar megin-
stoðir sem eru fjölmenning, dygðir, þjónusta við mannkynið
og að gera sitt besta. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni.
Á líðandi skólaári hefur verið unnið að þróunarverkefni um
málþroska og læsi í samvinnu við tvo aðra skóla.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Aðstoðarleikskólastjóri vinnur að og ber ábyrgð á,
ásamt leikskólastjóra, daglegri stjórnun og skipulagn-
ingu starfsins og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla
og skólanámskrá leikskólans
• Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðaramaður leikskóla
stjóra og staðgengill hans
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsmenntun æskileg
• Stjórnunarreynsla í leikskóla æskileg
• Færni í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjördís Fenger
leikskólastjóri í síma 565 9710/664 5859,
hjordisf@hafnarfjordur.is
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um
starfið á vefsíðu Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Ráðið verður í
stöðuna frá 8. ágúst 2015.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef
Sjúkraflutningamaður Heilbrigðisstofnun Norðurlands Siglufjörður 201505/491
Lögfræðingur Velferðarráðuneytið Reykjavík 201505/490
Fjármálastjóri Menntaskólinn á Ísafirði Ísafjörður 201505/489
Framhaldsskólakennarar Menntaskólinn á Ísafirði Ísafjörður 201505/488
Deildarstjóri rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranes 201505/487
Umsjónarmaður fasteigna Landbúnaðarháskóli Íslands Reykjum 201505/486
Sviðsstjóri starfsmannasviðs HÍ, Starfsmannasvið Reykjavík 201505/485
Aðjúnkt í kennslufræði HÍ, Heilbrigðisvísindasvið Reykjavík 201505/484
Aðjúnkt í öldrunarhjúkrun HÍ, Heilbrigðisvísindasvið Reykjavík 201505/483
Nýdoktor HÍ, Verkfræði- og náttúruvísindasvið Reykjavík 201505/482
Hjúkrunarfræðingar, sumarafl. LSH, skurðlækningasvið Reykjavík 201505/481
Rannsóknarmaður LSH, ranns.stofa í taugalífeðlisfræði Reykjavík 201505/480
Heilbrigðisritari/skrifstofumaður LSH, skurðlækningasvið Reykjavík 201505/479
Aðstoðarfólk í umönnun Heilbrigðisstofnun Austurlands Seyðisfjörður 201505/478
Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands Seyðisfjörður 201505/477
Forstjóri Matvælastofnunar Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti Reykjavík 201505/476
Framhaldsskólakennarar Fjölbrautaskóli Snæfellinga Grundarfjörður 201505/475
Hjúkrunarfræðingar Heilsugæslan Árbæ Reykjavík 201505/474
Framhaldsskólakennarar Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Vestm.eyjar 201505/473
Framhaldsskólakennarar Menntaskólinn í Reykjavík Reykjavík 201505/472
Framhaldsskólakennari Fjölbrautaskólinn við Ármúla Reykjavík 201505/471
Verkefnastjórar Framkvæmdasýsla ríkisins Reykjavík 201505/470
Skrifstofumaður Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Hólmavík 201505/469