Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 6
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
verður haldinn þann
Skráning og dagskrá á www.hjukrun.is.
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að
fjölmenna á fundinn.
Háskólatorgi www.boksala.is s. 5 700 777
www.facebook.com/boksala
Útsala
30-70% afsláttur
12.000 veiðikort voru gefin út af Um-
hverfisstofnun árið 2014.
Heimild: Umhverfisstofnun
BRETLAND David Cameron, leiðtogi
breska Íhaldsflokksins, gekk í gær-
morgun á fund Elísabetar drottning-
ar til að upplýsa hana um sigur sinn
í þingkosningunum á fimmtudag.
Flokkurinn náði hreinum meirihluta
og þarf ekki á samstarfsflokki að
halda næsta kjörtímabilið.
Í sigurávarpi sínu sagðist hann
meðal annars ætla að standa við boð-
aða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild
Bretlands að Evrópusambandinu.
Stjórnarandstaðan beið hins
vegar afhroð. Leiðtogar Verka-
mannaflokksins, Frjálslyndra
demókrata og Breska sjálfstæðis-
flokksins, þeir Ed Miliband, Nick
Clegg og Nigel Farage, sögðu af sér
hver á fætur öðrum.
„Ég tek fulla og alla ábyrgð á nið-
urstöðunni og ósigri okkar í þessum
kosningum,“ sagði Miliband þegar
ljóst var að Verkamannaflokkurinn
myndi tapa tugum þingmanna.
Hann sagðist vilja segja af sér
án tafar vegna þess að flokkurinn
þurfi að hefja opnar og hreinskilnar
umræður um framhaldið, og skýrði
jafnframt frá því að Harriet Harm-
an varaleiðtogi tæki við af honum
til bráðabirgða, þangað til nýr leið-
togi yrði kjörinn. „Baráttan heldur
áfram,“ sagði Miliband í ávarpi sínu
til flokksmanna og fullyrti að Bret-
land þyrfti nauðsynlega á sterkum
Verkamannaflokki að halda.
Nick Clegg sagði sömuleiðis af
sér strax í gærmorgun og sagðist
bera fulla ábyrgð á tapi Frjálslynda
flokksins, sem hrundi bókstaflega
í fylgi eftir að hafa verið eitt kjör-
tímabil í ríkisstjórn með Cameron.
Flokkurinn fékk ekki nema átta
þingsæti á 650 manna þjóðþingi
Bretlands, og hefur aldrei haft jafn
fáa þingmenn frá stofnun flokks-
ins fyrir tæpum þremur áratugum.
Lægst fóru Frjálslyndir í 20 þing-
menn árið 1992 og var flokkurinn
þá með 18 prósent fylgi, en náði ekki
nema 7,8 prósenta fylgi nú.
Cameron vann sigur
Ed Miliband, Nick Clegg og Nigel Farage sögðu allir af sér í gærmorgun þegar
úrslit þingkosninganna í Bretlandi voru orðin ljós. Íhaldsflokkur Camerons náði
hreinum meirihluta þrátt fyrir að hafa ekki bætt við sig nema 0,8 prósentum.
CAMERON HRÓSAR SIGRI Hann sagðist meðal annars ætla að standa við loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem Bretum
stæði til boða að ganga úr Evrópusambandinu. NORDICPHOTOS/AFP
Breska kosningakerfið er dálítið óútreiknanlegt, eins og sjá má af því að
Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn bættu báðir við sig örlitlu fylgi
frá kosningunum 2010: Íhaldsflokkurinn 0,8 prósentum en Verkamanna-
flokkurinn 1,5 prósentum.
Þetta skilaði Íhaldsflokknum hins vegar 23 þingmönnum en Verka-
mannaflokkurinn tapaði 26 þingmönnum.
Einu umtalsverðu fylgishreyfingarnar í þessum kosningum voru stórtap
Frjálslyndra demókrata, ásamt yfirburðasigri Skoska þjóðarflokksins í Skot-
landi og mikilli fylgisaukningu Breska sjálfstæðisflokksins.
Skoski þjóðarflokkurinn fékk svo 56 þingmenn út á 4,7 prósenta fylgi, en
Breski sjálfstæðisflokkurinn aðeins einn þingmann út á 12,6 prósenta fylgi.
Þetta skýrist allt af því að kosið er í einmenningskjördæmum, þannig
að flokkur getur til dæmis fengið þokkalegt fylgi á landsvísu án þess að ná
meirihluta í mörgum kjördæmum, og þar með fáa þingmenn.
➜ Óútreiknanlegt kosningakerfi
2015 Breyting frá 2010
Þingsæti Hlutfall Þingsæti Hlutfall
Íhaldsflokkurinn 331 36,9 +24 +0,8
Verkamannaflokkurinn 232 30,4 -26 +1,5
Skoski þjóðarflokkurinn (Skotlandi) 56 4,7 +50 +3,1
Frjálslyndir demókratar 8 7,9 -49 -15,2
Breski sjálfstæðisflokkurinn 1 12,6 +1 +9,5
Græningjar 1 3,8 0 +2,8
Sambandssinnar (N-Írlandi) 8 0,6 0 0
Sinn Fein (N-Írlandi) 4 0,6 -1 0
Sósíaldemókrataflokkurinn (N-Írlandi) 3 0,3 0 0
Plaid Cymru (Wales) 3 0,6 0 0
Úrslit þingkosninganna
SAMGÖNGUR Gamli veltibíllinn
endaði í Sundahöfn á sama tíma
og Hekla afhenti Brautinni, bind-
indisfélagi ökumanna, og Ökuskóla
3 nýjan veltibíl.
Þórólfur Árnason, forstjóri Sam-
göngustofu, og Friðbert Friðberts-
son, forstjóri Heklu, fóru fyrsta
hringinn á nýja veltibílnum.
„Veltibíllinn hefur gegnt mikil-
vægu hlutverki í forvarnarstarfi
hér á landi og er stór þáttur í átak-
inu til að hvetja alla til að nota bíl-
belti. Þeir sem prófa veltibílinn
finna hversu gríðarlega mikilvægt
það er að spenna beltið áður en
haldið er af stað,“ sagði Þórólfur.
Gamli bíllinn var kvaddur með
dýfu í höfnina til að minna fólk á
að högg á vatni getur reynst öku-
mönnum hættulegt.
„Það skiptir máli að fólk átti sig
á hvað það er sem gerist þegar bíll
fer í sjóinn. Jafnvel þótt hraðinn
sé lítill er höggið á þá sem inni í
bílnum eru talsvert og getur rotað
þá,“ sagði Einar Guðmundsson,
formaður Brautarinnar. - srs
HÖGG
Á VATNI
Bílbelta-
notkun er
nauðsynleg
ef bíll fer í
sjóinn.
MYND/BRAUTIN
Forstjórar Heklu og Samgöngustofu fóru fyrsta hringinn í nýjum veltibíl Brautarinnar og Ökuskóla 3:
Gamli veltibíllinn tók dýfu í Sundahöfn
Clegg reyndi þó að bera sig
mannalega og sagði engan vafa
leika á því að stjórnarþátttakan
hafi orðið til þess að Bretland sé
nú „miklu sterkara, sanngjarnara,
grænna og frjálslyndara en það var
fyrir fimm árum“.
Nigel Farage, hinn skrautlegi
leiðtogi Breska sjálfstæðisflokks-
ins (UKIP), beið heldur ekki boð-
anna og sagði af sér þegar ljóst var
að hann sjálfur kæmist ekki á þing
í kjördæmi sínu.
„Ég er maður orða minna,“ sagði
hann og vísaði til loforðs um að
hann myndi segja af sér næði hann
ekki kjöri. Flokkur hans vann samt
töluverðan sigur með því að ná 12,6
prósenta fylgi, en sá sigur skilaði
flokknum ekki nema einum þing-
manni.
Það er samt meiri árangur en
áður því þetta er í fyrsta sinn sem
flokkurinn nær manni inn á þingið
í Bretlandi. Farage situr hins vegar
á Evrópuþinginu og heldur vafa-
laust ótrauður áfram baráttu sinni
gegn Evrópusambandinu.
Stórsigur Skoska þjóðarflokks-
ins, sem bætti við sig 50 þing-
mönnum og rústaði Verkamanna-
flokknum í Skotlandi, dugar ekki til
að koma flokknum í þá lykilstöðu
sem skoðanakannanir höfðu bent
til, þar sem Íhaldsflokkurinn situr
nú einn að völdum á breska þinginu
með hreinan meirihluta.
gudsteinn@frettabladid.is
SVONA ERUM VIÐ