Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 30
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Hann kemur brosandi út á móti mér úr gömlu og fallega upp-gerðu húsi í Álafoss-kvosinni. Það er bjart og fallegt yfir honum,
handabandið þétt og innilegt og
hann býður mér til stofu á meðan
hann er að klára að hella upp á.
Allt ilmar af kaffi og köldu vori.
Karl Tómasson, eða Kalli Tomm
í Gildrunni eins og margir þekkja
hann, hefur tekist á við sitthverja
raunina á síðustu árum en Líney
Ólafsdóttir, eiginkona hans, og
börnin þeirra, þau Ólafur 25 ára
og Birna fimmtán ára, hafa staðið
þétt saman.
Forseti bæjarstjórnar
Árið 2006 lét Kalli til leiðast að
fara í sveitarstjórnarmál. Fædd-
ur og uppalinn Mosi, eins og hann
segir sjálfur, var fenginn til þess
að leiða lista VG í Mosfellsbæ.
„Ég lét til leiðast reynslulaus og
sé ekkert eftir því. Þetta voru átta
lærdómsrík ár. Við unnum glæst-
an kosningasigur og komumst
í oddastöðu. Reyndum fyrst að
mynda meirihluta með Samfylk-
ingunni og Framsókn en það gekk
ekki upp. Það fór að endingu svo
að við mynduðum meirihluta með
Sjálfstæðisflokknum. Það þekkja
allir alla í svona bæjarfélagi
og við erum öll meira og minna
vinir. Þetta var í fyrsta sinn sem
VG var í meirihluta á landinu í
sveitarstjórn undir eigin nafni. En
það varð allt vitlaust. Við þóttum
hafa svikið vinstrið og þetta varð
á tíðum ansi óvægið. En svo fóru
menn að sjá að þetta samstarf
gekk eins og í sögu og okkur gekk
vel að koma okkar að og í fram-
kvæmd.“
Misstum ekki vonina
Það gekk allt glimrandi vel hjá
Kalla og fjölskyldunni í Kvosinni á
þessum tíma en svo kom hrunið og
það fór allt til fjandans. „Við gerð-
um upp stórt gamalt hús hér í Ála-
fosskvosinni en gerðum þau hrap-
allegu mistök að kaupa okkur stórt
einbýlishús – allir sögðu að gamla
húsið myndi seljast einn tveir og
þrír en hrunið stoppaði allt og við
stóðum uppi með tvö stór einbýlis-
hús og allt fór úr böndunum. Við
réðum ekkert við þetta og misst-
um hreinlega allt okkar.
En við erum komin aftur hérna
í Álafosskvosina í okkar gamla
hús og höldum í vonina um að
geta eignast það aftur einn góðan
veðurdag. Það er mikill og stór
draumur fjölskyldunnar því að hér
líður okkur afskaplega vel.
Enginn feluleikur
Ég sagði af mér sem forseti bæj-
arstjórnar. Ég fann að fólk kunni
að meta að ég fór þá leið að leyna
engu um ástandið. Það eru lög í
landinu sem segja til um það að
maður í gjaldþrotaferli geti ekki
gegnt svona ábyrgðarstöðu svo
ég vék og fékk mikinn stuðning
í bæjarstjórninni og frá fólki um
land allt. Með því að koma hreint
fram þá varð þetta aldrei að neinu
skítamáli eins og sumir fjölmiðlar
virtust vilja. Menn reyndu að búa
eitthvað til en þar sem allir vissu
allt um málið þá gátu allir svar-
að hreint og beint. Enginn felu-
leikur og ég gat aftur tekið sáttur
við mínu embætti eftir að skiptin
á búinu höfðu farið fram.
Við fjölskyldan vorum hátt í
þrjú ár að gera þetta hús upp og
sú vinna er öll farin. Andlega séð
er þetta meira en að segja það.
Auðvitað svaf maður ekki marg-
ar næturnar þegar þetta byrjaði
og fyrstu fjölmiðlarnir fóru að
hringja. En við Lína og fjölskyld-
an héldum þétt saman í gegnum
þetta og það breytti öllu.
Endalok og upphaf
Um þetta leyti var mikill gangur á
Gildrunni og við héldum m.a frá-
bæra tónleika í Hlégarði. Þetta
voru ógleymanlegir tónleikar sem
við hljóðrituðum og gáfum út. Við
gömlu mennirnir náðum svaka-
legu flugi og fengum alveg gríðar-
legan meðbyr. En svo kemur upp
ágreiningur. Fókusinn var ekki
ÖRLAGAGALDUR
KALLA TOMM
Ef maður sækir í birtuna þá nær maður henni segir Karl Tómasson
tónlistarmaður og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ. Hann
vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu en hann þekkir einnig mótbyr; missti
allt sitt í hruninu en sér nú fram á bjartari tíma.
HLJÓMSVEITARTÖFFARI Kalli hefur verið í tónlistinni nánast alla sína tíð en vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is