Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 30

Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 30
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Hann kemur brosandi út á móti mér úr gömlu og fallega upp-gerðu húsi í Álafoss-kvosinni. Það er bjart og fallegt yfir honum, handabandið þétt og innilegt og hann býður mér til stofu á meðan hann er að klára að hella upp á. Allt ilmar af kaffi og köldu vori. Karl Tómasson, eða Kalli Tomm í Gildrunni eins og margir þekkja hann, hefur tekist á við sitthverja raunina á síðustu árum en Líney Ólafsdóttir, eiginkona hans, og börnin þeirra, þau Ólafur 25 ára og Birna fimmtán ára, hafa staðið þétt saman. Forseti bæjarstjórnar Árið 2006 lét Kalli til leiðast að fara í sveitarstjórnarmál. Fædd- ur og uppalinn Mosi, eins og hann segir sjálfur, var fenginn til þess að leiða lista VG í Mosfellsbæ. „Ég lét til leiðast reynslulaus og sé ekkert eftir því. Þetta voru átta lærdómsrík ár. Við unnum glæst- an kosningasigur og komumst í oddastöðu. Reyndum fyrst að mynda meirihluta með Samfylk- ingunni og Framsókn en það gekk ekki upp. Það fór að endingu svo að við mynduðum meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Það þekkja allir alla í svona bæjarfélagi og við erum öll meira og minna vinir. Þetta var í fyrsta sinn sem VG var í meirihluta á landinu í sveitarstjórn undir eigin nafni. En það varð allt vitlaust. Við þóttum hafa svikið vinstrið og þetta varð á tíðum ansi óvægið. En svo fóru menn að sjá að þetta samstarf gekk eins og í sögu og okkur gekk vel að koma okkar að og í fram- kvæmd.“ Misstum ekki vonina Það gekk allt glimrandi vel hjá Kalla og fjölskyldunni í Kvosinni á þessum tíma en svo kom hrunið og það fór allt til fjandans. „Við gerð- um upp stórt gamalt hús hér í Ála- fosskvosinni en gerðum þau hrap- allegu mistök að kaupa okkur stórt einbýlishús – allir sögðu að gamla húsið myndi seljast einn tveir og þrír en hrunið stoppaði allt og við stóðum uppi með tvö stór einbýlis- hús og allt fór úr böndunum. Við réðum ekkert við þetta og misst- um hreinlega allt okkar. En við erum komin aftur hérna í Álafosskvosina í okkar gamla hús og höldum í vonina um að geta eignast það aftur einn góðan veðurdag. Það er mikill og stór draumur fjölskyldunnar því að hér líður okkur afskaplega vel. Enginn feluleikur Ég sagði af mér sem forseti bæj- arstjórnar. Ég fann að fólk kunni að meta að ég fór þá leið að leyna engu um ástandið. Það eru lög í landinu sem segja til um það að maður í gjaldþrotaferli geti ekki gegnt svona ábyrgðarstöðu svo ég vék og fékk mikinn stuðning í bæjarstjórninni og frá fólki um land allt. Með því að koma hreint fram þá varð þetta aldrei að neinu skítamáli eins og sumir fjölmiðlar virtust vilja. Menn reyndu að búa eitthvað til en þar sem allir vissu allt um málið þá gátu allir svar- að hreint og beint. Enginn felu- leikur og ég gat aftur tekið sáttur við mínu embætti eftir að skiptin á búinu höfðu farið fram. Við fjölskyldan vorum hátt í þrjú ár að gera þetta hús upp og sú vinna er öll farin. Andlega séð er þetta meira en að segja það. Auðvitað svaf maður ekki marg- ar næturnar þegar þetta byrjaði og fyrstu fjölmiðlarnir fóru að hringja. En við Lína og fjölskyld- an héldum þétt saman í gegnum þetta og það breytti öllu. Endalok og upphaf Um þetta leyti var mikill gangur á Gildrunni og við héldum m.a frá- bæra tónleika í Hlégarði. Þetta voru ógleymanlegir tónleikar sem við hljóðrituðum og gáfum út. Við gömlu mennirnir náðum svaka- legu flugi og fengum alveg gríðar- legan meðbyr. En svo kemur upp ágreiningur. Fókusinn var ekki ÖRLAGAGALDUR KALLA TOMM Ef maður sækir í birtuna þá nær maður henni segir Karl Tómasson tónlistarmaður og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ. Hann vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu en hann þekkir einnig mótbyr; missti allt sitt í hruninu en sér nú fram á bjartari tíma. HLJÓMSVEITARTÖFFARI Kalli hefur verið í tónlistinni nánast alla sína tíð en vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.