Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 9. maí 2015 | HELGIN | 31
Þú ljúfasta vina
drauma minna,
engin er minning
án orða þinna.
Nú gef ég þér lag mitt
að leika létt við þig,
hlustaðu á tóninn
kveða og óma.
Finndu ást mína
elskan
Í lífinu okkar,
vefja og binda
þræði saman.
Örlaga galdur
sem allt var og verður,
vildi ég gæti
breytt öllu í gleði.
Þú veist að mig langar
að vefja allt saman,
vonina og drauminn
um allt sem er horfið.
En láttu nú lagið
leika létt við þig,
leyfðu því strjúka
hárið þitt mjúka,
leyfðu því faðma
fallegan hálsinn,
leyfðu því syngja
líf okkar saman.
Mundu það líka
að ég elska þig alltaf.
➜ Örlagagaldur eftir Vigdísi Grímsdóttur er texti titillags
plötunnar sem Karl Tómasson vinnur að um þessar mundir
HAMININGJA Kalli og Líney
heima í draumahúsinu í
Álafosskvosinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
allur hjá Gildrunni, menn voru
soldið víðar með fókusinn og ekki
allir sammála um það að hafa
hlutina þannig. Því miður, eftir öll
þessi frábæru ár, varð það til þess
að leiðir skildi. Ég var sár og það
urðu aðrir sárir út í mig. Við erum
ekki í neinu sambandi enn í dag.
En þegar einar dyr lokast þá
opnast aðra. Hún Lína mín sem
þekkti manna best hvað hljóm-
sveitin var mér mikils virði hvatti
mig aftur af stað í að gera mína
eigin plötu og ég er að vinna að
henni á fullu í dag ásamt fjölda af
góðu fólki. Allur minn hugur og
fókus hefur verið í þessu verk-
efni og þetta allt má ég fyrst og
fremst þakka Línu. Undanfarið
ár er hreinlega búið að vera eitt
skemmtilegasta ár lífs míns.
Tónlistin
Ég er búinn að vera að vinna með
alveg frábærum tónlistarmönn-
um. Lögin mín – sem ég hef gefið
út af væntanlegri plötu – hafa fall-
ið í mjög góðan jarðveg og þetta
gengur glimrandi vel.
Ég hef verið mikið að vinna
með Jóhanni Helgasyni sem er
stór gestur á þessari plötu og
eins hefur Guðmundur Jónsson
í Sálinni hjálpað mér mikið. Svo
eru þessir fínu hljóðfæraleikarar
eins og Þórður Högnason kontra-
bassaleikari, Ásgrímur Angan-
týsson á hljómborð og Tryggvi
Hübner gítarleikari sem hefur
verið mér mikil stoð og stytta
eins og Þórhallur Árnason, bassa-
leikari Gildrunnar og æskuvinur
minn. Ég vil líka nefna hjónakorn-
in Myrru Rós og Júlla frænda sem
koma einnig við sögu og eflaust
eiga fleiri eftir að bætast í hópinn.
Örlagagaldur
Fyrir fimmtán árum þá lét ég
mér detta í hug að tala við Vigdísi
Grímsdóttur og fá hana til þess
að semja einn texta fyrir Gildr-
una sem hún gerði en ég hef allt-
af verið mikill aðdáandi hennar.
Nú fimmtán árum síðar hef ég
aftur samband og biðla til hennar
um að semja fyrir mig texta. Hún
tók mér aftur svo vel og er búin að
senda mér alveg ljómandi fallega
texta. Hún og Bjarki Bjarnason,
rithöfundur og vinur minn, skipta
með sér textum plötunnar.
Það er svo gaman að vinna með
svona djúpt þenkjandi listamönn-
um. Í hvert sinn sem maður fær
frá þeim texta þá sökkvir maður
sér oní þá og mér hefur alltaf
fundist alveg gríðarlegt atriði að
hafa góða texta við lög. Þannig er
það til að mynda með titiltexta
plötunnar, Örlagagaldur eftir Vig-
dísi, og það er texti sem er mér
ákaflega mikils virði.
Það er bjart fram undan eftir
allt sem á undan er gengið og
notalegt að finna að það birtir til.
Ef maður sækir í birtuna og er
með hugann við það eitt þá nær
maður þangað – þá nær maður
birtunni.“
Menn reyndu að búa
eitthvað til en þar sem allir
vissu allt um málið þá gátu
allir svarað hreint og beint.
Enginn feluleikur og ég gat
aftur tekið sáttur við mínu
embætti eftir að skiptin á
búinu höfðu farið fram.
Allur minn
hugur og fókus
hefur verið í þessu
verkefni og þetta
allt má ég fyrst og
fremst þakka Línu.
Undanfarið ár er
hreinlega búið að
vera eitt skemmti-
legasta ár lífs míns.