Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 31

Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 31
LAUGARDAGUR 9. maí 2015 | HELGIN | 31 Þú ljúfasta vina drauma minna, engin er minning án orða þinna. Nú gef ég þér lag mitt að leika létt við þig, hlustaðu á tóninn kveða og óma. Finndu ást mína elskan Í lífinu okkar, vefja og binda þræði saman. Örlaga galdur sem allt var og verður, vildi ég gæti breytt öllu í gleði. Þú veist að mig langar að vefja allt saman, vonina og drauminn um allt sem er horfið. En láttu nú lagið leika létt við þig, leyfðu því strjúka hárið þitt mjúka, leyfðu því faðma fallegan hálsinn, leyfðu því syngja líf okkar saman. Mundu það líka að ég elska þig alltaf. ➜ Örlagagaldur eftir Vigdísi Grímsdóttur er texti titillags plötunnar sem Karl Tómasson vinnur að um þessar mundir HAMININGJA Kalli og Líney heima í draumahúsinu í Álafosskvosinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR allur hjá Gildrunni, menn voru soldið víðar með fókusinn og ekki allir sammála um það að hafa hlutina þannig. Því miður, eftir öll þessi frábæru ár, varð það til þess að leiðir skildi. Ég var sár og það urðu aðrir sárir út í mig. Við erum ekki í neinu sambandi enn í dag. En þegar einar dyr lokast þá opnast aðra. Hún Lína mín sem þekkti manna best hvað hljóm- sveitin var mér mikils virði hvatti mig aftur af stað í að gera mína eigin plötu og ég er að vinna að henni á fullu í dag ásamt fjölda af góðu fólki. Allur minn hugur og fókus hefur verið í þessu verk- efni og þetta allt má ég fyrst og fremst þakka Línu. Undanfarið ár er hreinlega búið að vera eitt skemmtilegasta ár lífs míns. Tónlistin Ég er búinn að vera að vinna með alveg frábærum tónlistarmönn- um. Lögin mín – sem ég hef gefið út af væntanlegri plötu – hafa fall- ið í mjög góðan jarðveg og þetta gengur glimrandi vel. Ég hef verið mikið að vinna með Jóhanni Helgasyni sem er stór gestur á þessari plötu og eins hefur Guðmundur Jónsson í Sálinni hjálpað mér mikið. Svo eru þessir fínu hljóðfæraleikarar eins og Þórður Högnason kontra- bassaleikari, Ásgrímur Angan- týsson á hljómborð og Tryggvi Hübner gítarleikari sem hefur verið mér mikil stoð og stytta eins og Þórhallur Árnason, bassa- leikari Gildrunnar og æskuvinur minn. Ég vil líka nefna hjónakorn- in Myrru Rós og Júlla frænda sem koma einnig við sögu og eflaust eiga fleiri eftir að bætast í hópinn. Örlagagaldur Fyrir fimmtán árum þá lét ég mér detta í hug að tala við Vigdísi Grímsdóttur og fá hana til þess að semja einn texta fyrir Gildr- una sem hún gerði en ég hef allt- af verið mikill aðdáandi hennar. Nú fimmtán árum síðar hef ég aftur samband og biðla til hennar um að semja fyrir mig texta. Hún tók mér aftur svo vel og er búin að senda mér alveg ljómandi fallega texta. Hún og Bjarki Bjarnason, rithöfundur og vinur minn, skipta með sér textum plötunnar. Það er svo gaman að vinna með svona djúpt þenkjandi listamönn- um. Í hvert sinn sem maður fær frá þeim texta þá sökkvir maður sér oní þá og mér hefur alltaf fundist alveg gríðarlegt atriði að hafa góða texta við lög. Þannig er það til að mynda með titiltexta plötunnar, Örlagagaldur eftir Vig- dísi, og það er texti sem er mér ákaflega mikils virði. Það er bjart fram undan eftir allt sem á undan er gengið og notalegt að finna að það birtir til. Ef maður sækir í birtuna og er með hugann við það eitt þá nær maður þangað – þá nær maður birtunni.“ Menn reyndu að búa eitthvað til en þar sem allir vissu allt um málið þá gátu allir svarað hreint og beint. Enginn feluleikur og ég gat aftur tekið sáttur við mínu embætti eftir að skiptin á búinu höfðu farið fram. Allur minn hugur og fókus hefur verið í þessu verkefni og þetta allt má ég fyrst og fremst þakka Línu. Undanfarið ár er hreinlega búið að vera eitt skemmti- legasta ár lífs míns.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.