Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 25

Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 25
LAUGARDAGUR 9. maí 2015 | HELGIN | 25 „Galdur er annað orð yfir töfra. Konur eru töfrandi,“ segir Sigga Kling sem er þekkt fyrir göldr- óttar stjörnuspár og gefur dæmi um tvo vinsæla galdra. Ástargaldur Tveir steinar eru teknir og sett ást, umhyggja og falleg orð í þá. Svo eru þeir blessaðir saman. Annar steinn- inn er settur í vasa manneskju sem þú berð hug til en hinn geymir þú í eigin vasa. Að lokum munu stein- arnar finna hvor annan á ný. Nágrannagaldur Galdur má aðeins leiða gott af sér. Þannig að ef þú vilt losna við ná- grannana þá verður þú að óska þeim einhvers betra. Sjávarsalt er tekið og góð orka sett í það, fallegar bænir og ósk um að fólkið fái betri stað til að búa á. Saltinu stráð fyrir framan dyr nágrannanna. ALLAR KONUR ERU TÖFRANDI NORNIR ORÐ ERU ÁLÖG Sigríður Klingenberg hefur oft sagt að í orðum felist galdur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1625 hófst galdrafárið á Íslandi og stóð til 1720. VILLUTRÚ Hvítigaldur sem átti að leiða gott af sér og svartigaldur sem átti að valda skaða var hvort tveggja talið villutrú og hafði í för með sér dauðarefsingu. 22 KARLMENN voru brenndir á báli fyrir galdra á Íslandi og ein kona. GALDRAFÁRIÐ Á ÍSLANDI „Ég er norn, já. En ég hef enga yfir- náttúrulega hæfileika,“ segir Eyrún Heiða. „Það að vera norn er hluti af því hver þú ert. Ef þú þarft að fara í búning og breyta heima hjá þér til að vera norn, þá ertu ekki norn.“ Eyrún Heiða segir galdur vera eitthvað sem þú getur ekki útskýrt og sé að finna í öllum trúar- brögðum. „Það er margt í lífinu, í vísindum, eðlisfræði og efnafræði til dæmis, sem erfitt er að útskýra og við köllum það galdur. Maður veit að það er ekkert yfirnáttúru- legt, heldur eitthvert náttúruafl sem maður nær bara ekki alveg utan um.“ Eyrún segir fullt af fólki reyna að galdra í sínu daglega lífi án þess að hafa hugmynd um það. „Eins og þegar þú biður kökuna um að falla ekki, þegar þú tekur hana úr ofn- inum eða mantrar „ekki rautt ljós, ekki rautt ljós“, þegar þú ert að keyra í umferðinni.“ Eyrún Heiða notar meðal annars tarotspil og rúnir við sína galdra „Oft er hugurinn fastur þegar maður stendur frammi fyrir vanda- máli. Þá leggur maður rúnir, sér vandann í nýju ljósi og opnar hug- ann fyrir nýjum leiðum til að leysa vandann.“ En hvernig eru rúnir notaðar til að galdra? Ef þú vilt eignast pening þá notar þú férúnina og stingur í vas- ann. Og í hvert skipti sem þú snertir rúnina í vasanum manstu eftir þessu markmiði þínu. Rúnin er tákn fyrir markmiðið. Alveg eins og krossinn í kirkjunni minnir kristna á hærra markmið og það að skrifa í spegilinn á morgnana „brostu“ minnir mann á gleðina. Og eins og fyrir galdur nær maður frekar markmiði sínu. Galdur er það sem við náum ekki að skilja Eyrún Heiða Skúladóttir segist sannarlega vera norn án þess að hafa snefil af yfirnáttúrulegum hæfileikum. SPÁIR Í RÚNIR Eyrún Heiða les út úr rúnatákn- um og hjálpar þannig sjálfri sér og öðrum að sjá nýjar lausnir á vanda- málum. Hún segir ekkert yfirnáttúrulegt eiga sér stað. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ertu með góða hugmynd fyrir Menningarnótt? Menningarnótt fagnar 20 ára afmæli sínu þann 22. ágúst nk. Við ætlum að fagna þessum merku tímamótum með því að styrkja skemmtilega og frumlega viðburði. Viðburðir hátíðarinnar eiga sér stað víðsvegar um borgina, m.a. á torgum, í portum, görðum, galleríum, verslunum, menningarstofnunum og heimahúsum. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Við úthlutun í ár verður kastljósinu beint að viðburðum á torgum mið- borgarinnar; nýjum og gömlum, stór- um og litlum, fundnum og földum. Sú tenging er þó ekki skilyrði fyrir styrk- veitingu. Við tökum vel á móti öllum umsóknum. Menningarnæturpotturinn er samstarfs- verkefni Höfuðborgarstofu og Landsbank- ans sem hefur verið máttarstólpi Menn- ingarnætur frá upphafi. Veittir verða styrkir úr pottinum, 50- 200.000 kr. til einstaklinga og hópa sem vilja skipuleggja ölbreytta og áhugaverða viðburði á Menningarnótt. Tekið er við umsóknum um styrki úr sjóðnum til og með 1. júní á www.menningarnott.is. Nánari upplýsingar um styrki hátíðarinnar veita viðburðastjórar Höfuðborgarstofu í síma 590 1500 og á menningarnott@ reykjavik.is. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.