Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 10
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
VINNUMARKAÐUR Það er mjög erf-
itt fyrir Íslendinga að leggja mat
á óbeinan ábata af EES-samn-
ingnum, sagði Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
á fundi Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands í gær.
Gylfi tók ásamt Guðlaugi Þór
Þórðarsyni, þingmanni Sjálf-
stæðisflokksins, og fleirum þátt
í panelumræðum á fundi Alþjóða-
málastofnunar um framtíð EES-
samningsins í gær. Þátttakendur
í panel voru spurðir um beinan og
óbeinan kostnað af EES-samningn-
um og líka hvaða ábata aðildarrík-
in hefðu haft af honum.
Gylfi sagði að einn þeirra þátta
sem Íslendingar hefðu fengið í
gegnum EES-samninginn væri
foreldraorlof. „Ég held að allir
Íslendingar taki undir þá skoðun
að fæðingarorlof, eins og það er
núna, sé eitthvað sem við vildum
ekki vera án,“ sagði Gylfi.
Guðlaugur Þór Þórðarson sagði
að EES-samningurinn hefði vissu-
lega haft jákvæð áhrif en hann sæi
ekki alveg hvað samningurinn
hefði haft með fæðingar orlofið að
gera.
Gylfi svaraði því til að Alþýðu-
sambandið hefði um árabil reynt
að knýja á um breytta löggjöf um
foreldraorlof til að tryggja laun-
þegum á almennum markaði, bæði
körlum og konum, launað foreldra-
orlof. Það hafi ekki verið hægt.
Breytingar hafi orðið þar á á árun-
um 1998 og 1999 eftir að Íslending-
ar gerðust aðilar að samningnum.
Gylfi sagði að í EES samningn-
um væri kveðið á um að þættir er
vörðuðu félagsleg réttindi laun-
þega væru úrlausnarefni fyrir
aðila vinnumarkaðarins.
Aðilar vinnumarkaðarins í
Evrópu hefðu komið sér saman
um umgjörð varðandi launuð
foreldraorlof og þá umgjörð átti
stefná á að taka upp í hverju landi.
„Sumir gerðu það með löggjöf og
aðrir gerðu það með marghliða
samkomulagi. Við ákváðum hér
á Íslandi að taka upp þetta evr-
ópska fyrirkomulag með löggjöf
frá þinginu,“ sagði Gylfi. Hann
sagði að grunnurinn að þessu fyr-
irkomulagi hefði komið í gegnum
EES-samninginn. „Við hefðum vel
getað gert þetta fyrr en við gerð-
um það ekki,“ sagði hann.
„Ég hef tekið þátt í að móta
ýmsa löggjöf á grundvelli EES-
samningsins. Þetta er ekki ein
þeirra,“ sagði Guðlaugur.
jonhakon@frettabladid.is
Gylfi og Guðlaugur tókust
á um tilurð foreldraorlofs
Forseti ASÍ segir erfitt að leggja mat á óbeinan ábata af EES-samningnum. Hann segir samninginn hafa verið
forsendu þess að lögum um fæðingarorlof var breytt. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins er ósammála.
STAÐAN
TEKIN FYRIR
FUNDINN
Þeir Guð-
laugur Þór
og Gylfi eru
sammála um
að ábatinn
af EES-samn-
ingnum sé
augljós. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/PJETUR
Ég hef tekið þátt í að
móta ýmsa löggjöf á
grundvelli EES samnings-
ins. Þetta er ekki ein
þeirra.
Guðlaugur Þór Þórðarson
alþingismaður.
Umhverfis-
skýrslan er
opin öllum
Kynntu þér starfsemi og áherslur
Í ár eru 50 ár frá stofnun Landsvirkjunar. Kröfur
-