Fréttablaðið - 10.12.2015, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 9 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r f i M M t u d a g u r 1 0 . d e s e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Ekki lama
Ríkisútvarpið, skrifa
stjórnarmenn RÚV.
28-36
sport Svona getur riðill
Íslands á EM 2016 orðið
þegar dregið verður á
laugardaginn. 38-40
HAND
BÓKJÓLA
GJAF
A
Taktu
þitt e
intak
með í
jólagj
afalei
ðangu
rinn.
Yfir 10
00 hu
gmyn
dir
að jól
agjöfu
m.
OPIÐ TIL
21
Í KVÖLD
YFIR 1000 HUGMYNDIR
AÐ GÓÐUM JÓLAGJÖFUM
Opið til kl. 21
Allt fyrir
jólin
ÍSLENSK HÖNNUN
OG RITSNILLD
Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA
OG UNGMENNA
Sölutímabil 5. - 19.desember
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A
O G F AT L A Ð R A
SKYRGÁMUR
„Ég vonaðist alltaf eftir henni. Ég treysti eiginlega engu,“ sagði Ásta Kristín Andrésdóttir hjúkrunarfræðingur aðspurð um það hvort hún hefði átt von á sýknu í héraðsdómi. Viðstödd
dómsuppkvaðningu voru auk Ástu meðal annars Sigrún Sveinsdóttir, móðir hennar, og Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Fréttablaðið/SteFán
peking Stefán Úlfarsson hagfræð-
ingur býr í Peking ásamt eiginkonu
og dóttur þar sem ríkir ófremdar-
ástand dögum saman vegna mikillar
loftmengunar.
Stefán segir koma til greina að
flýja frá borginni vegna ástandsins.
„Ég skýst út áður en konan fer í vinn-
una á morgnana og kaupi í matinn
og svoleiðis. Síðan höldum við Árný
okkur inni allan daginn,“ segir hann
en kona hans þarf að verja sig loft-
menguninni með grímu þegar hún
heldur til vinnu.
Yfirvöld í höfuðborg Kína þar sem
um 20 milljónir manna búa sendu
í fyrsta skipti í vikunni út rauða
aðvörun – hæsta viðbúnaðarstig af
fjórum – sem þýðir að mengun innan
borgarmarkanna muni haldast langt
yfir hættumörkum í þrjá sólarhringa
eða lengur. – shá / sjá síðu 10
Lokar sig inni
vegna mengunar
HeilbrigðisMál Nýverið hafa
læknar á Landspítalanum undir
forystu Sigfúsar Gizurarsonar, sér-
fræðings í hjartalækningum, gert
aðgerðir til þess að fyrirbyggja
gáttatif og með því heilablóðföll.
Sigfús fær ekki að gera nema
sextíu aðgerðir á ári en hundrað
og fimmtíu Íslendingar eru á
biðlista eftir aðgerðinni. Kári Stef-
ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar, segir í aðsendri grein
í Fréttablaðinu í dag brýna þörf
á að gera fleiri aðgerðir og gagn-
rýnir stjórnvöld og heilbrigðiskerfi
fyrir skammsýni í þessum efnum.
„Sú staðreynd að ákvörðunin um
að það megi ekki gera nema 60
brennsluaðgerðir á ári var tekin af
skriffinni einhvers staðar í stofn-
un sem heitir Sjúkratryggingar
Íslands breytir ekki því að það er á
ábyrgð kjörinna fulltrúa fólksins í
landinu að framselja valdið til þess
að taka svona ákvarðanir. Þetta er
ákvörðun sem endanlega kostar
þjóð stórfé og einstaklinga þján-
ingu og jafnvel varanlega fötlun
eða lífið.“
Sigús segir aðgerðina gefa góðan
árangur. „Aðgerðin er gerð á þeim
sem svara ekki lyfjameðferð.“
Hver aðgerð kostar um 700.000
krónur. Sigfús fær 42 milljónir á ári
en þyrfti 105 milljónir til þess að
sinna þörfinni. Kári bendir á að það
sé líklega margfalt dýrara að sleppa
þessum aðgerðum. Því fylgi kostn-
aður við lyf og verri heilsu þeirra sem
bíða eftir aðgerðinni. – kbg / sjá síðu 30
Hundrað og fimmtíu bíða eftir aðgerð
Hjartalæknir fær ekki að gera nema sextíu aðgerðir á ári sem koma í veg fyrir gáttatif og heilablóðfall, þörf er á mun fleiri aðgerðum.
Þetta er ákvörðun
sem endanlega
kostar þjóð stórfé og einstak-
linga þjáningu og jafnvel
varanlega fötlun eða lífið.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar
Menning Dagný Kristjánsdóttir
hefur rannsakað upphafsár
íslenskra barnabókmennta.
50-60
lÍfið Omaggio-vasar, hangandi
api, mittisþjálfi og Birkenstock-
skórnir eiga það sameiginlegt
að hafa verið heitasta heitt árið
2015. 66-72
plús 2 sérblöð l fólk
l jólagjöf fagMannsins
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015