Fréttablaðið - 11.08.2018, Page 24

Fréttablaðið - 11.08.2018, Page 24
Sigríður og Guðmundur Karl bróðir hennar sitja á Kaffi Mokka við Skólavörðustíg sem hefur verið málaður í litum regnbogans. Þau eru svipsterk, afar lík og það kemur í ljós að þau eru samrýnd og góðir vinir. Guðmundur Karl sveiflar inn- kaupapoka úr fataverslun á Skóla- vörðustíg og spyr hvort hann eigi ekki að senda blaðamanni reikning- inn. „Ég hefði sko aldrei keypt þetta ef ég hefði ekki farið í þetta viðtal,“ segir hann og brosir út í annað. Sigríður er, eins og landsmenn flestir vita, ríkissaksóknari og Guð- mundur Karl vinnur á Útlendinga- stofnun og tekur á móti hælisleit- endum. Það er létt yfir þeim. Þau eru bæði á leiðinni í sumarfrí, ætla saman með hópi fólks í hjólaferð til Spánar. „Það vill svo til að við erum að fara þrjú systkinin, konan mín og nokkr- ir aðrir með,“ segir Sigríður. „Þetta verður örugglega gott frí,“ segir hún. „Við erum mörg sem förum. Köttur- inn fær reyndar ekki að fara með,“ segir Guðmundur Karl kankvís. Sigríður og Guðmundur Karl eru fædd og uppalin fyrstu æviárin í Reykjavík en fluttu svo á Höfn í Hornafirði. Þau eru börn Friðjóns Guðröðarssonar, fyrrverandi sýslu- manns og lögreglustjóra, og Sig- ríðar Guðmundsdóttur kennara. Þau eru bæði fallin frá. Sigríður og Guðmundur eiga tvær alsystur, Ingu Sólveigu sem starfar sem ljósmynd- ari og Halldóru, sem starfar hjá fjár- málaráðuneyti. Þau eiga eina hálf- systur, Ingileif Hrönn. „Við fluttum til Hafnar 1974 þegar hringvegurinn var opnaður. Þá var ég tíu ára og Sigga þrettán ára,“ segir Guðmundur Karl. „Við bjuggum þar í nokkur ár og svo fórum við bæði í framhaldsskóla í Menntaskólanum á Laugarvatni. Við unnum hin ýmsu sumarstörf á Höfn fram yfir tvítugt,“ segir Sig- ríður. „Já, bara nefndu það!“ segir Guð- mundur Karl. „Ég vann einu sinni sem línumaður hjá Rarik og  hjá Mjólkurstöðinni að búa til osta.“ „Ég vann líka einu sinni í kjöt- borðinu í Kaupfélagi Austur-Skaft- fellinga við að skammta kjötfars. Það sumarið var ég að bíða eftir síldinni. Ætlaði að verða rík og fara í nám til Ameríku. Ég ætlaði að læra erfðafræði í Ameríku og var komin með umsóknarpappírana og allt klárt. En síldin kom ekki og ég fór suður og fór að skoða kennsluskrána og hugsaði með mér að kannski ég ætti ekki að verða vísindamaður og valdi lögfræðina, það var algjör skyndiákvörðun,“ segir Sigríður frá. Guðmundur Karl tók líka skyndi- ákvörðun á sama tíma. „Ég fór í háskólann í bókmenntafræði. Ég og vinkona mín vorum nýkomin úr leikferðalagi með stúdentaleik- húsinu. Við höfðum sýnt rokksöng- leikinn Ekkó – guðirnir ungu um allt land, fimmtíu sýningar. En vorum auralaus. Rukum upp í háskóla og völdum okkur einhver fög. Grenj- uðum okkur inn. Ég skráði mig í bókmenntafræði. En ég var bara einn vetur, í rauninni bara til að fá Það þurfa allir að ganga þessa gleðigöngu „Ég myndi segja að við værum mjög lík. Ég er örugglega ívið hvatvísari og kaldhæðnari,“ segir Guðmundur Karl. „Já, ég er kannski eitthvað aðeins jarðbundnari,“ segir Sigríður og Guðmundur Karl tekur undir það. Þau systkinin eru góðir vinir og eiga það sameiginlegt að vera samkynhneigð. Þau segja hátíðahöld Hinsegin daga mikilvæg þó að margt hafi áunnist. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN. Systkinin Sigríður og Guðmundur Frið- jónsbörn segja margt hafa áunnist í bar- áttu hinsegin fólks. námslán. Ég fór svo seinna í listnám í Bandaríkjunum og Kanada,“ segir Guðmundur Karl. Sigríður og Guðmundur Karl eru bæði ánægð með það hvert skyndi- ákvarðanir á yngri árum hafa leitt þau. „Ég er að vinna í móttökuteymi sem tekur á móti fólki. Ég hef starfað við þetta í tvö ár. Þetta getur tekið á. Maður hefur auðvitað samúð með fólki og getur oft ekki ímyndað sér þær aðstæður sem fólk kemur úr. Við búum við svo mikil forrétt- indi hér,“ segir Guðmundur Karl. „Maður hefur talað við fólk sem kemur þaðan sem samkynhneigð er dauðasök.“ Eruð þið lík að eðlisfari? „Já, ég myndi segja að við værum mjög lík. Ég er örugglega ívið hvat- vísari og kaldhæðnari,“ segir Guð- mundur Karl. „Já, ég er kannski eitthvað aðeins jarðbundnari,“ segir Sigríður og Guðmundur Karl tekur undir það. „Hún ígrundar hlutina betur en ég. Við segjum samt hvort öðru alls ekki fyrir verkum. Við erum tengd mjög sterkum böndum og erum lík að eðlisfari,“ segir hann. Þau hafa tekið þátt í Hinsegin dögum og gleðigöngunni og segja hátíðahöldin mikilvæg. „En maður hefur dregið sig í hlé, nú þegar maður fær ekki alla athyglina. Nú er enginn maður með mönnum nema hann sé trans,“ segir hann og brosir út í annað. „Það er eðlilegt að umræðan sé þarna núna. Við erum bara orðin gamaldags,“ segir Guðmundur Karl. „Hátíða- höldin eru mikilvæg, það bætist alltaf fólk í hópinn. Það þurfa allir að ganga þessa gleðigöngu. Gleði- og þrautagöngu, en þetta er nú lítil þrautaganga lengur. Sem betur fer,“ segir hann. Þau segja margt hafa áunnist í bar- áttu fyrir réttindum hinsegin fólks. Og réttindabaráttan gjörbreytt að auki. „Við gamla fólkið skiljum þetta ekki en getum flett þessu upp. Sam- tökin gáfu út orðabók sem er hægt að styðjast við. En við erum reyndar ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA SVO MIKILL PÓLITÍSKUR RÉTTRÚNAÐUR AÐ FÓLK MEGI EKKI TJÁ SIG. ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA EINHVER HALLELÚJA STEMNING. Sigríður MAÐUR SKÝLDI SÉR BARA Á BAK VIÐ EITÍS TÍSKUNA, FLAUT ÚT ÚR SKÁPNUM Í PILSI MEÐ FJÓLUBLÁAN VARALIT. Guðmundur Karl ekkert gömul! Hlutirnir hafa bara breyst hratt á stuttum tíma,“ segir hann. „Fyrir ekkert rosalega mörgum árum þótti hommum og lesbíum tvíkynhneigð hálfgerð svik. Það væri bara ekkert til. Þessu fleygir fram. Og þegar ég var ung þá mátti ekki auglýsa böll fyrir samkynhneigða í útvarpi. Samfélagið hefur svo sann- arlega gjörbreyst,“ segir Sigríður. „Nú veður þetta bara uppi!“ segir Guðmundur Karl. Þeim þykir hátíðin hafa breyst. „Gammósíukerlingarnar í Breið- holtinu eru svolítið búnar að taka Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.