Fréttablaðið - 11.08.2018, Page 59

Fréttablaðið - 11.08.2018, Page 59
Yfirvaktstjóri við Salalaug Salalaug er staðsett við Versali í salahverfi Kópavogs. Sundlaugin var formlega opnuð á sumardaginn fyrsta árið 2005. Þar eru sundlaugar úti og inni ásamt heitum pottum, gufubaði og rennibraut. Hjá lauginni starfa rúmlega tuttugu manns, við þjónustustörf, þrif og öryggisgæslu. Nánar um starfið Yfirvaktstjóri er undirmaður forstöðumanns sundlaugar og er jafnframt staðgengill forstöðumanns. Yfirvaktstjóri gengur vaktir og sér um ýmis rekstrartengd mál svo sem pantanir, mönnun á vaktir o.s.frv. Yfirvaktstjóri er yfir- maður almennra starfsmanna á sinni vakt. Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfalli. Menntunar og hæfniskröfur Gerð er krafa um eftirfarandi hæfni: - Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. - Ríka þjónustulund og lausnarmiðaða hugsun. - Frumkvæði, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð. Menntun: - Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið námi sem nýtist í starfi. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt samningi Starfsmannafélags Kópavogs og Launanefndar sveitafélaga. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2018. Frekari upplýsingar Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Halldórsson í síma 570-0485 eða í gegnum netfangið gudmundur.h@kopavogur.is . Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is kopavogur.is Hefur þú brennandi áhuga á börnum og barnamenningu? Norræna húsið auglýsir eftir bókasafns- og upplýsingafræðingi Bókasafn Norræna hússins er einstakt almennings- bókasafn með safnefni á sjö tungumálum, barnabókasafn og artótek með norrænum grafíkverkum. Bókasafnið hóf starfsemi árið 1969, ári eftir að húsið var vígt. Sérstaða safnsins er að þar er eingöngu að finna bókmenntir á norðurlandamálunum eftir norræna höfunda en þó ekki á íslensku nema þýðingar yfir á annað norðurlandamál. Í safninu eru skáldsögur og fræðibækur fyrir börn og fullorðna, tímarit, dagblöð, hljóðbækur og rafbækur. Bókasafnið vinnur náið með verkefnastjórum Norræna hússins og skipuleggur bókmenntaviðburði eins og Höfundakvöld og Sögustundir. Hæfniskröfur scient. í upplýsingafræði eða sambærileg menntun ásamt kunnáttu í ensku og íslensku ásamt hæfni til að tjá sig í ræðu og riti unglingum - kvæmd færni til að nýta þá í starfi Helstu verkefni allt frá vikulegum sögustundum til stórra alþjóðlegra viðburða heimsóknum í Norræna húsið barnaefni á öllum norrænu tungumálunum Barnahellirinn, sé ávallt í stakk búinn að taka á móti litlum og stórum gestum Við bjóðum hluti hóps sem einbeitir sér að því að kynna og koma á framfæri norrænum bókmenntum og menningu ásamt því að varða leið safnsins inn í stafræna framtíð. Starfið er sveigjanlegt og skapandi þar sem við vinnum sjálfstætt sem og í hóp og höfum möguleika á að bæta og efla þekkingu okkar og kunnáttu. Starfshlutfall er 80%. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst og skal sækja um starfið á heimasíðu Norrænu ráðherra- nefndarinnar www.norden.org ingarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn skal vera á dönsku, sænsku eða norsku. Ráðið er í starfið til fjögurra ára með möguleika á framlengingu á samningi önnur fjögur ár skv. reglum Norrænu ráðherranefndarinnar. Upplýsingar um starfið veita Erling Kjærbo erling@nordichouse.is og Þórunn Stefánsdóttir thorunnst@nordichouse.is Nánari upplýsingar um húsið er að finna á www.norraenahusid.is Norræna húsið var opnað 1968 og er menningarstofnun sem rekin er af Norrænu ráðherranefndinni. Markmið Norræna hússins er að hlúa að og styrkja menningartengsl milli Íslands og hinna Norðurlandan- na. Frá upphafi hefur Norræna húsið markað sér sérstöðu í íslensku menningarlífi, oft með því að hafa frumkvæði að og skipuleggja mar- gvíslega menningarviðburði og sýningar. Árlega koma um 100.000 gestir í húsið sem er eitt af meistaraverkum finnska arkitekts- ins Alvars Aalto. Í ár fagnar Norræna húsið 50 ára starfsafmæli. Borgarbókasafnið | Verkefnastjóri stafrænnar þróunar Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Viltu taka þátt í að móta stafræna framtíð nýja bókasafnsins? Inngangur: Laus er til umsóknar 100% staða verkefnastjóra stafrænnar þróunar hjá Borgarbókasafninu. Borgarbókasafnið hefur markað sér metnaðarfulla framtíðarsýn og miklar breytingar eru í farvatninu, jafnt í miðlun sem og þjónustu við gesti. Verkefnastjóri heyrir undir þróunar- og þjónustudeild og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins og hefur frumkvæði að og umsjón með þróun stafrænnar þjónustu hjá safninu Verkefnastjóri tekur virkan þátt í framkvæmd og þróun verkefna er tengjast stefnumótun Borgarbókasafnsins og því breytingaferli sem almenningsbókasöfn ganga nú í gegnum. Næsti yfirmaður er deildarstjóri þróunar- og þjónustu. Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. október 2018. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir deildarstjóri, netfang: gudrun.lilja.gunnlaugsdottir@reykjavik.is, s. 698 2466. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2018. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Helstu verkefni og ábyrgð: Verkefnastjóri leiðir alla vinnu við stafræna þróun og nýsköpun á sviði þróunar og þjónustu, bæði við viðskiptavini og samstarfsaðila. Hann stýrir þeim fjölmörgu þróunarverkefnum sem ætlað er að umbylta þjónustu í takti við breyttar áskoranir á starfs- sviði safnsins. Verkefnin eru fjölbreytt en eiga það sammerkt að styðja við og þróa nýjar áherslur með hliðsjón af samfélagslegum breytingum og tæknilegum framförum í stafrænni miðlun og rafrænni þjónustu með áherslu á upplifun notenda. Hæfniskröfur: - háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi - að lágmarki 3ja ára reynsla af verkefnastjórnun - að kunna að vinna með eða þekkja til notendamiðaðrar hönnunnar (design thinking) - áhugi á stafrænni framþróun og hæfni til að setja sig inn í nýja tækni - gott vald á upplýsingatækni og vefmiðlun, skilningur á gagnagrunnum og vefumsjónarkerfum - metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi - færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum - færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki - íslensku- og enskukunnátta sem nýtist í starfi og geta til að tjá sig í ræðu og riti, kunnátta í dönsku er kostur ATVINNUAUGLÝSINGAR 23 L AU G A R DAG U R 1 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 8
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.