Fréttablaðið - 11.08.2018, Side 80
Andrea Jónsdóttir h e f u r s t u n d u m verið kölluð rokk-amma Íslands. Hún e r þ j ó ð þ e k k t u r útvarpsmaður, sér
um þættina Popppressan á Rás 2 og
er plötusnúður á skemmtistaðnum
Dillon um helgar.
Andrea fékk Hina íslensku fálka-
orðu hinn 17. júní síðastliðinn. „Ég
varð mjög hissa þegar Örnólfur
Thorsson forsetaritari hringdi í mig
og tilkynnti mér þetta. Ég sagði: Ertu
ekki að grínast? Ég mætti svo gal-
vösk á Bessastaði með dóttur mína
og börnin hennar þrjú, Þórunni
systurdóttur mína og Gumma vin
okkar. Það var frábært fólk, góður
og blandaður hópur, sem fékk orð-
una, þar á meðal Árni Björnsson
þjóðháttafræðingur, sem kenndi
mér íslensku í MR, en þar byrjaði ég
árið 1965. Nú lentum við Árni hlið
við hlið á Bessastöðum og þá sagði
hann, sem mér þótti skemmtilegt:
Þetta áttum við eftir að gera saman.“
Andrea segist síst hafa átt von á
því að fá fálkaorðuna: „Ég lofa þér
að ég hef aldrei stefnt að því. En mér
finnst þetta mikill heiður og viður-
kenning á popptónlist. Dægurtón-
list þótti ekki merkilegur pappír
í gamla daga. Ætli það séu nema
tuttugu ár síðan fólk hætti að spyrja
mig hvort ég væri ekki að vaxa upp
úr þessu. En ég hef líklega fengið
fálkaorðuna af því að ég óx ekki upp
úr þessu.“
Andrea ólst upp á Selfossi ásamt
tveimur systrum, eldri og yngri,
og hálfbróður sem er elstur. Faðir
hennar var mjólkurbílstjóri í marga
áratugi og móðirin vann við versl-
unarstörf og var auk þess hin full-
komna húsmóðir að sögn Andreu.
Hún segist snemma hafa fengið
mikinn áhuga á tónlist. „Útvarpið
var alltaf opið í gamla daga og þá
var bara ein stöð, gamla Gufan, og
allir hlustuðu á allt. Líka bænda-
þáttinn. Spjallað við bændur held
ég að hann hafi heitið. Þegar ég var
fjögurra ára fóru foreldrar mínir í
ferðalag í Strandasýsluna með okkur
systurnar ásamt fleiri Selfyssingum.
Í rútunni var strákur þremur árum
eldri en ég og hann sagði mér ára-
tugum seinna að hann hefði hlustað
á mig syngja í sífellu: Ég vildi ég væri
hænuhanagrey.
Þegar ég varð eldri heillaðist ég
gjörsamlega af Bítlunum, eins og
heimsbyggðin öll. Það eru ekki allir
sem átta sig á því að Bítlarnir voru
svo miklu meira en bara tónlist.
Bítlarnir breyttu heiminum. Þeim
og popphreyfingunni sem kom í
kjölfarið fylgdi miklu meira frelsi
en áður hafði tíðkast og fólk hætti
að bugta sig og beygja fyrir yfirvaldi.
Ég varð yfir mig hrifin af Bítlunum,
las textana og velti þeim fyrir mér.
Frábær enskulærdómur.“
Spurð hvort hún eigi sér uppá-
halds Bítil segir hún: „Það var eigin-
lega amma mín sem valdi fyrir mig
árið 1965 eða 1966. Þá sá hún mynd
af George í blaði á eldhúsborðinu
hjá mömmu og sagði við hana: Þessi
stúlka er lík henni Andreu.“ Ég varð
upp með mér af samlíkingunni og
ákvað að eignast uppáhalds Bítil
eins og flestir aðrir. Annars elska
ég alla Bítlana. Besta hljómsveit í
heimi. Þeir eru frumkvöðlar á svo
margan hátt.“
Engin ástæða til að hætta
Andrea fór snemma í hlutverk
plötusnúðs þótt ekki fengi hún
borgað fyrir þá vinnu. „Á unglings-
árum fengum við systurnar plötu-
spilara sem pabbi lét kaupa í Nor-
egi og hátalarinn var í lokinu og
það var hægt að ferðast með hann.
Ég fór iðulega með plötuspilarann
og nokkrar plötur í partí og setti
á fóninn, strax þá komin í hlut-
verk plötusnúðs. Ég las mikið af
tón listar blöðum og tímaritum og
kynnti mér þennan kúltúr. Fylgdist
afskaplega vel með.
Seinna, 1971 minnir mig, vann
ég fyrst hjá útvarpinu við gerð tón-
listarþátta, sem er svosem eins og
að vera plötusnúður, fyrir utan
talið. Fimmtug datt ég svo óvænt
inn í nýtt djobb þegar ég varð
plötusnúður á Dillon. Það byrjaði
sem sjálfboðastarf því að enginn
á barnum nennti að skipta um
diska í spilaranum. Ég hef verið þar
síðan, árið í ár er nítjánda árið mitt.
Þetta er skemmtilegt starf og ég hef
Hef aldrei
komið út úr
skápnum
Andrea Jónsdóttir mætir vitanlega í gleði-
gönguna og segir viðtökur við henni endur-
spegla fordómaleysi þjóðarinnar. Hún lifir í
núinu og segist ekki vilja verða ung aftur.
„Ég er að verða sjötug, en sé enga ástæðu til að hætta.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN
ánægju af því að fara út og hitta fólk.
Einstaka sinnum geta gestir í Dillon
verið með leiðindi. Mjög sjaldan
samt. Það fer aðallega í taugarnar á
mér þegar fólk kemur og gagnrýnir
lag sem er í gangi en hefur svo enga
tillögu um annað. Ef viðkomandi
kvartar ítrekað set ég fótinn í hann,
það er ýti honum frá með fætinum.
Ég sit uppi á hillu við spileríið. Svo
fæ ég smá samviskubit eftir á. Ég er
að verða sjötug, en sé enga ástæðu
til að hætta. Það er frábært að fá
vinnu við að sinna áhugamáli sínu.
Mér finnst tónlist vera tvennt: list og
sagnfræði. Og tíska. Ekki má gleyma
henni. Þessi tónlistarheimur er
minn lífsstíll.“
Hvað með áfengi og fíkniefni,
hefurðu einhverja slæma reynslu af
slíku?
„Ég er afskaplega lélegur dópisti
og svo hef ég aldrei reykt. Ég segi
stundum í gamni að ég vinni við
að drekka. Það þýðir samt ekkert
að vera á skallanum, af því að sem
plötusnúður þarf maður að hafa
margt í huga í einu, t.d. finna lögin,
muna á hvaða geisladiskum þau
eru og vera fljótur að skipta og tala
við fólk á meðan. Ég er enn að nota
geisladiska sem þykir mjög gamal-
dags. Það er sem sagt eins gott að
vera sæmilega skýr í kollinum. Í
gegnum tíðina hef ég stundum
drukkið of mikið en maður lærir
að finna jafnvægi í þessu með aldr-
inum. Ég hef lært að drekka mjög
hægt.“
Árin á Þjóðviljanum
Andrea hefur ekki eingöngu unnið
við tónlist. Hún vann í rúman áratug
sem prófarkalesari á Þjóðviljanum.
„Ég hef ákaflega gaman af málfræði
og setningafræði og þess vegna
fannst mér alveg sérstaklega gaman
að vinna við prófarkalestur á Þjóð-
viljanum. Ég hefði kannski átt að
verða kennari, sem ég var reyndar
um tíma þegar ég kenndi ensku,
dönsku og félagsfræði við Iðnskól-
ann á Selfossi. Ég byrjaði á Þjóðvilj-
anum árið 1972, var að leysa Elías
Mar af. Það urðu straumhvörf í lífi
mínu eiginlega út af tilviljun. Svavar
Gestsson, sem var ritstjóri, var giftur
frænku minni, henni Nínu. Hann
vissi að ég var góð í íslensku og
hóaði í mig. Síðan kom í ljós að það
þurfti tvo prófarkalesara og þá var
ég fastráðin. Seinna vantaði ein-
hvern til að skrifa um tónlist og ég
fór að gera það meðfram,“ segir hún.
Aðspurð hvort hún, sem hefur
skrifað svo marga pistla um tónlist,
hafi skrifað skáldskap, segir hún: „Ég
var eitthvað að fikta við það mjög
ung. Ég er of nákvæm til að geta
orðið rithöfundur en ég get skrifað
frásagnir. Ég er mjög vandvirk í sam-
bandi við það sem ég skrifa og læt
frá mér.“
Andrea segist hafa unnið með
mörgum minnisstæðum einstakl-
ingum á Þjóðviljanum og minnist
rithöfundarins og vinar síns Elías-
ar Mars með mikilli hlýju. „Hann
kenndi mér og var afskaplega góður
við mig. Það var mjög gaman að tala
við hann um gamla daga og bækur
og rithöfunda því hann þekkti svo
marga. Hann var líka forvitinn um
nútímann og þar gat ég laumað
ýmsu að honum. Hann bjó einn
og svo varð það að venju að hann
borðaði hjá okkur á aðfangadag.
Við borðuðum hangikjöt þegar ég
eldaði, því að það er svo auðvelt á
annasömum degi að elda það, sýður
sig sjálft, og ég er reyndar góð í að
búa til jafninginn, hvítu sósuna,
sem er ómissandi með. En þáver-
andi sambýliskona mín, hún Lára,
eldaði fínustu steikur. Og allir fengu
möndlu í sinni jólagrautarskál, sem
stundum var ís.
Það ríkti mjög mikið frelsi á Þjóð-
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
ÉG ER VINSTRI SINNUÐ
JAFNAÐARKONA. MIS-
SKIPTING AUÐS ER GLÆP-
UR OG EKKERT ANNAÐ.
BARÁTTAN SNÝST UM
RÉTTLÁTA SKIPTINGU
ÞESSA AUÐS.
1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð