Fréttablaðið - 11.08.2018, Side 84

Fréttablaðið - 11.08.2018, Side 84
Rithöfundurinn Phi-lip Reeve er fæddur í Bright on á Englandi 1966. Hann er eins enskur og hugsast getur, hæglátur og hógvær en léttur og afslappaður eins og rauðu Converse-strigaskórnir sem hann skartar þegar hann tekur á móti blaðamanni. Hann er á heimleið, ásamt eigin- konu og syni, eftir vikudvöl á Íslandi og óhætt er að segja að hann hafi hrif- ist af landinu sem reyndist þegar á hólminn var komið vera hans æsku- draumaland. „Konan mín er ljósmyndari og hana hefur mjög lengi langað að koma til Íslands. Hún hefur mjög gaman af því að taka landslags- myndir og núna höfðum við loksins tíma og peninga til þess að láta verða af þessu,“ segir Reeve og hlær. „Við erum búin að keyra um land- ið og ég held að hún hafi náð ansi góðum myndum. Við komum við á öllum helstu stöðunum og vorum alltaf að stoppa við staði sem vöktu athygli okkar.“ Reeve segist sem barn hafa teiknað og skrifað mikið þannig að krókur- inn beygðist snemma. „Þetta var það sem mér fannst skemmtilegast að gera.“ Hann hóf feril sinn sem mynd- skreytir en endaði með að setja alla sína orku í leik að orðum og hug- myndum. „Það er svo í gegnum mynd- skreytingarnar sem ég lærði inn á bókaútgáfubransann og freistaði þess að hasla mér völl þar.“ Reeve fékkst einnig við kvikmyndagerð þegar hann var yngri og segir skrif sín þannig óhjákvæmilega vera mjög myndræn. Textinn sprettur oftar en ekki upp úr myndum í höfði hans og „svo er ég alltaf að klippa og endurklippa í hug- anum þegar ég skrifa bækur“. Ekkert Harry Potter-ævintýri Mortal Engines-bókaflokkurinn telur fjórar bækur. Sú fyrsta kom út 2001 og núna, sautján árum síðar, er hún að verða að kvikmynd sem allt bendir til að muni verða einn helsti smellur þessa árs. Leikstjórinn Peter Jackson, sem gerði garðinn frægan með mynda- bálkunum um Hringadróttins sögu og Hobbitann framleiðir myndina og gangi allt eftir mun hann án efa kvikmynda hinar bækurnar þrjár, enda nánast búinn að sérhæfa sig í að koma löngum fantasíubókmenntum á filmu. „Ég var lengi að skrifa Mortal Eng- ines og það tók langan tíma að fá hana útgefna. Í raun eru 25 ár síðan ég byrj- aði að vinna með þessa hugmynd.“ Og gekk sem sagt frekar illa að fá útgefendur til þess að veðja á hana? „Já og nei. Ég skrifaði hana fyrst sem vísindaskáldskap fyrir full- orðna og sendi handritið á nokkra útgefendur en enginn þeirra sýndi nokkurn áhuga. Þá stytti ég hana, endurskrifaði og sendi á barnabóka- útgefanda sem samþykkti hana eigin- lega um leið. Þannig að þannig lagað var mjög auðvelt að fá hana útgefna en ég eyddi miklum tíma í að finna henni réttan farveg.“ Bókin náði nægum vinsældum til þess að Reeve gat alfarið helgað sig ritstörfum og skrifað framhalds- bækurnar þrjár. „Þetta var enginn smellur á borð við Harry Potter en gerði mér kleift að gerast rithöfundur í fullu starfi og ég hef verið það allar götur síðan.“ Hollywood tekur við sér Og síðan bankar bara Hollywood upp á? „Já, og það gerðist hægt. Þetta er svo flókið ferli. Peter Jackson tryggði sér kvikmyndaréttinn fyrir eitthvað um tíu árum síðan og síðan gerðist ekki neitt. Ég heyrði ekkert í tíu ár og hélt að þetta hefði bara gleymst. Eins og gerist með margar bækur sem aldrei verða að kvikmynd. Ég hef selt kvikmyndaréttinn á Hugurinn fór á flug í íslensku landslagi Enski rithöfundurinn Philip Reeve stendur á barmi heimsfrægðar þar sem stórmynd byggð á Mortal Engines er væntanleg. Hera Hilmarsdóttir fer með eitt aðalhlutverkanna og Reeve lýsir henni sem „frábærri“ og „mjög einbeittri“ leikkonu í einkaviðtali við Fréttablaðið. Í fjarlægri fram- tíð eru borgir orðnar hreyfan- legar og berjast um lífsafkomu í hröðum heimi á hjólum. Þegar London eltir uppi lítinn smábæ er ungum sagn- fræðinema, Tom, fleygt út í auðnina. Þar kynnist hann hættulegri flótta- konu, Hester Shaw, en óvænt og nánast þvingað bandalag þeirra gæti breytt framtíðinni. Mortal Engines kemur út í íslenskri þýðingu um mánaðamótin. Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is Philip Reeve og eiginkonu hans hafði lengi langað að koma til Íslands. Þau létu verða af því í sumar og voru ekki svikin enda upplifði rithöfundurinn æskudraumaland sitt fleiri bókum og venjulega gerist ekk- ert meira eftir það. Ég taldi að þessu væri eins farið með Mortal Engines en síðan hafði Jackson samband fyrir nokkrum árum og sagðist vera að fara með þetta í framleiðslu.“ Ekkert bendir til annars en að Jack- son og leikstjórinn hans, Christian Rivers, séu við það að töfra fram stórbrotna ævintýramynd sem mun nánast örugglega slá í gegn á heims- vísu. Hefur þetta breytt einhverju fyrir þig hingað til? „Í rauninni ekki. Ég hef bara haldið áfram eins og venjulega. Ég hef enga beina aðkomu að þessu verkefni og þeir gera þetta bara á sinn hátt. Þannig lagað hefur þetta ekki haft nokkur einustu áhrif á líf mitt. En ég geri ráð fyrir að það komi að því eftir að myndin kemur út,“ segir Reeve kíminn. Spennan í kringum myndina er orðin töluverð og stigmagnast eftir því sem frumsýningin færist nær og fleiri sýnishorn úr henni birtast. „Ó, það er gott.“ Verðurðu ekkert var við þetta? „Kannski upp að vissu marki en ég hef dálítið dregið mig út úr þessum samfélagsmiðlaheimi vegna þess að þetta er að verða frekar mikið og margt sem fólk vill fá að vita. Sem er í grunninn ósköp ánægjulegt en þetta getur orðið svolítið yfirþyrmandi og truflandi.“ Betra en hann þorði að vona Reeve fylgdist með tökum á mynd- inni á Nýja-Sjálandi síðasta sumar og lét í kjölfarið hafa eftir sér að honum hefði þótt mikið til leikaranna koma og að „flest leit meira eða minna út eins og ég hafði séð það fyrir mér, fyrir utan þá hluta sem litu jafnvel betur út“. Er samt ekki undarlegt að sjá hug- myndir þínar raungerast svona? „Jú, það er undarleg lífsreynsla en þetta var frábært og heillandi hvernig hugað er að hverju einasta smáatriði. Maður kemst upp með að vera miklu óljósari í skáldskapnum. Eða maður neyðist eiginlega til þess, annars yrðu bækurnar alveg skelfilega langar.“ Veistu hvað vakti áhuga Jacksons á því að kvikmynda Mortal Engines? „Ég hef hitt hann nokkrum sinnum og við höfum rætt þetta aðeins og ég held að það sem hafi helst heillað hann sé þessi möguleiki á því að skapa nýjan heim. Eins og hann gerði auðvitað með The Lord of the Rings- myndunum. Ég held að hjá honum liggi aðdráttar aflið í því að byggja upp frá grunni heim sem er frábrugðinn okkar eigin en samt svipaður að ein- 1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.