Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 18

Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 18
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is „Fermingin var hér áður fyrr miklu stærri áfangi en við, sem þekkjum bara kransakökuferm- ingarnar, getum nokkurn tíma gert okkur grein fyrir,“ segir Sól- veig Ólafsdóttir sagnfræðingur. Sólveig  vinnur með Sigurði Gylfa Magnússyni, prófess- or í sagnfræði, að því að gefa út bók með þurfamannaskránni frá 1902. „Þetta er mjög ítarleg og ná- kvæm skrá um alla sem skráðir voru þurfamenn; börn, fullorðna og fjölskyldur. Sigurður Gylfi bað mig um að leita að sögunum á bak við nöfnin,“ segir Sólveig sem fór á stúfana og reyndi að rekja slóðir fólks sem nefnt er í manntölum og öðrum opinberum heimildum. „Ég leitaði sér í lagi eftir upplýsingum um börn á fermingaraldri. Þá kom í ljós að í biskupsskjalasafninu liggur gífurlegt magn af undan- þágubeiðnum frá prestum og pró- föstum til handa börnum sem ekki höfðu náð fermingaraldri á ferm- ingardaginn.“ Sólveig upplýsir að hefði barn ekki náð 14 ára aldri á fermingar- daginn, sem iðulega var að vori, þurfti það að bíða í heilt ár eftir að fermast, og það þó ekki vantaði nema nokkrar vikur upp á að þess- um aldrei væri náð. „Það þýddi að barnið var heilt ár á framfæri for- eldra eða hreppsins til viðbótar.“ Því var oft gripið til þess að senda undanþágubréf til biskups. „Bréfin eru öll dálítið keimlík og mjög formleg. Þeim fylgir umsögn um hvað börnin kunna, hvernig þau haga sér, hvort þau eru sið- prúð, hvað þau hafa lært og þá er sérstaklega tilgreint ef þau eru af fátækum komin,“ segir Sólveig en aðalástæða fyrir flestum beiðn- unum var sú að fermingarbörnin þyrftu að komast sem fyrst á eigin framfærslu vegna fátæktar. „Stundum kemur fram ef þau hafa lent í einhverju. Til dæmis er ég með bréf frá árinu 1881 frá Görðum á Akranesi þar sem er verið að biðja um undanþágu fyrir þrjú börn. Þar segir að þau hafi öll síðastliðinn veturinn notið kennslu barnaskóla, séu nokkurn veg- inn skrifandi og hafi numið ein- hvern reikning. Einkum er mælt með einum dreng þar sem missti föður sinn um veturinn og átti móður bláfátæka sem átti mörg börn önnur í ómegð,“ segir Sól- veig en tilgangurinn var vitanlega að losa hreppinn undan drengnum svo hann gæti séð fyrir sér sjálf- ur. „Þar sem þetta er á Akranesi var líklega eina leiðin fyrir þenn- an dreng að fara beint á sjóinn og jafnvel var hann þegar byrjaður, það vitum við ekki.“ Sólveig segir auðvelt að lesa á milli línanna í bréfunum hversu hræðilega fátæk og umkomulaus íslenska þjóðin hafi verið á síðustu áratugum nítjándu aldar. „Foreldr- ar þurftu að láta börnin frá sér, til dæmis í vist, vegna ómegðar, fá- tæktar og til að létta á fjölskyldu og foreldrum. Þarna var blákalt verið að koma þessum tæplega fjórtán ára börnum út á vinnu- markaðinn.“ Sólveig segir dreifingu bréf- anna jafna um allt landið og sama megi segja um kynjahlutfallið. „Undanþágubeiðnirnar voru sam- þykktar í flestum tilvikum en alls ekki alltaf. Það eru til dæmi þess að biskup hafni undanþágu þar sem hann taldi börnin ekki tilbú- in, til dæmis vegna þess að þau kunnu ekki nóg.“ Sólveig segir þessar heimildir afar áhugaverðar. „Ég á eftir að skoða þær mun betur en ég held að þessi bréf muni geta sagt okkur heilmikið um lífshlaup fólks á nítj- ándu öld.“ solveig@365.is fermingin skipti oft sköpum á 19. öld Talað er um að fermingarbörn komist í fullorðinna manna tölu. Þó þetta séu orðin tóm í dag skipti fermingin miklu máli síðla á nítjándu öld því hún þýddi að börnin gátu séð fyrir sér sjálf. Töluverður fjöldi undanþágubréfa barst biskupi þar sem óskað var eftir að börn fengju að fermast þó þau hefðu ekki náð fjórtán ára aldri. Sólveig ólafsdóttir sagnfræðingur hefur gluggað í þessi bréf og komist að ýmsu. mikilvægt var fyrir fátæk heimili að börnin gætu sem fyrst komist í vist annars staðar. mynd/Hag Sólveig ólafsdóttir sagnfræðingur kynnti sér undanþágubréf sem send voru biskupi þar sem óskað var eftir að börn mættu fermast þó fermingaraldri væri ekki náð. mynd/anton brink foreldrar þurftu að láta börnin frá sér, til dæmis í vist, vegna ómegðar, fátæktar og til að létta á fjölskyldu og foreldrum. Sólveig Ólafsdóttir 100% náttúruleg fegurð Hver er þinn UPPÁHALDS? ferming kynningarblað 23. febrúar 20162

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.