Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 20
Í Lindakirkju í Kópavogi koma
átta starfsmenn að ferming-
arfræðslunni í ár en grunná-
hersla hennar er sem fyrr að
vekja áhuga á þeim gildum, iðk-
unum og loforðum sem krist-
in trú byggir á, að sögn Guðna
Más Harðarsonar, prests í Linda-
kirkju. „Það þýðir að við erum
öll jafn mikilvæg í augum Guðs,
óháð kennitölu, kyni, kynþætti,
kynhneigð, menntun, stétt eða
áhugasviðum. Jafnframt erum
við öll einstök, með hæfileika
sem við eigum að nota öðrum til
blessunar.“
Í fermingarfræðslunni í
Lindakirkju er auk þess reynt að
undir strika mikilvægi þess að
koma trúnni í verk og gera eitt-
hvað skapandi, að sögn Guðna.
„Þannig hefur séra Sveinn gert
klippi listaverk með krökkun-
um út frá trúarjátningunni. Þau
fá að sýna þakklæti með því að
velja einstakling, sem er þeim
hjartfólginn, og skrifa þakkar-
bréf til hans. Við frímerkjum
bréfin sem sá birtu og yl þegar
þau birtast óvænt í póstinum. Á
haustin ganga síðan fermingar-
börn um allt land í hús og safna
fyrir verkefnum Hjálparstarfs
kirkjunnar í Eþíópíu og sýna
þannig náungakærleik í verki.“
Breyttar aðferðir
Ýmislegt breytist með árunum í
kirkjum landsins þegar kemur að
fermingarfræðslu og er Linda-
kirkja engin undantekning.
„Guðmundur Karl sóknarprest-
ur lagði til að við myndum af-
nema skyldumætingar í messu
en þess í stað hafa aðra hverja
fermingar fræðslustund byggða
á söng og helgistund. Þetta hefur
sannað gildi sitt þó ég sjálfur
hafi verið efins í fyrstu! Söng-
urinn stuðlar að samkennd en
Áslaug Helga, tónlistarkennari,
sálmaskáld og djákni í Linda-
kirkju, leiðir sönginn og hríf-
ur krakkana með. Það að sækja
kirkju má ekki vera kvöð. Mess-
urnar þurfa að vera þannig að
fólk vilji sjálft koma en ekki bara
til að fá mætingarstimpil.“
Kennsluefnið sjálft tekur líka
breytingum. „Sem dæmi er ástin
og kynlíf nú kafli í fermingar-
fræðslubókinni, við sýnum tón-
listarmyndbönd sem fjalla um
trú og svo er kominn sérstak-
ur fermingarfræðsluvefur. Upp-
lýsingabyltingin, fjölmenning-
in og samfélagsmiðlarnir hafa
opnað fleiri sjónarhorn. Það að
fermast í kirkju án þess að velta
fleiri möguleikum fyrir sér er
liðin tíð. Yfirleitt hafa ferming-
arbörnin farið í gegnum það með
foreldrum sínum hvaða leið þau
vilja fara. Þau sem velja kirkjuna
eru staðfastari í að trúin og hin
kristnu gildi skipti máli.“
Áhugasamari en áður
Aðspurður hvort unglingar í dag
velti mikið fyrir sér kristinni trú
eða hvort gjafirnar heilli meira,
rifjar Guðni upp atvik sem átti
sér stað í Lindakirkju þegar
hann hafði nýhafið störf í miðju
bankahruni árið 2008. „Tveir
drengir löbbuðu inn í fræðsluna
þegar annar spyr: „Hérna, ert þú
að fermast út af trúnni eða pen-
ingunum?“ Hinn svaraði stór-
hneykslaður: „Auðvitað trúnni,
það er ekkert hægt að ferma sig
lengur út af peningum, það er
komin kreppa!“ Ég upplifi ung-
linga velta öðrum trúarbrögum
og lífi með eða án trúar fyrir sér
og held að þeir séu allajafna ein-
lægir í leit sinni að æðri tilgangi.
Mörg þeirra tala einnig af þakk-
læti um þau sem fóru með bænir
með þeim fyrir svefninn þegar
þau voru lítil.“
Unga fólkið í dag er bæði
áhugasamara og óhræddara við
að spyrja, að mati Guðna. „En í
grunninn held ég þetta sé eins og
áður. Þau eru að upplifa spenn-
andi tíma þar sem margt er að
breytast og mótast, og bæði
vonir en líka áhyggjur eru að
kvikna. Þar vona ég að kirkjunni
takist að sýna að hún stendur
með fólki jafnt í gleði sem sorg.“
starri@365.is
Kirkjusókn má
alls ekki vera kvöð
„Upplýsingabyltingin, fjölmenningin og samfélagsmiðlarnir hafa opnað fleiri sjónarhorn,“ segir Guðni Már Harðarson,
prestur í Lindakirkju í Kópavogi. MYND/ANTON BRINK
Ég upplifi unglinga
velta öðrum trúarbrög-
um og lífi með eða án
trúar fyrir sér og held að
þeir séu einlægir í leit
sinni að æðri tilgangi.
Guðni Már Harðarson
ALLT AÐ
RAKA AUKNING EFTIR
EINA NOTKUN.
Varðveitir rakann og
gefur aukinn ljóma
dag eftir dag.
Stöðug rakagjöf í 8 tíma.
Útsölustaðir: Hagkaup Kringlunni, Lyfju Smáratorgi, Neskaupsstað og Keflavík, Árbæjarapotek, Garðsapótek,
Apotek Siglufjarðar, Stjörnusól, Snyrtistofan Hilma, Snyrtistofan Arona, Snyrtistofan Abaco, Snyrtistofan Fagra,
Snyrtistofan Wanita, Snyrtistofan Dekurdís og Hárgreiðslustofan Flikk.
Frískleg og ljómandi
fyrir ferminguna
Fæst á Academie snyrtistofum, flestum verslunum Lyfju
og í Hagkaup Kringlunni, Smáralind og Skeifunni.
Bronz´express
Brúnkuvökvi sem virkar strax og gefur
einstaklega fallegan og náttúrulegan lit.
Hentar öllu húðtegundum.
Grunnáherslan í
fermingarfræðslunni í
Lindakirkju í Kópavogi
snýr að því að vekja
áhuga á þeim gildum,
iðkunum og loforðum
sem kristin trú byggir á.
Upplýsingabyltingin,
fjölmenningin og
samfélagsmiðlarnir hafa
opnað fleiri sjónarhorn
en voru áður.
feRMING Kynningarblað
23. febrúar 20164