Fréttablaðið - 23.02.2016, Page 25
Um 2.500 fermingarbörn í 66
sóknum um allt land gengu í hús
dagana 2. til 6. nóvember á síðasta
ári og söfnuðu rúmlega 7,7 millj
ónum króna fyrir vatnsverkefni
Hjálpar starfs kirkjunnar í Eþíópíu.
Þetta er sautjánda árið í röð sem
slík söfnun fer fram en frá árinu
1998 hafa íslensk fermingarbörn
safnað um 104 milljónum króna til
verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar.
Áður en söfnunin hófst fengu
fermingarbörnin fræðslu um mikil
vægi þess að hafa aðgengi að
hreinu vatni og um aðstæður
fólks sem býr við vatns
skort. Börnin fræddust
um leið um árangur af
verkefnum Hjálpar
starfs kirkjunn
ar og sáu
hvernig
hægt er að
safna rign
ingarvatni
og grafa
brunna sem
gjörbreyta
lífinu til hins
betra.
Söfnunin
gefur ferm
ingarbörn
um kærkomið tækifæri til að bæði
láta til sín taka og gefa landsmönn
um möguleika til að leggja sitt af
mörkum til aðstoðar þeim sem búa
við erfið lífsskilyrði og mikla fá
tækt.
Safnað fyrir vatni
Ætlar þú að gera fallegar bollakök
ur fyrir fermingarveisluna? Hér er
uppskrift að ljúffengri köku, kremið
er hægt að lita eftir því hvað hentar
best á fermingarborðið.
Uppskriftin nægir í 10 kökur
240 g hveiti
280 g sykur
3 tsk. lyftiduft
Örlítið salt
½ tsk. vanillusykur
80 g smjör
2 egg
2 ½ dl mjólk
Krem
500 g flórsykur
80 g smjör
½ dl mjólk
1 tsk. vanillusykur
Litur að eigin vali
Hrærið saman hveiti, sykur, lyfti
duft, salt, vanillusykur, smjör, egg
og mjólk þar til blandan verður létt
og fín. Setjið í múffuform og fyllið
2/3 hluta. Bakið kökurnar neðst í ofni
við 175°C í 25 mínútur.
Blandið saman þurrefnum í
kremið. Bætið síðan mjólk og lit
saman við. Hrærið á miðlungs
hraða í hrærivél þar til blandan er
létt og fín. Sprautið kreminu með
rjómasprautu. Hægt er að skreyta
kökurnar með jarðarberi, kirsuberi
eða kökuskrauti.
Fallegar bollakökur
Blini með reyKtUm laxi
Rússneskar blinipönnukökur eru borðaðar
með kavíar. Þær eru þó ekki síður góðar með
reyktum laxi og sýrðum rjóma. Ólíkt venju
legum pönnukökum er notað lyftiduft í blini
auk þess sem í þær eru notað bókhveiti.
200 g bókhveiti
80 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
3,5 dl volg mjólk
2 egg
250 g brætt smjör
Bræðið smjörið og kælið svo niður þar til það
er volgt. Skiljið eggin og stífþeytið eggjahvít
ur. Hrærið volga mjólkina og eggjarauðurnar
saman við þurrefnin. Hrærið smjörið saman
við deigið. Bætið svo stífþeyttum eggjahvít
unum varlega saman við.
Hitið pönnukökupönnu á meðalhita og
setjið smávegis smjör á pönnuna. Í hverja
blini þarf um það bil tvær matskeiðar af deigi.
Snúið kökunum við þegar þær byrja að stífna.
Ofan á hverja blini má síðan raða þunnt
sneiddum reyktum laxi, sýrðum rjóma og
fersku dilli til skreytingar.
Uppskrift að blini-deiginu
er fengið af Vinotek.is
Gefðu sparnað
í fermingargjöf
Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst í útibúum Landsbankans. Kynntu þér sparnaðar-
leiðir fyrir fermingarbarnið á klassi.is.
Gjafakort Landsbankans er góð leið til að gefa sparnað í fermingar-
gjöf. Ef fermingarbarnið leggur 30.000 krónur eða meira í sparnað
hjá Landsbankanum greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag. Þannig
getur gjafakortið lagt grunn að góðum fjárhag.
Erna Sóley Eyjólfsdóttir
Klassafélagi og Karate–lærlingur
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Kynningarblað Ferming
23. febrúar 2016 9