Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.02.2016, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 23.02.2016, Qupperneq 46
„Þetta eru upplýsingar sem liggja ekki endilega á lausu og svara von- andi einhverjum af þeim spurn- ingum sem vakna hjá þeim sem standa í þessum sporum hverju sinni. Þá hef ég uppfært færsluna eftir föngum; bæði fyrir lesend- ur og sjálfa mig enda á ég eftir að ferma eitt barn til viðbótar.“ Dröfn var með ýmsa smárétti í veislunni enda er hún hrifnust af þeim. „Helsti ókosturinn er að þeir geymast illa og til að þurfa ekki að vera á haus dagana fyrir ferming- una ákvað ég að panta um það bil helming veislufanga en gera helm- inginn sjálf.“ Dröfn gerði meðal annars kjúklingaspjót og laxarúll- ur og féllst á að deila uppskriftun- um. Sömuleiðis uppskrift að asísk- um kjötbollum sem hún gerði fyrir aðra veislu en allt eru þetta tilvald- ir réttir á smáréttahlaðborð. „Svo er hægt að panta sushi, djúpsteikt- ar rækjur og fleira í þeim dúr á móti.“ vera@365.is KjúKlingaspjót í taílensKri grillsósu Um það bil 14 grillspjót með 4-5 bitum hvert 4 msk. Huntz tómatpúrra 4 msk. púðursykur 4 msk. Blue Dragon sojasósa 2 tsk. cumin (krydd) 2 tsk. saxað kóríander í krukku frá Blue Dragon 4 msk. Blue Dragon sweet chili sósa 5 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð smátt 1 dós Blue Dragon kókosmjólk (400 ml) 900 g kjúklingabringur frá Rose Poultry (líka hægt að nota kjúklingalundir en þær verða mjög meyrar og góðar). Grillspjót (tréspjót þarf að leggja í bleyti í 30 mínútur fyrir notkun) l Öllum hráefnunum í sósuna, fyrir utan hvítlauk og kókosmjólk, er blandað saman í pott. Á meðan suðan kemur upp er hrært stöð­ ugt í blöndunni þar til púðursyk­ urinn er búinn að leysast upp. Þá er hvítlauknum og kókosmjólkinni bætt út í pottinn og sósan látin ná suðu. Því næst er potturinn tekinn af hellunni og sósan látin kólna. l Kjúklingabringurnar eða lundirnar eru skornar niður í hæfilega stóra bita. Þeim er svo blandað saman við tæplega helminginn eða 2/3 af sósunni og sett í kæli í nokkr­ ar klukkustund­ ir, helst yfir nótt. Kjúklingabitarn­ ir eru því næst þræddir upp á grillspjót og þau grilluð við meðal­ háan hita í um það bil 10­12 mínút­ ur eða þar til kjötið er grillað í gegn – tíminn er breytilegur eftir grillum. l Það er líka hægt að grilla kjúk­ lingaspjótin í bakarofni við 225 gráður. Spjótin eru borin fram heit eða köld með restinni af heitri sósunni. Dröfn notaði spjót með flötum endum úr Þinni verslun. Hún segir gott að setja álpapp­ ír utan um endana á spjótun­ um á meðan þau eru grilluð því annars verða þau svört. Eins er hægt að stinga þeim í eftir á. laxarúllur 500-600 g reyktur lax 200 g rjómaostur (ég nota Philadelphia) 1 dós 18% sýrður rjómi 1-2 msk. piparrótarmauk (er yfirleitt geymt hjá kryddunum) Salt og pipar Ferskt dill, saxað smátt 5 burritos-pönnukökur l Rjómaosti, sýrðum rjóma og piparrótarmauki hrært saman. Bragðbætt með salti, pipar og fersku dilli. Kreminu er smurt fremur þykkt á burritos­ pönnukökurn­ ar, reyktur lax sneiddur þunnt og raðað þar ofan á. Pönnu­ kökunum rúll­ að þétt saman og pakkað þétt inn í plastfilmu. Rúllurnar geymdar í ísskáp í minnst hálftíma áður en þær eru skorn­ ar niður í hæfilegar þykkar sneiðar. asísKar Kjötbollur 900 g nautahakk 2 tsk. sesamolía 2,5 dl brauðmylsna 1 tsk. engifer (krydd) Salt & pipar 2 egg 3-4 hvítlauksrif, pressuð eða skorin smátt 1 búnt vorlaukur (hvíti hlutinn saxaður smátt – græni hlutinn geymdur) sósa 2 dl Hoisin-sósa 4 msk. hrísgrjónaedik (rice vinegar) 2 hvítlauksrif, pressuð 2 msk. sojasósa 1 tsk. sesamolía 1 tsk. engifer (krydd) l Sesamfræ og græni hlutinn af vor­ lauknum notuð til skreytingar. l Ofn hitaður í 200 gráður. Nauta­ hakkið er sett í skál ásamt kryddi, eggjum, brauðmylsnu, hvítlaukn­ um og vorlauk, blandað vel saman. Litlar bollur eru mótaðar úr hakk­ inu og raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír. Bakað í ofni við 200 gráður í um 10­12 mínútur eða þar til bollurnar eru tilbúnar. l Á meðan bollurnar eru í ofnin­ um er sósan útbúin. Öllum hrá­ efnunum í sósuna er blandað vel saman. Þegar bollurnar eru til­ búnar er þeim velt upp úr sós­ unni eða henni hellt yfir bollurn­ ar. Græni hlutinn af vorlauknum er saxaður og dreift yfir ásamt sesam fræjum. Uppfull af gagnlegum veislufróðleik Upplýsingafræðingurinn Dröfn Vilhjálmsdóttir hefur haldið úti matarblogginu Eldhússögur úr Kleifarseli síðastliðin fjögur ár. Sonur hennar, Vilhjálmur Jón Elfarsson, fermdist fyrir tveimur árum og setti hún inn ítarlega færslu um undirbúninginn og veisluna á bloggið í kjölfarið. Færslan hefur verið mikið lesin síðan og eykst umferðin sérstaklega á þessum tíma árs enda er þar að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar. nokkur gagnleg ráð frá Dröfn l Ég mæli með því að fólk velji ein­ föld fermingarkort, þ.e.a.s. ekki samanbrotin því margir hengja þau upp á ísskáp. Þar njóta þau sín betur einföld. l Mér finnst númer eitt, tvö og þrjú að geta notið dagsins og því er best að gera sem flest með góðum fyrirvara og velja veiting­ ar sem hægt er að frysta. Þeir sem hafa tök á geta pantað hluta veislufanga til að létta sér lífið. Þá er um að gera að biðja nákomna um aðstoð. l Ég mæli með því að hafa góðan tíma á milli athafnar og veislu til að geta klárað undirbúninginn í góðu tómi. l Ég mæli með því að fermingar­ myndirnar séu teknar fyrir ferm­ ingardaginn. Þá er hægt að stilla einni eða fleiri upp í veislunni. Fjölmörg önnur ráð er að finna á eldhussogur.com undir leitarorð- inu fermingarveisla. Laxarúllur eru tilvaldar á smáréttaborð. Dröfn segir mun hagstæðara að gera eigin kjúklingaspjót en að kaupa þau tilbúin. „Við vorum með 230 spjót og grilluðum þau að morgni fermingardagsins. Það tók ekki nema u.þ.b. klukkustund.“Kjötbollur fara vel á smáréttaborði. 10 heppnir sem versla frá 1. mars til 15. maí vinna miða á Justin Bieber. KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur iPad ölskyldan - Með heiminn í lófanum iPad Pro iPad Mini iPad Air Ferming Kynningarblað 23. febrúar 201630
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.