Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 51
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir viðskiptaaktívisti er öf lug í rekstri sem tengist
veganisma, en hún á heildsöluna
Veganmat, verslunina Vegan
búðina og veitingastaðinn Jömm.
Kapítalískt hugsjónastarf
Sæunn segist sjá neysluhyggjuna á jólum öðrum augum
eftir að hún varð vegan. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sæunn Ingibjörg segir að vegan hátíðarmatur sé mjög fjölbreyttur.
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir rekur Veganmat
ehf., Veganbúðina og Jömm og sinnir rekstrinum
með hugsjón veganisma að leiðarljósi. Hún segir
auðvelt að búa til vegan hátíðarmat fyrir jólin.
Þessi uppskrift að vegan hamborgarhrygg með oumph í stað
kjöts er þróuð af meðeiganda Sæunnar, Rósu Maríu Hansen.
Reksturinn er drifinn áfram af
hugsjónamennsku.
„Ég hætti að borða rautt kjöt
þegar ég var 17 ára, því ég var á
móti því að dýr væru drepin til
matar. Smám saman þróaðist
það. Fyrst varð ég grænmetisæta
og svo borðaði ég fisk í smá tíma
því mér var talin trú um að það
væri lífsnauðsynlegt,“ segir
Sæunn. „Fyrir sjö árum hlustaði
ég svo á hljóðbók eftir Kimberly
Snyder þar sem færð voru rosa
góð rök fyrir því að borða ekki
dýraafurðir. Síðan las ég bókina
The China Study og fattaði að það
væri misskilningur að fólk þyrfti
að borða dýraafurðir og þá varð
ég mjög skyndilega vegan, en ég
var í miðju kafi að borða uppá
halds mjólkursúkkulaðið mitt og
henti restinni og hef ekki litið til
baka síðan.
Í dag er ég mjög öfgavegan, mér
finnst bara ekki rétt að hagnýta
dýr,“ útskýrir Sæunn.
Stefndi í verðbréfamiðlun
Sæunn rekur Veganmat, Vegan
búðina og Jömm.
„Aðalstarfsemi Veganmatar ehf.
er heildsala og dreifing á vegan
mat í veitingahús og verslanir.
Veganbúðin uppfyllir alls konar
þarfir sem eru ekki komnar á
þann skala að eiga erindi í stór
verslanir, en þar fást alls kyns
sérhæfðari vörur,“ segir Sæunn.
„Jömm er svo skyndibitastaður og
vörulína í verslunum.
Ég ætlaði að verða verðbréfa
miðlari og bankakona og fór í
viðskiptafræði á fjármálasviði,
master í alþjóðaviðskiptum og
fékk löggildingu í verðbréfa
miðlun,“ segir Sæunn. „En það var
í miðju hruni, svo það gekk illa að
fá vinnu.
Ég fór því að vinna sem inn
kaupastjóri fyrir Nettó og Sam
kaup og lærði mjög mikið þar. Ég
tók við heilsuf lokknum og tók
þátt í að búa til heilsudagana sem
eru ennþá haldnir tvisvar á ári,“
segir Sæunn. „Eftir það varð ég
markaðsstjóri og seinna rekstrar
stjóri Gló. Þessi störf veittu mér
mikla reynslu og frábært tengsla
net til viðbótar við menntunina.
Vegan hugsjónin hefur alltaf
verið sterk í mér, en hún féll ekki
í kramið hjá öllum, sérstaklega
ekki á þessum tíma þegar vegan
isminn var margfalt fámennari
hreyfing,“ segir Sæunn. „Á end
anum ákvað ég því að nýta krafta
mína til að gera heiminn betri á
mínum eigin forsendum. Út frá
því hafa fæðst alls konar skrítnar
hugmyndir sem hafa virkað vel.
Þetta er hugsjónastarf byggt
á kapítalískri reynslu sem við
nýtum til að gera hlutina öðru
vísi,“ segir Sæunn. „Við förum
inn í framleiðslu og dreifingar
bransann og gerum allt á vegan
forsendum. Þó að aðalmarkmiðið
sé að bjarga dýrum sinnum við
öllum rekstrinum öðruvísi en
venjulega. Því veljum við starfs
fólk og samstarfsaðila vel og
leggjum okkur fram um að hafa
jákvæð áhrif og skilja við hlut
ina betri en þeir voru áður. Við
göngum lengra en að reyna bara
að hafa ekki slæm áhrif.“
Vegan Wellington í IKEA
Sæunn segir að vegan hátíðar
matur sé mjög fjölbreyttur.
„Það hefur verið klassískt að
hafa hnetusteikur í mörg ár,
en fólk er farið að breyta til og
Wellington hefur verið vin
sælt árum saman. Jömm fram
leiðir það núna, til að gera það
enn aðgengilegra fyrir fólk,“ segir
Sæunn. „Almennt borðar fólk
oftast hnetusteik eða einhverja
innpakkaða gourmet hnetu eða
baunarétti. Það er líka til jurtakjöt
í mörgum útgáfum og það getur
auðveldað fólki sem er vant kjöt
áti að breyta til.“
Sæunn mælir með Wellington
frá Jömm fyrir þau sem vilja prófa
sig áfram í vegan hátíðarmat. „Það
er svo auðvelt og víða til. Frá 21.
nóvember hafa áhugasöm líka
getað smakkað það í IKEA, en þar
er boðið upp á litlar útgáfur á jóla
matseðlinum,“ segir hún.
Jólin eru tími fyrir slökun
Sæunni þótti ekki erfitt að venjast
því að vera vegan um jólin.
„Það er ekki erfitt að gerast
vegan, það er bara f lókið í smá
tíma,“ segir Sæunn. „Aðal munur
inn á jólunum eftir að ég varð
vegan er að ég er orðin svo djúpt
sokkin í veganisma að ég er farin
að horfa allt öðrum augum á alla
neysluhyggju. Það tengist kannski
veganisma ekki beint, en þetta er
svipuð hugsun. Af hverju að eyða
upp náttúruauðlindum til að gefa
gjafir sem enginn þarf eða vill?“
Öll nánasta fjölskylda Sæunnar
er vegan. „Yfirleitt gerum við tvo
aðalrétti, höfum hlaðborð og alls
konar heimagert meðlæti,“ segir
Sæunn. „Ég hef ekki borðað það
sama tvenn jól í röð síðan ég varð
vegan en líklega borða ég Jömm
Wellington í ár, því ég hef tak
markaðan tíma.“
Á jóladag borðar Sæunn yfirleitt
afganga af jólasteikinni. „Okkur
finnst líka rosa gott að narta í eitt
hvað og verðum örugglega búin
að fylla ísskápinn af krydduðu
tófú og lúxusosti sem er gerður úr
kasjúhnetum og góðgerlum,“ segir
hún. „Hann fæst í Veganbúðinni
og við erum að panta hann í meira
magni núna til að geta dreift
honum í f leiri verslanir.“
Á gamlárskvöld er Sæunn
dugleg að prófa eitthvað nýtt.
„Það koma nýir vegan veislu
réttir í verslanir um hver jól og
það er gaman að smakka sem
f lest,“ segir hún.
En jólin snúast fyrst og fremst
um slökun hjá Sæunni.
„Uppáhaldið mitt við jólin er
rólegheitin og að gera verið heima
á náttfötunum án þess að það sé
sími eða tölvupóstur að truf la,
heldur er bara tími til að vera
með fjölskyldunni,“ segir hún að
lokum.
Við fengum Sæunni til að gefa
okkur uppskrift að vegan „ham
borgarhrygg“ sem meðeigandi
hennar, Rósa María Hansen,
þróaði.
VEGAN
HAMBORGARHRYGGUR
2 pokar Salty & Smokey Oumph!
½ rauðrófa soðin
½ sæt kartafla soðin
1-2 dl vatn
1 dl næringager
3 msk. púðursykur
1 msk. liquid smoke
3 tsk. salt
1 dl hveiti
5 dl glútenmjöl
Gljái ef vill:
1 dl púðursykur
1 dl pylsusinnep
Sjóðið sætu kartöf luna og rauð-
rófuna (ef ekki forsoðin).
Blandið Oumph! í matvinnsluvél
þar til það er alveg maukað (gott
að bæta út í 1-2 dl af vatni til að fá
áferðina sem besta).
Maukið sætu kartöf luna og rauð-
rófuna vel saman.
Blandið saman við Oumph!
maukið.
Bætið við salti, liquid smoke, nær-
ingargeri og púðursykri og blandið
vel saman.
Blandið glúteninu og hveitinu
saman við og hnoðið vel – gott er
að vera með hanska.
Mótið í fallegan hleif og vefjið inn
í álpappír.
Sjóðið i vatni með 3 tsk. af salti og
1 pilsner i 45-60 mín.
(Þetta er allt hægt að gera daginn
áður og geyma í kæli þar til bera á
fram matinn.)
Takið hrygginn upp úr pottinum
og færið yfir í eldfast mót eða ofn-
skúffu.
Bakið við 180 gráður í 20 mínútur.
Útbúið gljáa á meðan hryggurinn
bakast – hrærið saman púðursykri
og pylsusinnepi.
Takið hrygginn út, penslið gljá-
anum yfir og bakið í 30 mínútur til
viðbótar.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 930