Morgunblaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 1
þess vegna þarf að lækka hámarkshraða á köflum niður í 30 km
og ljósastýra umferð. Við það geta orðið tafir. Eftir að mal-
bikun lýkur verður umferð hleypt á Ölfusveg sem notaður
Starfsmenn ÍAV vinna að malbikun og lokafrágangi við breikk-
un Hringvegar frá Hveragerði að Kotstrandarkirkju. Vegna
framkvæmdanna þarf að beina umferðinni um nýja hjáleið og
hefur verið undanfarna mánuði. ÍAV er auk þess að setja niður
víravegrið, mála merkingar og setja upp skilti. Stefnt er að
opnun vegarins eftir endurbætur í lok mánaðarins.
Morgunblaðið/Eggert
Unnið að malbikun og lokafrágangi við breikkun vegarins
BJÖRGUM HEIMINUM
BLAÐAUKI UM NORÐURSLÓÐIR
F Ö S T U D A G U R 1 1. O K T Ó B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 239. tölublað 107. árgangur
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jin Zhijian, sendiherra Kína á Ís-
landi, segir opnun Daxing-flugvallar
í Peking fela í sér mikil tækifæri
fyrir íslenska ferðaþjónustu. Það
hafi staðið kínverskri ferðaþjónustu
fyrir þrifum að hafa aðeins einn al-
þjóðaflugvöll í Peking. Með nýja
flugvellinum megi efla millilanda-
flugið.
Zhijian bendir á að tíðni flugferða
milli Peking og Norðurlanda hafi
verið aukin. Þar sem kínverskir
ferðamenn heimsæki gjarnan nokk-
ur lönd í sömu ferðinni muni þessi
umferð skapa tækifæri á Íslandi.
Þá muni flug flugfélagsins Tianjin
til Íslands, með viðkomu í Helsinki,
verða lyftistöng fyrir ferðaþjón-
ustuna. Flogið yrði frá Wuhan og er
rætt um þrjár ferðir á viku.
Pétur Yang Li, viðskiptafulltrúi í
sendiráði Íslands í Peking, tekur í
sama streng og segir gríðarstóran
markað geta opnast íslenskri ferða-
þjónustu með því að gera Ísland að
tengistöð fyrir Kína á leið til
austurstrandar Bandaríkjanna.
Milljónir Kínverja fari þá leið á
hverju ári.
Styðja formennsku Íslands
Fjölmenn sendinefnd frá Kína
situr nú Hringborð norðursins.
Zhijian segir kínversk stjórnvöld
áhugasöm um að efla samstarfið við
Íslendinga á ýmsum sviðum. Meðal
annars sé horft til formennsku Ís-
lands í Norðurskautsráðinu. Þá vilji
kínversk stjórnvöld leggja lóð sitt á
vogarskálarnar í baráttunni gegn
loftslagsvánni og stuðla að friði og
sjálfbærri nýtingu auðlinda í norðri.
Spáir mikilli fjölgun
Pétur segir fjölgun kínverskra
ferðamanna byggða á grunni frí-
verslunarsamnings ríkjanna. Eigi
Ísland að vera tengistöð fyrir fjölda
kínverskra ferðamanna þurfi landið
að vera í stakk búið til þess.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir óvíst hversu
margir erlendir ferðamenn komi til
landsins á næsta ári. Kínverskir
ferðamenn vegi orðið þungt.
Eflir sóknina á Kínamarkað
Nýr alþjóðaflugvöllur í Peking talinn skapa tækifæri í íslenskri ferðaþjónustu
Bent á möguleika Íslands sem tengistöðvar Milljónir Kínverja fara yfir hafið
AFP
Í Peking Daxing-flugvöllur gæti
reynst aflvaki ferðaþjónustunnar. M Mikil tækifæri »11
Fyrirtækið
IMS ehf., sem
sérhæfir sig í að
varðveita og
selja sögulegar
myndir, hefur til
þessa skannað
inn um tvær
milljónir mynda í
Reykjavík og er
stór hluti þeirra
kominn í sölu.
Fyrirtækið hefur þegar afgreitt um
eina milljón mynda frá Daily Tele-
graph í Bretlandi. „Við erum núna
með samninga við Independent og
Svenska Dagbladet í Svíþjóð og
fleiri viðræður eru í gangi. Síðan
erum við búnir að opna skrifstofu í
Ríga í Lettlandi og ráða þar um
átta til tíu manns. Þar erum við að
vinna í því að koma upp miklu öfl-
ugri skönnum,“ segir Arnaldur
Gauti Johnson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. »14
Skanna inn ljós-
myndir í Lettlandi
Sögulegt Mynd af
Bítlinum skönnuð.