Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 14
ÚR BÆJARLÍFINU Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Fyrsti snjórinn þetta haustið féll á Akureyri í gær, allt hvítt þegar þorpsbúarnir opnuðu augun og dagurinn hófst. Misvel undirbúnir auðvitað eins og gengur, þegar kemur að bílum og hjólbörðum. Margir fara að huga að dekkja- skiptum eftir að fyrsti snjór hausts- ins lætur sjá sig. Akureyrarbær hefur hvatt bæjarbúa, þá sem það mögulega geta, að velja aðra kosti en nagla- dekk. Bærinn sem sé biður íbúana að hugleiða og meta hvort nagla- dekk séu nauðsynleg eða hvort þeir hafi möguleika á að velja aðrar teg- undir hjólbarða undir bíla sína og stuðla á þann hátt að bættum loft- gæðum og minni hávaða í bænum.    Fram kemur á vef bæjarins að undanfarin fimm ár hafa að með- altali 74% bifreiðaeigenda á Ak- ureyri ekið um á negldum hjólbörð- um og að notkun þeirra hafi aukist verulega undanfarin tvö ár. Bent er á að svifryk mælist of oft yfir heilsuverndarmörkum á Akureyri og þar eigi nagladekk sinn þátt. Að auki valda þau hávaða, slíta malbiki margfalt hraðar en önnur dekk og það hefur í för með sér aukinn við- haldskostnað. Margt mælir með því að skipta þeim út fyrir aðra kosti; loftbóludekk, harðkornadekk, harð- skeljadekk og heilsársdekk með djúpu mynstri, svo eitthvað sé upp talið.    Á Akureyri og á hálendisvegum í nágrenni bæjarins háttar þannig til að iðulega er flughált og jafnvel þungfært á veturna og því mikil- vægt fyrir fólk sem er á ferðinni að velja góð og örugg dekk. Segir bærinn. Og nú er valið okkar, bíl- stjóranna. Vissulega má kannski segja að fyrsti snjórinn hafi komið bæjar- búum á Akureyri í opna skjöldu, líkt og vanalega og ef til vill verið helsta umræðuefnið í morgunkaffi gærdagsins á mörgum vinnustöð- um. En gera má ráð fyrir að víða Skiptar skoðanir um Seglin við Pollinn hafi líka verið rætt um hugmynd sem nefnist Seglin við Pollinn og gengur út á að reisa 100 til 120 íbúðir í fjórum húsum á reit norðan við Gránufélagshúsið. Sitt sýnist hverjum um ágæti þeirrar tillögu.    Akureyrarbær bauð til opins kynningarfundar um breytingu á aðalskipulagi fyrir þennan hluta Oddeyrar í Hofi síðdegis á mánu- dag. Viðbrögðin voru góð, fólk streymdi í salinn og kjaftfyllt hann á augabragði þannig að áhuginn er greinilegur. Pétur Ingi Haraldsson sviðsstjóri skipulagssviðs kynnt að- alskipulagsbreytinguna fyrir fund- armönnum, en bæjarstjórn sam- þykkt nýverið skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi á svæði sem afmarkast af Hjalteyr- argötu í vestri, Kaldbaksgötu í austri, Gránufélagsgötu í norðri og Strandgötu í suðri.    Svæðið er að mestu skilgreint sem athafnasvæði en með breyt- ingunni er gert ráð fyrir að það breytist í íbúðarsvæði þar sem heimilt verður að byggja allt að 6- 11 hæða fjölbýlishús með athafna- starfsemi á neðstu hæð. Nú eru á þessu svæði nokkrar sundurleitar iðnaðar- og athafnabyggingar flest- ar í sæmilegu standi en einnig er þar eitt íbúðarhús. Syðst á svæðinu meðfram Strandgötu sendur Gránufélagshúsið, reist af Gránu- félaginu og er elsti hluti þess frá árinu 1873. Gránufélagshúsið er friðað en þar er nú rekin veitinga- staður.    Orri Árnason arkitekt hjá Zeppelin arkitektum kynnti til- lögur sem félagið hefur unnið vegna uppbyggingar á skipulags- reitnum. Hugmyndin gengur sem fyrr segir undir nafninu Seglin við Pollinn og er tilvísun í starfsemi Gránufélagsins sem reisti og starf- aði í húsinu sem við það er kennt og stendur við umræddan reit. Gránufélagið eignaðist á sínum uppgangstíma fjögur skip, fyrst skonnortuna Gránu, síðan tvær aðrar sem báru nöfnin Rósa og Herta og loks hákarlaskipið Njál. Þannig sagði Orri að leitað væri í hirslur sögunnar og uppbyggingin á reitnum yrði tengd sögu Gránu- félagsins. Seglin fjögur myndu rísa upp að baki Gránufélagshúsinu sem tákn fyrir seglin á skipum fé- lagsins.    Sú bylgja hefur verið nokkuð ríkjandi í mannvirkjagerð hin síð- ari ár að færa góður inn í borgir og bæi og nær hún til hönnunar „Seglhúsanna“, en ef af verður og þessi fyrsta hugmynd verður að veruleika munu veggir og þök verða klædd gróðri og fá á sig náttúrulegt yfirbragði. Garður verður að auki á svæði milli húsanna fjögurra. Ásýnd húsanna, staðsetning þeirra í námunda við miðbæ og Menningarhúsið Hof, glæsilegt útsýni yfir Pollinn og inn og út Eyjafjörð eru að mati hönn- uða til þess fallin að laða að íbúða- kaupendur. Alls er gert ráð fyrir að í húsunum verði á bilinu 120 til 150 íbúðir en á jarðhæð fjölbreytt verslun og þjónustu og undir öllu er gert ráð fyrir bílakjallara.    Mjög skiptar skoðanir eru um ágæti hugmyndanna. Einn hópur telur þessa hugmynd algjörlega frábæra og vill helst að byrjað verði að grafa grunninn strax en svo er annar hópur manna sem telur að hugmyndin sé algjörlega galin og út í hött. Verði hug- myndin að veruleika er hins vegar ekki úr vegi að halda áfram að gramsa í hirslum sögunnar og óska sérstaklega eftir því að hús- vörðurinn beri nafnið Tryggvi Gunnarsson. Tölvumynd/Zeppelin arkitektar Morgunblaðið/Margrét Þóra Íbúafundur Skiptar skoðanir eru á meðal bæjarbúa um hugmyndina. Tölvumynd/Zeppelin arkitektar Breyting Svona yrði útsýnið suður eftir Hjalteyrargötu eftir framkvæmd. Oddeyrin Verði hugmyndin að veruleika verður svona umhorfs við gatnamót Strandgötu og Hjalteyrargötu. Breyting verður því talsverð. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 TJARNARBÍÓ|LAUGARDAG 26. OKT.|12-16 Fulltrúar frá eftirtöldum skólum verða til viðtals: ARTS UNIVERSITY BOURNEMOUTH • CAMBERWELL COLLEGE OF ARTS • CENTRAL SAINT MARTINS • CHELSEA COLLEGE OF ARTS • LONDON COLLEGE OF FASHION • LONDON COLLEGE OF COMMUNICATIONS • WIMBLEDON COLLEGE OF ARTS • THE LIVERPOOL INSTITUTE FOR PERFORMING ARTS• LEEDS ARTS UNIVERSITY • ATELIER CHARDON SAVARD - BERLIN • MACROMEDIA UNIVERSITY - BERLIN & HAMBURG • ISTITUTO EUROPEO DI DESIGN - ITALY & SPAIN• EU BUSINESS SCHOOL - BARCELONA 12:00-13:00 Örnámskeið “Portfolio Preparation”. 13:00-15:00 Reynslusögur; Fyrrverandi nemar segja frá. 13:00-16:00 „Maður á mann”. Viðtöl við fulltrúa skóla. Sjá nánar dagskrá: lingo.is/frettir Aðgangur ÓKEYPIS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.