Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Frjálslyndi flokkurinn í Kanada, und- ir forystu Justins Trudeaus forsætis- ráðherra, missti meirihluta sinn á þingi landsins í kosningum í fyrradag en fékk flest þingsæti og líklegt er að hann myndi ríkisstjórn með stuðningi að minnsta kosti eins vinstriflokks. Frjálslyndi flokkurinn fékk 33,1% atkvæðanna og 157 þingsæti, en hann þurfti 170 sæti til að halda meirihluta sínum. Íhaldsflokkurinn fékk 121 sæti þótt hann fengi fleiri atkvæði en stjórnarflokkurinn, eða 34,4%. Frjálslyndi flokkurinn var með 177 þingsæti fyrir kosningarnar en missti 20 og fylgi hans minnkaði um tæp 6,5 prósentustig frá síðustu kosningum. Íhaldsflokkurinn bætti við sig 26 þingsætum og fylgi hans jókst um 2,6 prósentustig. Vinstrisinnaður aðskilnaðarflokkur í Quebec-fylki, Bloc Québécois, jók fylgi sitt mest hlutfallslega, eða um 3,1 prósentustig, og þingsætum hans fjölgaði úr 10 í 32. Flokkurinn býður aðeins fram í Quebec. Leiðtogi hans kvaðst í gær ljá máls á samstarfi við Frjálslynda flokkinn þótt ágreiningur hafi verið á milli flokkanna í nokkrum málum. Vinstriflokkurinn Nýi lýðræðis- flokkurinn tapaði 15 þingsætum, fékk 24, og fylgi hans minnkaði um 3,8 pró- sentustig. Græni flokkurinn bætti við sig einu sæti, fékk þrjú, og jók fylgi sitt um tæp 3,0 prósentustig. Þarf að færa sig til vinstri Talið er líklegt að Trudeau reyni að tryggja sér stuðning Nýja lýðræðis- flokksins og til þess þarf forsætisráð- herrann að öllum líkindum að færa sig talsvert til vinstri. Leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, Jagmeet Singh, hefur þegar sagt hvaða mál hann ætli að leggja áherslu á verði honum boðið til viðræðna um myndun nýrrar ríkis- stjórnar. Hann hefur m.a. krafist um- bóta á opinbera sjúkratryggingakerf- inu, þannig að það nái til lyfjakostnaðar, til að tryggja að allir Kanadamenn hafi efni á þeim lyfjum sem þeir þurfa. Nýi lýðræðisflokkur- inn segir að einn af hverjum fimm Kanadamönnum sé ekki með sjúkra- tryggingu sem nái til lyfjakostnaðar, og margir þeirra sem séu með slíka tryggingu hjá tryggingafélögum hafi ekki efni á lyfjunum sem þeir þurfi. Flokkurinn vill að lyfjatryggingar fyrir alla verði fjármagnaðar með 1% auðlegðarskatti á þá sem eru með meira en 20 milljónir kanadadala í tekjur, eða jafnvirði rúmra 1,9 millj- arða króna. Nýi lýðræðisflokkurinn hefur sagt að hann vilji ekki stjórnarsamstarf við Íhaldsflokkinn eftir kosningarnar. Lagði áherslu á efnahagsmál Íhaldsflokkurinn sigraði í öllum kjördæmum fylkjanna Alberta og Saskatchewan í vestanverðu landinu nema einu og bætti við sig þingsætum í fylkjunum New Brunswick, Ontario og Bresku Kólumbíu. Flokkurinn lof- aði m.a. að afnema kolefnisskatta sem stjórn Trudeaus kom á til að stemma stigu við losun gróðurhúsaloftteg- unda. Hann hét einnig lækkun skatta og sparnaðaraðgerðum til að eyða fjárlagahallanum á tveimur árum en forðaðist að boða stefnubreytingar í samfélagsmálum af ótta við að styggja kjósendur á miðjunni. Íhaldsflokkurinn er undir forystu Andrews Scheers, sem hefur verið leiðtogi flokksins frá árinu 2017. Scheer er kaþólskur, andvígur hjóna- böndum para af sama kyni og fóstur- eyðingum en hefur sagt að hann ætli ekki að beita sér fyrir lagabreyting- um í þeim málum verði hann forsætis- ráðherra. Hann hefur einnig forðast að gagnrýna stefnu kanadískra stjórnvalda í málefnum innflytjenda. Þegar einn þingmanna Íhaldsflokks- ins, Maxime Bernier, gagnrýndi „öfgafulla fjölmenningarstefnu“ Kan- ada ávítaði Scheer hann. Það varð til þess að Bernier sagði sig úr flokknum og stofnaði Þjóðarflokk Kanada, sem hét því að afnema fjölmenningar- stefnuna og draga úr straumi innflytj- enda til landsins. Niðurstaðan var sú að Bernier missti þingsæti sitt í kosn- ingunum og Þjóðarflokkur Kanada fékk engan þingmann kjörinn. Trudeau þarf að leita eftir stuðningi vinstriflokks  Frjálslyndi flokkurinn missti þingmeirihluta sinn í kosningum í Kanada AFP Hélt velli Justin Trudeau fagnar úrslitum kosninganna í Montreal. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði á fundi neðri deild- ar þingsins í gærkvöldi að hann myndi gera hlé á umræðu þess um brexit-frumvarp stjórnarinnar eftir að þingið hafnaði tímaætlun hans um afgreiðslu frumvarpsins. Fyrr um daginn samþykkti neðri deildin með 329 atkvæðum gegn 299 að taka brexit-frumvarpið til um- ræðu. Þingdeildin hafnaði síðan til- lögu stjórnarinnar um að þingið af- greiddi frumvarpið á þremur dögum til að tími gæfist til að staðfesta samninginn fyrir mánaðamótin. 308 þingmenn greiddu atkvæði með til- lögunni en 322 á móti. Í umræðunni á þinginu fyrir at- kvæðagreiðslurnar sagði forsætis- ráðherrann að hann myndi draga brexit-frumvarpið til baka og beita sér fyrir þingkosningum ef deildin hafnaði tímaáætluninni. Hann sagði síðan eftir að tíma- áætluninni var hafnað að hlé yrði gert á umræðunni um frumvarpið. Hann hygðist ráðfæra sig við leið- toga Evrópusambandsins um þá beiðni breska þingsins að útgöng- unni yrði frestað en áréttaði að Bret- land þyrfti að ganga úr Evrópusam- bandinu um mánaðamótin. Johnson sagði að það ylli sér mikl- um vonbrigðum að neðri deildin skyldi hafa „greitt atkvæði með töf á brexit“ og Bretland stæði frammi fyrir „frekari óvissu“. Þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu sagt að „fáránlegt“ væri að ætlast til þess að þingið afgreiddi svo afdrifaríkt frumvarp á aðeins þremur dögum. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði að Johnson væri „smiður sinnar eigin ógæfu“ og bauðst til að hefja viðræður um „skynsamlega“ tímaáætlun um af- greiðslu frumvarpsins. Tímaáætlun Johnsons felld AFP Beið ósigur Boris Johnson forsætis- ráðherra á breska þinginu í gær.  Gerði hlé á um- ræðu þingsins um brexit-frumvarpið Lögreglan í Ósló handtók í gær 32 ára gamlan Norðmann sem hafði stolið sjúkrabíl og ekið á fjóra gangandi vegfarendur sem urðu fyrir meiðslum, þ.á m. sjö mánaða tvíbura, en enginn þeirra alvar- legum. Fréttavefur Aftenposten sagði að maðurinn hefði verið háð- ur fíkniefnum í mörg ár og oft verið dæmdur fyrir lögbrot. Nokkrir fjöl- miðlar í Noregi sögðu að hann væri þjóðernisöfgamaður en Aftenpost- en hafði eftir lögmanni hans að það væri ekki rétt. Lögreglan sagði að hún væri að rannsaka málið. Tvær byssur fundust í bílnum, auk fíkni- efna. Myndin var tekin þegar maðurinn var handtekinn eftir að lögreglumenn skutu á hjólbarða sjúkrabílsins til að stöðva hann. Stal sjúkrabíl og ók á vegfarendur í Ósló AFP Allt um sjávarútveg Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.