Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
KNATTSPYRNA
Meistaradeildin
A-riðill:
Club Brugge – Paris SG.......................... 0:5
Mauro Icardi 7., 63., Kylian Mbappé
61.,79., 83.
Galatasaray – Real Madrid .................... 0:1
Toni Kroos 18.
Staðan:
París SG 3 3 0 0 9:0 9
Real Madrid 3 1 1 1 3:5 4
Club Brugge 3 0 2 1 2:7 2
Galatasaray 3 0 1 2 0:2 1
B-riðill:
Olympiacos – Bayern München ............. 2:3
Youssef El Arabi 23., 79. – Robert Lew-
andowski 34.,62., Corentin Tolisso 75.
Tottenham – Rauða stjarnan ................. 5:0
Harry Kane 9., 72., Heung-Min Son 16, 44.,
Erik Lamela 57.
Staðan:
Bayern München 3 3 0 0 13:4 9
Tottenham 3 1 1 1 9:9 4
Rauða stjarnan 3 1 0 2 3:9 3
Olympiacos 3 0 1 2 5:8 1
C-riðill:
Shahktar Donetsk – Dinamo Zagreb.... 2:2
Jevheniy Konoplyanka 17., Dodo 75. –
Daniel Olmo 25., Mislav Orsic 60.
Manchester City – Atalanta ................... 5:1
Sergio Agüero 34., 38. (víti), Raheem Sterl-
ing 58., 64., 69. – Ruslan Malinovsky 28.
(víti). Rautt spjald: Phil Foden 83. (Man-
chester City).
Staðan:
Manchester City 3 3 0 0 10:1 9
Dinamo Zagreb 3 1 1 1 6:4 4
Shakhtar Donetsk 3 1 1 1 4:6 4
Atalanta 3 0 0 3 2:11 0
D-riðill:
Atlético Madrid – Bayer Leverkusen ....1:0
Alvaro Morata 78.
Juventus – Lokomotiv Moskva .............. 2:1
Paulo Dybala 77.,80. – Aleksey Miranchuk
30.
Staðan:
Juventus 3 2 1 0 7:3 7
Atlético Madrid 3 2 1 0 5:2 7
Lokomotiv Moskva3 1 0 2 3:5 3
Bayer Leverkusen 3 0 0 3 1:6 0
England
B-deild
Millwall – Cardiff .................................... 2:2
Jón Daði Böðvarsson kom inná á 70.
mínútu og lagði upp síðara mark Millwall.
Swansea – Brentford ............................... 0:3
Patrik Gunnarsson var ekki í leikmanna-
hópi Brentford.
Meistaradeild Evrópu
Besiktas – Zaragoza............................ 73:74
Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig
fyrir Zaragoza og tók þrjú fráköst en hann
lék í níu og hálfa mínútu.
KÖRFUBOLTI
Raheem Sterling og Kylian Mbappé
stálu senunni er fyrstu leikir 3. um-
ferðar í riðlakeppni Meistaradeildar
Evrópu í fótbolta fóru fram í gær-
kvöldi.
Skoruðu þeir báðir sína fyrstu
þrennu í Meistaradeildinni. Þeir
eiga það sameiginlegt að hafa á sín-
um tíma verið kjörnir gulldrengir
Evrópu, nafnbót sem besti ungi leik-
maður álfunnar hlýtur.
Sterling skoraði þrjú síðustu
mörk Manchester City í sannfær-
andi 5:1-heimasigri á Atalanta. Atal-
anta komst yfir á 28. mínútu en Eng-
landsmeistararnir voru snöggir að
snúa taflinu sér í vil.
Sigur PSG á Club Brugge á úti-
velli var aldrei í vafa. Staðan í hálf-
leik var 1:0 og Mbappé skoraði þrjú
mörk í seinni hálfleik til að tryggja
sannfærandi 5:0-sigur. Bæði City og
PSG eru með fullt hús stiga eftir
þrjá leiki.
Þema gærkvöldsins var það að
stærstu lið Evrópu lentu undir en
náðu að snúa taflinu við. Auk Man-
chester City lentu bæði Bayern
München og Juventus undir. Olympi-
acos skoraði fyrsta mark leiksins
gegn Bayern á heimavelli en þýsku
meistararnir skoruðu næstu þrjú
mörk og unnu að lokum 3:2-sigur.
Þá lenti Juventus undir gegn
Lokomotiv Mosku á heimavelli en
Paulo Dybala bjargaði Juventus-
mönnum með tveimur mörkum í
seinni hálfleik.
Þá unnu Tottenham og Real
Madríd mikilvæga sigra fyrir knatt-
spyrnustjóra sína. Mauricio Poch-
ettino, stjóri Tottenham, hefur verið
undir mikilli pressu og sömu sögu
má segja um Zinedine Zidane hjá
Real Madríd. Tottenham vann 5:0-
heimasigur á Rauðu stjörnunni á
meðan Real vann 1:0-sigur á útivelli
gegn Galatasaray.
Fyrstu þrennur gull-
drengjanna í Evrópu
AFP
Þrenna Raheem Sterling skorar þriðja mark sitt og fimmta mark Manchester City á heimavelli í gærkvöldi.
Sterling og Mbappé stálu senunni Ensku liðin skoruðu fimm Stóru liðin
lentu undir en sneru taflinu við Pressunni á Pochettino og Zidane aflétt
Sol Campbell var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri enska C-
deildarfélagsins Southend United
og verður Hermann Hreiðarsson,
fyrrverandi landsliðsfyrirliði, að-
stoðarmaður hans. Hermann og
Campbell unnu á sínum tíma
enska bikarinn sem leikmenn
Portsmouth. Þá mun Andy Cole,
fyrrverandi framherji Manchester
United, einnig vera í þjálfarateym-
inu.
Kevin Bond hætti með Southend
í september og hefur félagið verið
án stjóra síðan, en Henrik Larsson
var m.a. orðaður við starfið.
Hermann var aðstoðarmaður
Campbells hjá Macclesfield Town í
stuttan tíma á síðustu leiktíð.
Campbell tók við Macclesfield í
slæmri stöðu í D-deildinni en gerði
vel í að bjarga liðinu frá falli niður
í utandeildina.
Gengi Southend á leiktíðinni
hefur verið afleitt en liðið er í 22.
sæti, eða næstneðsta sæti, ensku
C-deildarinnar með fimm stig.
Liðið hefur tapað tíu leikjum, unn-
ið einn og gert tvö jafntefli í fyrstu
þrettán leikjum sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
Aðstoð Hermann Hreiðarsson aðstoðar Sol Campbell hjá Southend.
Hermann verður að-
stoðarmaður Campbells
Kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
VANDAÐUR
vinnufatnaður frá