Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 32

Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 Öflugt sjúkraflug er einn mikilvægasti lið- ur í öryggi lands- manna sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Aðgengi að heilbrigð- isþjónustu er sann- arlega víðsvegar um landið en þegar kem- ur að sérhæfðri bráðaþjónustu er hún fyrst og fremst veitt í Reykjavík og þá skiptir hver mínúta við sjúkraflutninga íbúa á lands- byggðinni lífsspursmáli. Íbúar Vestmannaeyja og Vestfjarða reiða sig mikið á sjúkraflug til að sækja bráðaþjónustu, en skurð- stofu var lokað í Vestmannaeyjum árið 2013 og er hún ekki til staðar á sunnanverðum Vestfjörðum. Óviðunandi aðstæður í sjúkraflugi Alvarleg lífsógnandi veikindi á borð við kransæðastíflu og blóð- tappa í heila, vandamál við fæð- ingu og lífshættuleg slys eru þess eðlis að stuttur viðbragðstími fyrir aðkomu sérhæfðrar bráðaþjónustu er oftar en ekki forsenda lífs- bjargandi meðferðar. Árið 2013 kom út skýrsla ríkisendurskoð- unar um viðbragðstíma sjúkra- flugs og þróun þess. Þar kom skýrt fram að viðbragðstími vegna sjúkraflutninga til Vestfjarða og Vestmannaeyja hefur aukist í kjöl- far þess að miðstöð sjúkraflugs var flutt til Akureyrar. Samkvæmt skýrslunni jókst viðbragðstími að meðaltali um tvær mínútur fyrir Vestfirði en 24 mínútur fyrir Vest- mannaeyjar og stendur þar svart á hvítu „að ljóst er að þessi munur getur í einhverjum tilvikum skipt sköpum“. Greinarhöfundar þekkja dæmi úr sínum samfélögum þar sem slíkar dýrmætar mínútur hafa haft óafturkræfar afleiðingar fyrir sjúklinga. Í raun er ómögulegt að segja hversu oft aukinn viðbragðs- tími sjúkraflugs hefur haft óbæt- anleg áhrif á íbúa þessara land- svæða. Við undirbúning flutnings sjúkraflugsins til Akureyrar álykt- uðu ýmsir hagsmunaaðilar, s.s. fé- lag íslenskra landsbyggðarlækna, heilbrigðisstofnanir og sveitar- félög á landsbyggðinni, þar sem tekið var undir hugmyndir um að sérhæfð sjúkraflugvél yrði stað- sett á Akureyri. Margir höfðu þó áhyggjur af sérstöðu Vestmanna- eyja og Ísafjarðar og vildu að flugvélar yrðu einnig þar. Ein sjúkraflugvél sinnir öllu landinu Eins og staðan er í dag er að- eins ein sjúkraflugvél sem sinnir sjúkraflugi á öllu landinu og er hún staðsett á Akureyri. Slíkt fyr- irkomulag býður þeirri hættu heim að sjúkravélin sé upptekin í útkalli í einum landshluta þegar bráðaútkall kemur í öðrum. Við F1-útkall, sem þýðir bráð lífsógn, setja Sjúkratryggingar Íslands þær kröfur að viðbragðstími skuli ekki vera lengri en 35 mínútur en ef sjúkraflugvél er að sinna öðru verkefni lengist viðbragðstíminn í allt að 105 mínútur. Til viðbótar við sjúkraflugvélina sjá björg- unarþyrlur Landhelgisgæslunnar um brýna sjúkraflutninga þegar þeim verður ekki viðkomið með bílum eða flugvél. Vandamálið er þó að viðbragðstími þeirra er yf- irleitt lengri en sjúkraflugvéla þar sem þær fara almennt hægar yfir. Aðgerðaleysi í sex ár á meðan kostnaður við sjúkraflug eykst verulega Í eftirfylgniskýrslu um stöðu sjúkraflugs sem birtist 2016 gagn- rýndi ríkisendurskoðun þann seinagang sem ríkt hefur í þess- um mikilvæga málaflokki. Jafn- framt gagnrýndi hún samskipta- leysi milli þeirra ráðuneyta sem í hlut eiga, en á þeim sex árum frá því skýrslan kom fyrst út hafa að- stæður í sjúkraflugi lítið sem ekk- ert breyst til þessara dreifðu byggða. Á sama tíma hefur rík- isvaldið dregið úr sérhæfðri heil- brigðisþjónustu á landsbyggðinni, á meðan stórfelld aukning er- lendra ferðamanna á landinu veld- ur því að fjöldi og kostnaður vegna sjúkraflugs fer vaxandi frá ári til árs. Til að mynda jókst um- fang sjúkraflutninga á árunum 2014-2017 um allt að 37%, mest á Suðurlandi, Suðurnesjum og Akureyri. Sérútbúin sjúkraþyrla á Suð- urland og björgunarþyrla Landhelgisgæslu á Vestfirði Sérútbúin sjúkraþyrla með staðarvakt sem væri staðsett á Suðurlandi hefði margvíslega kosti í för með sér. Bráðaviðbragð fyrir íbúa og ferðafólk á Suður- landi væri mun öruggara og hrað- ara. Slíkir sjúkraflutningar myndu draga úr álagi á sjúkravélinni á Akureyri frá landshlutanum og bæta þannig viðbragð vélarinnar við aðra landshluta. Auk þess gæti fyrirkomulagið skapað svig- rúm til þess að staðsetja björg- unarþyrlur Landhelgisgæslunnar víðar um landið, t.a.m. að ein þriggja þyrlna Landhelgisgæsl- unnar yrði staðsett á Vestfjörðum og jafnvel ein á Norðausturlandi. Slíkt myndi auka öryggi og við- bragð við alvarlegum slysum á þessum landshlutum, sem og auka til muna öryggi sjófarenda sem fara um hafsvæði þessara lands- hluta. Aðgerða er þörf Fyrir hönd íbúa í Vestmannaeyjum og á Vest- fjörðum skora undirritaðar á þingmenn og viðeigandi ráðuneyti að grípa tafarlaust til aðgerða vegna sjúkraflugs þessara byggð- arlaga. Með blönduðu kerfi sjúkra- og björgunarþyrlna, þar sem sérútbúin sjúkraþyrla yrði staðsett á Suðurlandi og björg- unarþyrla Landhelgisgæslu á Vestfjörðum, yrðu stigin mikilvæg skref í þá átt að jafna aðgengi landsmanna að sérhæfðri bráða- þjónustu en samkvæmt lögum eiga allir landsmenn að eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjón- ustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita. Hér er um mikið öryggismál að ræða og á það að vera sjálfsögð krafa að slík for- gangsmál séu í lagi. Staða sjúkraflugs óviðunandi Eftir Hafdísi Gunnarsdóttur og Hildi Sólveigu Sigurðardóttur »Eins og staðan er í dag er aðeins ein sjúkraflugvél sem sinnir sjúkraflugi á öllu land- inu og er hún staðsett á Akureyri. Hildur Sólveig Sigurðardóttir Hafdís er formaður bæjarráðs og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ. Hildur er bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vest- mannaeyjum. Hafdís Gunnarsdóttir Í fréttum á RÚV ný- lega sagði bæjarstjóri Kópavogs aukin lífs- gæði íbúa felast í nýj- um samgönguleiðum sem voru í kynningu og undirritaðar með form- legri athöfn, án þess að minnast á allan þann kostnað í milljörðum talið sem mun leggjast á íbúa. Þetta er frávik á því sem ég vil koma á framfæri við íbúa Kópavogs. Málið sem hér um ræðir snýst um tjón, tjónabætur, fram- komu og virðingarleysi við íbúa í Blásölum sem hafa átt í stælum við Íslensku gámaþjónustuna, TM tryggingafélag, bæjarstjóra bæj- arfélagsins og lögmannsstofu Kópa- vogsbæjar um langa hríð vegna tjóns sem Íslenska gámaþjónustan olli íbúum og eigendum. Það sjá allir að það að aka þungri sorpbifreið upp á steinkant, hjólastólabraut og það- an upp á hellur þar sem snjóbræðsla er undir gengur ekki upp. Íbúar hafa ítrekað kvartað við bílstjóra, það hefur hins vegar ekki heldur gengið vegna tungumálaerfiðleika vegna þess að þeir skilja ekki móðurmálið okkar. Fyrir utan merkingar sem eru ekki einu sinni virtar af þeim sjálfum frekar en af fulltrúum meiri- hluta Kópavogsbæjar, þar á meðal bæjarstjóranum sjálfum, sem stærir sig síðan af lífsgæðum og blóma- skreytingum og baðar sig í fjöl- miðlum en gleymir um leið skulda- söfnun sem hann hefur sett bæjarfélagið í. Það er í lagi, Ármann Kr. Ólafs- son og Birkir Jón Jóns- son. Hafa í hótunum Slík er framkoma og virðingarleysi þeirra sem hafa valdið um- ræddu tjóni; þeir reyna nú ítrekað að koma sér undan tjóninu og koma því síðan yfir á íbúa sem eiga ekki þátt í því. Minnir á einræðistil- burði á erlendri grundu þar sem það þekkist vel að reyna með öllum mætti að bæla niður skoðanir fólks og hræða fólkið sem vill leita réttar síns samkvæmt landslögum frá því að leita til dóm- stóla. Þrátt fyrir langar og ítrekaðar bréfaskriftir til að ná samkomulagi við þessa aðila sem ég hef nefnt hér að ofan hefur það ekki enn tekist. Þess skal getið að TM bauð 50% af umræddu tjóni en 50% áttu að renna til eldra fólksins sem á ekki í önnur hús að venda. Slíkur var fantaskap- urinn hjá forstöðumanni TM, sem kunni ekki einu sinni að reikna nema til að hlunnfara gamla fólkið og koma allri ábyrgð á íbúa! Þvílíkir snillingar. Þetta hlýtur að vera eins- dæmi í framkomu fyrir utan fanta- brögð sem þessi fulltrúi trygginga- félagsins beitir á fólk á eftirlaunum. Ekki ætla ég heldur að hlífa fulltrúa Íslensku gámaþjónustunnar við ábyrgð, hann má og getur tekið þessi orð til sín. Það var í raun hann sem gaf umrædda skýrslu; að gamla fólkið ætti sök á þessu, sem ég vissi ekki um fyrr en síðar, og við ættum að greiða 50% af tjóninu sem eftir stendur, þrátt fyrir rök og myndir sem ég sendi honum og verða notuð í málaferlunum. Dólgurinn gat ekki einu sinni sagt rétt frá en hann gat hins vegar gefið upp nafn á umrædd- um bílstjóra til að firra sig ábyrgð á umræddu tjóni. Auðvitað stóð ekki á því að TM verði Íslenska gámafélag- ið til að ná sér niðri á þeim sem eru lítið fyrir að brúka kjaft. Það er auð- séð að þeim aðilum sem hér um ræð- ir mun bregða þegar reikningur birtist. Það verður þeim dýrt spaug þegar upp er staðið, þegar lögmannskostnaður leggst ofan á allt málið sjálft. Hver ber ábyrgð? Það er auðvitað Kópavogsbær sem er bótaskyldur gagnvart því tjóni sem íbúar hafa orðið fyrir. Kópavogsbær valdi hins vegar um- rædda verktaka. Gerði bæjarfélagið ekki samninginn, er það ekki rétt af- staða íbúa? Húsfélagið hafði ekki aðgang að umræddum samningi, hins vegar sit- ur húsfélagið í Blásölum uppi með tjónið, sem er í raun að stækka og ekki bætir á þá töf á meðan málið er til meðferðar hjá lögmanni. Það er lítill munur á bæjarstjóra Kópavogs- bæjar, sem sendi mál íbúa til lögmannsstofu á vegum Kópavogs- bæjar, TM sem kallar sig trygginga- félag og Íslensku gámaþjónustunni þar sem þessir aðilar hafa ítrekað reynt að koma sér undan skyldum sínum. Það er ömurlegt til þess að vita að fólk á eftirlaunum í bæjar- félagi bæjarstjórans þurfi að leita réttar síns á lögmannsstofu til þess eins að ná sínum rétti fram. Slíkur er yfirgangurinn hjá föntum af verstu gerð í mannlegum samskipt- um. Væri Theodóra Þorsteinsdóttir, fyrrverandi oddviti, við völd hefði þessi staða aldrei komið upp, ég er klár á því. Íbúar í Kópavogi; er ekki kominn tími til að leysa þreyttan bæjarstjórnarmeirihluta frá störfum næst þegar kosið verður og hreinsa vel til í stjórnkerfinu? Fjöldi íbúa er á sömu skoðun. Stjórnendur Kópavogsbæjar koma sér undan ábyrgð Eftir Jóhann Pál Símonarson » Íbúar í Kópavogi, er ekki kominn tími til að leysa þreyttan bæj- arstjórnarmeirihluta frá störfum og hreinsa vel til í stjórnkerfinu um leið og kosið verður næst? Jóhann Páll Símonarson Höfundur er fyrrverandi sjómaður. Allt um sjávarútveg Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y –

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.