Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 46
Í tilefni af útgáfu plötunnar ákváðu þeir að halda út-
gáfutónleika í Bæjarbíó á sunnudaginn sl. Skemmst er
frá því að segja að vinsældir strákanna eru orðnar slíkar
að það seldist upp á tónleikana, sem vel að merkja voru
fyrstu tónleikar tvíeykisins. Í kjölfar þessara vinsælda
var því ákveðið að telja í aukatónleika 22. nóvember í
Bæjarbíó sömuleiðis og er miðasala hafin á þá.
Þeir komu í spjall í Síðdegisþáttinn á K100 sl. föstu-
dag í dagskrárliðinn „Hvað er í matinn?“ og gáfu hlust-
endum hugmynd um hvað skyldi borða um kvöldið, enda
reynist þessi spurning mörgum erfið. Í kjölfarið fengu
hlustendur skemmtilega sögu frá Fannari Inga sem er
margreyndur í pitsubransanum. „Fyrst vann ég á Pap-
inos þegar ég var 14 ára. Ég fékk þessa vinnu gegnum
nágranna minn. Allir héldu að ég væri stelpa þegar ég
svaraði í símann í símaverinu því ég var ekki kominn í
mútur. Ég tók það nærri mér og fékk því að færa mig í
að setja áleggið á.“ Þú getur horft og hlustað á
skemmtilegt viðtal við þá félaga á heimasíðu K100 á
k100.is.
Aukatónleikar í nóvember
Þeir Jökull Breki og Fannar Ingi skipa hið vinsæla tvíeyki Hipsumhaps sem vakið hef-
ur athygli undanfarið fyrir skemmtilegar lagasmíðar og frumlega texta. Þekktasta
lagið er án efa LSMLÍ (Lífið sem mig langar í) en nýjasti smellurinn er Fyrsta ástin en
bæði lög er að finna á plötunni Best gleymdu leyndarmálin sem kom út í haust.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Vinsælir Jökull Breki
og Fannar Ingi skipa
Hipsumhaps.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
Sem sagt, áherslan er lögð á
skemmtun og öðrum leyft að vera
í daglega argaþrasinu. Einn af
föstu dagskrárliðunum í þætt-
inum verður liðurinn „20 ógeðs-
lega mikilvægar spurningar“ þar
sem þekkt fólk úr öllum röðum
samfélagsins kemur og sýnir á
sér nýja hlið. Verður hann alltaf
á dagskrá á fimmtudögum.
Síðastliðinn fimmtudag kom
fyrsti gesturinn til þeirra Loga
og var það enginn annar en KA-
maðurinn og ljúflingurinn Villi
naglbítur, Vísinda Villi eða bara
Vilhelm Anton Jónsson eins og
hann var skírður. Svaraði hann
spurningum Loga og Sigga um
hin ýmsu málefni, t.d. um hvort
hann hefði leyndan hæfileika og
um það hafði hann þetta að segja.
„Ég er liðtækur blokkflautuleik-
ari.“ Svo sannarlega eitthvað sem
maður vissi ekki um Villa. Hægt
er að hlusta á allt viðtalið inn á
heimasíðu K100, k100.is Næsti
gestur þeirra félaga í „20 ógeðs-
lega mikilvægum spurningum“
verður grínistinn og ljúflingurinn
Pétur Jóhann sem fagnar um
þessar mundir 20 ára grínafmæli.
Hann mætir til Loga og Sigga á
morgun, fimmtudag, svo það er
um að gera að hlusta milli 16 og
18.
Ógeðslega mikilvægu spurning-
arnar sem sagt eru allt frá því
hvort hann vilji frekar fara í
sturtu eða bað yfir í hvað honum
finnst best að borða yfir í hvort
hann hafi leyndan hæfileika. Það
er spurning hver leyndi hæfileiki
Péturs er, það kemur vonandi í
ljós á morgun. Sem sagt, þetta
eru allt ógeðslega mikilvægar
spurningar, við þeim verður að fá
svör!
Taktu skemmtilegu leiðina
heim á K100 alla virka daga milli
16 og 18.
20 ógeðslega mikil-
vægar spurningar
í hverri viku hjá
Loga og Sigga
Þeir félagar Siggi Gunnars og Logi Bergmann fóru af stað
með nýjan síðdegisþátt á K100 í síðustu. Yfirskrift þátt-
arins er að fólk taki skemmtilegri leiðina heim.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grín Pétur Jóhann verður gestur Loga og Sigga í þætti morgundagsins.
Atvinna