Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 25

Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 ekki við bestu aðstæður í heimi. Það er búið að koma sér fyrir, börnin far- in í skóla og einhverjir hafa fengið vinnu. Svo er þeim smalað upp í rút- ur og flutt út úr borginni í einhverjar búðir annars staðar. Við sem störfum hér gefum allt í að aðstoða þessi börn. Þegar svona gerist líður mér eins og ég sé að ljúga að þeim þegar ég segi þeim að þau séu örugg hjá mér. Við erum að tala um líf barna, ekki hluti sem er hægt að færa til eins og húsgögn. Ég vona að þetta eigi eftir að breytast aftur því án vonar eiga þessi börn ekkert og við eigum að hafa í huga að þau eru framtíðin og þar á ég við öll börn,“ segir Marianne. Hvað verður um það sem þau læra? Aliki Tzatha, Tatiana Katsina og Alexandra Kamaretsou kenna grísku í námsverum ELIX í Aþenu. Þær segja að engir tveir dagar séu eins og að kennararnir hittist daglega með félagsráðgjöfum og sálfræðingum til að bera saman bækur sínar um hvernig eigi að taka á vandamálum sem blasa við. „Við veltum stundum fyrir okkur starfinu okkar. Við vitum að flestir nemendur okkar vilja fara frá Grikk- landi til þess að eignast framtíð og við veltum fyrir okkur hvað verði um það sem við kennum þeim, það er grísku. Á sama tíma vitum við að allt sem þú lærir er hluti af einhverju stærra. Námið er ekki endilega bara tungumálið heldur einnig málfræði og setningafræði. Allt er þetta hluti af miklu stærra ferli sem mun nýtast þér í framtíðinni. Svo sem menning og að bera virðingu fyrir öðrum eru hæfileikar sem þú lærir og hjálpar þér með allt annað á lífsleiðinni. Við teljum að þó svo að þau læri ekki grísku nema í skamman tíma og fari héðan frá Grikklandi höfum við stutt við þau á lærdómsferli lífsins,“ segja þær. Menntun gerir öllum gott Tatiana segir að það geri öllum gott að njóta menntunar. Ekki síst ef fólki líður illa. Margir nemenda þeirra hafa aldrei áður verið í skóla og aðrir hafa ekki verið í skóla í lang- an tíma. Bara að læra að vera innan um önnur börn, hegða sér og læra alls konar hluti skiptir miklu máli, segir hún. Að sögn Aliki skiptir ólíkur bak- grunnur litlu máli hjá þeim þar sem flest þeirra eru svo vön því að búa þröngt, vera í nánu samneyti við aðra og velta ekki fyrir sér bakgrunni bekkjarfélaganna. Hvort sessunaut- urinn er frá Afganistan, Erítreu, Sýr- landi eða Írak. Hjá ELIX er krökkum skipt upp í bekki eftir aldri og reynt að vera með tvo bekki í hverjum aldurshópi, 6-8 ára, 9-12 og 13-15 ára. Sum hafa litla sem enga reynslu af skóla á meðan önnur eru komin lengra og því erfitt að blanda öllum hópnum saman í eina skólastofu. Eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta „Okkar hlutverk er að tryggja að þeim líði betur en annars væri. Það er erfitt á sama tíma og sérstaklega þegar þau hverfa. Við vonum alltaf að þau hafi haft ánægju og gagn af því sem við kenndum þeim þrátt fyrir að við vitum ekki hver afdrif þeirra verða,“ segir Alexandra. Um 15-20 nemendur eru í hverjum bekk. Alls eru 10 bekkir í skólanum sem blaðamaður heimsótti og nem- endurnir 150-200 talsins. Aðeins 20% flóttabarna í skóla „Það sem við erum að gera hér er að veita fólki, og sérstaklega börnum, á flótta stuðning og ekki gleyma því að við Evrópubúar eigum sameigin- legra hagsmuna að gæta og okkar sameiginlega hlutverk er að styðja við þá sem þurfa á aðstoð að halda. Sama hvar við stöndum í pólitík. Stundum finnst okkur að það sem við gerum sé lítið miðað við það sem þyrfti að gera. En það sem er alvar- legt er að aðeins 20% af þeim börnum sem eru á flótta og eru í Grikklandi þessa stundina eru í skóla. 80% þeirra fá því enga menntun. Þetta eru skelfi- legar tölur og við teljum að það þurfi að breyta hugsanagangi stjórnmála- manna. Ekki bara hér í Grikklandi heldur í allri Evrópu. Við sem kenn- arar gerum okkar besta en þetta er allt of lágt hlutfall. Allir reyna sitt besta en það er ekki nóg. Það verður ekki bara að fá fleiri ríki til þess að taka þátt heldur líka að huga að þessu – að menntun er lykillinn að öllu öðru. Ef við veitum þeim ekki menntun getum við ekki ætlast til þess að þeim vegni vel,“ segja þær Aliki Tzatha, Tatiana Katsina og Alexandra Kam- aretsou. Hafa áhyggjur af unglingunum Unglingarnir og framtíð þeirra er helsta áhyggjuefni kennaranna. Þær segja að unglingarnir hafi flestir farið á mis við menntun á flóttanum og margir þeirra séu án foreldra og systkina. Fæstir þeirra fá menntun þegar þeir eru komnir til Evrópu og segja þær Alexandra, Aliki og Tati- ana það ekki bara alvarlegt fyrir ung- mennin heldur samfélagið í heild. „Það á að vera hlutverk okkar Evr- ópubúa að tryggja öllum menntun. Sama hvaðan börnin eru. Staða þeirra er oft slæm í grunnskóla en hún versnar þegar á líður í námi þar sem þau hafa ekki þann bakgrunn sem er nauðsynlegur til þess að tak- ast á við námsefnið.“ Þær segja nógu erfitt fyrir ung- menni sem hafa alltaf búið í Grikk- landi að vita það sem þarf að vita um gríska menningu og fleira, hvað þá fyrir ungmenni sem hafa kannski bú- ið í skamman tíma í landinu. „Skólar gefa flóttafólki ný tæki- færi,“ segir Filippo Grandi, fram- kvæmdastjóri UNHCR: „Við erum að bregðast flóttafólki með því að veita því ekki tækifæri til að bæta við hæfni sína og þekkingu sem það þarf á að halda til þess að fjárfesta í fram- tíð sinni.“ Grísk stjórnvöld hafa boðað neyð- araðgerðir vegna þess mikla fjölda hælisleitenda sem þangað hafa komið undanfarnar vikur frá Tyrklandi og óttast að sagan frá 2015 endurtaki sig á ströndum landsins þegar fjöldi fólks drukknaði á leið sem það taldi til lífs. Á hverjum degi koma bátar drekk- hlaðnir flóttafólki yfir Eyjahaf á sama tíma og farið er að hausta með versn- andi veðri. Grískir ráðherrar segja að smyglarar standi á bak við flutning- ana og þeir noti til verksins betri og hraðskreiðari báta en áður. 3.145 dagar frá upphafi stríðsins í Sýrlandi 5,6 milljónir Sýrlendinga eru land- flótta. Flestir þeirra eru í Tyrklandi eða 3,6 milljónir. Yfir 6,2 milljónir eru á vergangi í eigin landi. Nokkur hundruð þúsund eru í bráðri hættu í norðurhluta Sýrlands vegna aðgerða Tyrkja þar og óvíst er hversu margir þeirra freista þess að komast úr landi. Í dag eru 3.145 dagar frá því stríðið í Sýrlandi hófst, eða átta ár, sjö mán- uðir og níu dagar. Algjörlega óvíst er hvenær eða hvernig því lýkur. Á með- an þjáist heil þjóð og kynslóð ung- menna vex úr grasi sem hefur aldrei upplifað frið í eigin landi. Morgunblaðið/Gúna Menntun Aliki Tzatha, Tatiana Katsina og Alexandra Kameretsou eru kennarar í ELIX-námsverinu í Aþenu. Ótti Marianna Matziri er leikskólakennari í ELIX-námsverinu í Aþenu. Hvar er Ísland? Nemendurnir fá kennslu í mörgum námsgreinum á grísku.  Þetta er síðasta greinin í greinaflokknum Á leið til lífs þar sem fjallað var um stöðu barna og kvenna á flótta. Greinaflokkurinn er allur aðgengilegur á mbl.is Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.