Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 37
Fagið02/05
heilbrigðisþjónustu sem hefur í för með sér bætt aðgengi sjúklinga
að þjónustu. Þingsályktun um aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigð
isþjónustu var samþykkt í fyrrasumar að sögn Helgu Bragadóttur,
dósents í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.
Fjarheilbrigðisþjónusta felur í sér notkun tæknilausna og upp
lýsingatækni til að miðla heilbrigðisupplýsingum til sjúklinga og
heilbrigðisstarfsmanna
með það að markmiði að
bæta almenna heilbrigð
isþjónustu. Aðgengi að
þjónustu og þekkingu
verður þannig óháð
staðsetningu viðkomandi.
Samkvæmt niðurstöðu
símakönnunar á eðli og
umfangi fjarhjúkrunar um
síma Landspítala meðal
hjúkrunardeildarstjóra
og klínískra sérfræðinga í hjúkrun, sem framkvæmd var árið 2010,
veitti þriðjungur aðspurðra fjarhjúkrun í gegnum síma. Helst er
hún veitt í formi eftirfylgdar, nokkuð er um ráðgjöf og að lokum er
veittur stuðningur og fræðsla. Helga segir símann vera vannýtt tæki í
fjarheilbrigðisþjónustu.
Aukin lífsgæði með fjarheilbrigðisþjónustu
Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur á göngudeild
hjartabilunar, kynnti svokallað hjartabilunarverkefni sem hófst 2009.
Verkefnið er samvinnuverkefni heimaþjónustu höfuðborgarsvæðis
ins, Landspítala og Háskóla Íslands, og felst í að færa þjónustuna
heim til ört stækkandi hóps einstaklinga með hjartabilun 67 ára og
eldri. Markmiðið er að auka lífsgæði fólks og fækka innlögnum en
þjónustan fer fram í gegnum síma. Góð skráning er þannig lykilatriði
í þjónustunni. Veitt var ráðgjöf til 425 einstaklinga árið 2015 en sam
tals voru símtölin 1472 talsins. Flestar ráðleggingarnar voru um lyf og
breytingar á lyfjum. Að sögn Guðbjargar er gífurlegur sparnaður með
þessari þjónustu, auk þess að auka lífsgæði skjólstæðinga þeirra.
Fjarheilbrigðisþjónusta felur í sér
notkun tæknilausna og upplýs-
ingatækni til að miðla heilbrigð-
isupplýsingum til sjúklinga og
heilbrigðisstarfsmanna með það
að markmiði að bæta almenna
heilbrigðisþjónustu.