Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 Rannsóknarnefnd samgönguslysa, sjóslysasvið, hefur beint nokkrum tillögum til Samgöngustofu til að auka öryggi um borð í skipum. Til- lögur þessar varða áhættumat og segir í nýlegu áliti nefndarinnar að útgerðir og áhafnir virðist almennt ekki framkvæma áhættumat um borð í skipum sínum þrátt fyrir ítrekaða hvatningu þar að lútandi, auk þess sem ekkert sérstakt eftir- lit sé með slíku. Meðal annars er lagt til að gert verði sérstakt kynningarátak fyrir útgerðir um gerð og framkvæmd áhættumats samkvæmt reglugerð, að skoðunarstofur verði upplýstar um ákvæði reglugerðar og að fært verði inn í skoðunarskýrslur upp- lýsingar um úttektir á framkvæmd áhættumats við árlegar skoðanir á skipum. Breytt verklag og stillingar Tilefni þessara tillagna er slys sem varð um borð í frystitogaran- um Sólbergi ÓF 1 í apríl síðast- liðnum. Skipverjar voru að hífa trollið inn eftir að lás hafði brotnað í toghlera þegar einn þeirra fékk 12 kílóa gilskrók í höfuðið úr 5-6 metra hæð. Skipverjinn var með lokaðan öryggishjálm, sem brotn- aði ekki en rispaðist. Skipverjinn fékk heilahristing og slasaðist á hálsi auk slits og/eða samfalls á hálsliðum, segir í skýrslu rann- sóknarnefndar frá 1. nóvember. Það er álit nefndarinnar að orsök slyssins hafi verið að búnaðurinn var ekki rétt stilltur og því hættu- legur. Eftir slysið var stillingum breytt og einnig var tekið upp ann- að vinnufyrirkomulag . aij@mbl.is Hvetja til áhættu- mats um borð  Rannsóknarnefnd beinir tillögum til Samgöngustofu  Búnaður var hættulegur Heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö lækna í starfshóp sem kanna á stöðu framhaldsmenntunar lækna hér á landi og koma með tillögur að því hvernig tryggja megi nægi- legt framboð lækna með fram- haldsmenntun svo unnt sé að manna íslenska heilbrigðiskerfið til framtíðar. Hópurinn á að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 10. janúar. „Hópnum er ætlað að huga sér- staklega að framhaldsmenntun heilsugæslulækna og til hvaða að- gerða þurfi að grípa til að tryggja mönnun á heilsugæslustöðvum úti um land. Einnig á hann að skoða hvernig halda megi áfram upp- byggingu sérnáms lækna hér á landi. Mikilvægt er að koma á skipulegu samstarfi við önnur lönd um framhaldsmenntun lækna,“ segir í tilkynningu. Formaður starfshópsins er Runólfur Pálsson. Framhaldsmenntun lækna í skoðun Sveitarstjórnir Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðar, Djúpa- vogshrepps og Borgarfjarðarhrepps taka þessa dagana fyrir tillögur samstarfsnefndar um sameiningu sveitar- félaganna og niðurstöður atkvæðagreiðslu þar sem sameining var samþykkt. Gert er ráð fyrir að þær skipi fulltrúa í undirbúningsstjórn og ákveði verkefni henn- ar. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði og formaður samstarfsnefndarinnar, á von á því að um miðjan mánuðinn verði allar sveitarstjórnirnar búnar að fjalla um málið og undirbúningsstjórn komin með fullt umboð til að hefja formlegan undirbúning. Verkefnið er að semja drög að samþykktum, undirbúa aðlögun stjórn- sýslunnar og ákveða kjördag. Björn segir að þegar sé byrjað að undir- búa samræmingu bókhalds. Áætlað er að sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags verði kosin í aprílmánuði og hún taki til starfa hálfum mánuði síðar. helgi@mbl.is Sameining fyrir austan undirbúin Björn Ingimarsson Samkvæmt tölum frá Hagstofunni stefnir í að útflutningur í október á afurðum frá fiskeldi á Íslandi verði sá mesti í einum mánuði og verði í kringum þrír milljarðar króna, að því er fram kemur í frétt frá Sam- tökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Stærsti mánuðurinn hingað til var janúar á þessu ári, þegar eldis- afurðir voru fluttar út fyrir 2,4 milljarða króna. Þetta má lesa úr bráðabirgðatöl- um Hagstofunnar, en í þeim tölum er ekki ítarleg sundurliðun á út- flutningi, einungis birtar tölur fyrir yfirflokkana eins og landbúnaðar- afurðir í heild þar sem eldisfiskur flokkast undir. Það er mat SFS að líklega hafi útflutningur á hefð- bundnum landbúnaðarafurðum, fiskeldi undanskilið, verið í kring- um einn milljarður króna í mán- uðinum. Hagstofan birtir frekari sundurliðun á tölunum fyrir októ- ber í lok nóvember. Met Mikið var flutt út af laxi í október. Met í útflutningi fiskeldisafurða 20% afsl. til 16. nóvember Skipholti 29b • S. 551 4422 Úlpudagar Gæðaúlpur fyrir íslenska veðráttu Fylgdu okkur á facebook Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Flott föt, fyrir flottar konur Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Str: 36-52/54 Fleiri litir 7.900.- 9.800.- 14.900.- Verð: Verð: buxur Verð: Mörkin 6 - 108 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fös: 11-18 lau: 11-15 Velkomin í verslun okkar á nýjum stað í Mörkinni 6!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.