Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 30
Morgunblaðið/SES Sætt Moët nectar er í raun freyð- andi sætvín. Það má para með ýms- um mat, millisætum eftirréttum og svo getur það þjónað sem eftir- réttur í sjálfu sér. Langvinsælasta vínið frá Moët er Brut Imperial (30-40% pinot noir, 30-40% pinot meunier, 20-30% chardonnay) og seldust 4.346 flöskur af þeirri tegund í Vínbúð- unum í fyrra. Þetta vín höfðar til flestra og virkar við ýmis tilefni, m.a. sem fordrykkur í brúðkaup eða matarboð. Það má segja að þetta sé ágætis flaska til að hafa við höndina, kælda og til í slag- inn. Þannig hefur hún ósjaldan parast vel með góðu sushi. Þá kostar það svipað að opna eina slíka og kaupa sushi heim og það kostar tvo einstaklinga að fara út að borða. Imperial er millisætt vín og er níu grömmum af sykri bætt í hvern lítra framleiðsl- unnar. Moët & Chandon er hins vegar með fjölbreytta vörulínu sem m.a. hefur að geyma rosé (40-50% pi- not noir, 30-40% pinot meunier, 10-20% chardonnay) sem er brut eins og Imperial og nectar (sömu hlutföll í þrúgum og rosé) sem er svokallað demi-sec vín þar sem 45 g af sykri er bætt við hvern lítra framleiðslunnar. Flokkast nectar því í raun sem freyðandi sætvín. Fleiri línur eru sannarlega í boði, m.a. árgangsvín sem óal- gengt er að sjá hér á landi, auk svokallaðrar Ice-línu sem þróuð hefur verið fyrir þá sem vilja njóta vínsins með viðbættum klaka. Sá heimur er ókannaður af þeim sem þetta ritar. Fjölbreytt framleiðsla hæfir ólíkum tilefnum 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Á liðnu ári var kampavíni tappað á 320 milljón flöskur og sú tala ein og sér gefur ákveðna mynd af því hversu umsvifamikil framleiðslan í Champagne-héraðinu er. Um 16 þúsund ræktendur eru starfandi á svæðinu en langflestir þeirra selja þrúgur sínar eða safa af vínekrunum áfram til stórfyrirtækja sem fram- leiða gríðarlegt magn kampavíns á hverju ári. Stærri vínhúsin fram- leiða nokkrar milljónir flaskna á ári og eru vörumerki þeirra þekkt um allan heim. Moët gnæfir yfir alla aðra Eitt fyrirtæki ber þó höfuð og herðar yfir öll hin og það er Moët & Chandon. Undir því merki (ásamt lúxusmerkinu Dom Perignon) eru framleiddar um 35 milljón flöskur á ári eða um 11% allrar framleiðslu héraðsins og gerir það fyrirtækið að langsamlega stærsta kampavíns- framleiðanda heimsins. Fyrstur til að kveikja Það kemur mörgum á óvart hversu stutt saga kampavíns- framleiðslunnar í raun og veru er. Öldum saman reyndu vínbændur í Champagne að finna leiðir til þess að losna við „loftið“ úr víninu. Á þeim tíma var ekki þekkt hvað var þess valdandi að vínið tók upp á því í að freyða. Og það var ekki aðeins smekksins vegna sem bændurnir vildu losna við það sem við nú vitum að er koltvísýringur (CO2) heldur einnig sú staðreynd að flöskuglerið var í þá daga svo fábrotið að bændur sem urðu fyrir því að gerjunarferlið hélt áfram í víni sem þeir höfðu þá þegar sett á flöskur misstu allt að 90% af framleiðslunni. Flöskurnar þoldu einfaldlega ekki þrýstinginn og í vínskjöllurunum varð atburða- rásin sorglega oft á þá leið að ein flaska sprakk og olli því að fleiri urðu fyrir sömu örlögum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að gera út af við hið freyðandi vín, jukust þó vinsældir þess jafnt og þétt, einmitt vegna eiginleika þess. Einn þeirra sem sáu tækifæri í þess- um aðstæðum var maður að nafni Claude Moët. Hann var af hol- lenskum ættum. Einn forfeðra hans hét LeClerk og barðist við hlið Jó- hönnu af Örk. Sagan segir að hann hafi staðið í ströngu í baráttunni við Breta svo Frakkar gætu krýnt Karl VII. Þar sem LeClerk stóð við Dóm- kirkjuna í Reims árið 1429, þar sem konungar Frakka höfðu um aldir verið krýndir, hrópaði hann „Het moet zoo zijn“ rétt í þann mund sem Jóhanna hraðaði sér með hinn verð- andi konung inn í guðshúsið. Orðin má útleggja „það verður að gerast“ en fyrir uppátækið hlaut hann nýtt nafn af hendi konungs, Moët! Hlustaði ekki á úrtöluraddir En aftur að Claude, afkomanda hans. Þrátt fyrir ítrekuð aðvörunar- orð vina sinna sat hann við sinn keip. Hann ætlaði sér að helga framleiðsl- una, sem hann stofnaði til 1743, hinu freyðandi víni. Og það er til marks um staðfestu hans – en einnig skyn- bragð á breyttar neysluvenjur – að innan fárra ára framleiddi hann 50 þúsund flöskur af hinu fyssandi víni á ári. Það verður að teljast einstakt afrek því alla 18. öldina nam heildar- framleiðsla í Champagne sjaldnast meira en 300 þúsund flöskum á ári. Hin gríðarmikla framleiðsla af hendi Claude Moët varð því fyrirboði um það sem koma skyldi. Hann hefur þó eflaust ekki getað gert sér í hugar- lund að 250 árum síðar yrði fram- leiðslan hjá fyrirtækinu einu orðin meira 100-falt meiri en öll fram- leiðsla héraðsins um hans daga. Þrátt fyrir hugkvæmni Claude Moët hefði hún ein og sér ekki dugað til þess að fleyta fyrirtæki hans áfram og á þann stað að verða lang- stærsti kampavínsframleiðandi sam- tímans. Til þess að það mætti verða hlutu fleiri að leggja hönd á plóginn, einkum þeir sem tóku við keflinu á áratugunum eftir hans dag. Í þeim hópi stóð án efa Jean-Rémy Moët, barnabarn hans. Sem ungur maður tókst hann á hendur það verkefni að auka hróður fjölskyldufyrirtækisins. Ferðaðist hann víða í þeim tilgangi. Dag einn átti hann leið um Brienne í Champagne en þar var starfræktur konunglegur herskóli franska ríkis- ins. Verkefnið var að fá forsvars- menn skólans til þess að kaupa sem mest af kampavíni. Í því starfi kynntist hann ungum hermanni að nafni Napóleon Bona- parte. Sá átti eftir að setja svip sinn á söguna og hann elskaði kampavín. Sú staðreynd hefur rækilega verið undirstrikuð í ummælum sem eftir honum eru höfð þar sem fjallað var um kampavín: „Í sigri áttu það skil- ið, í ósigri þarftu á því að halda!“ Stórveldi einsog Frakkland Fyrir tilstuðlan Napóleons óx virðing Moët gríðarlega og auðg- aðist Jean-Rémy mjög af þeim völd- um. Þegar hershöfðinginn hafði krýnt sjálfan sig keisara í Notre Dame í París ákvað Jean-Rémy að taka til óspilltra málanna í því skyni að búa sem best að valdhafanum og keisaraynju hans, Josephine, þegar þau ættu leið um Champagne. Lét hann því reisa eftirmynd Trianon- hallarinnar í Versölum. Verða áhrif Napóleons á vöxt og viðgang Moët seint ofmetin. Langstærsti framleiðandinn  Moët & Chandon framleiðir um 35 milljónir flaskna af kampavíni á ári hverju  Jafngildir 11% allrar framleiðslunnar í Champagne  Napóleon Bonaparte hafði mikil áhrif á vöxt og viðgang fyrirtækisins Vínkjallarar Moët eru gríðarlegir að vöxtum og þar má rekast á ótrúlega verðmætar flöskur frá merkustu árgöng- um 20. aldarinnar. Innarlega í einum þeirra má finna víntunnu mikla að vöxtum sem var gjöf Napóleons Bonaparte til Moët-fjölskyldunnar. Hún er í öndvegi og vitnar um nána vináttu keisarans við hin lunkna sölumann, Jean-Rémy. Þessi grein er hluti greina flokks sem aðgengilegur er innskráð um notendum á mbl.is. Allt í allt verða grein arnar 14 talsins og verða birtar vikulega fram á nýtt ár. Málþing með notendum Faxaflóahafna Fimmtudaginn 7. nóvember 2019, kl. 16:00 í Hörpu Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast um starfsemina á hafnarsvæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til málþings fimmtudaginn 7. nóvember kl. 16:00, Björtuloft, 5. hæð, Hörpu. Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. og verður sem hér segir: 16:00 Ávarp formanns Skúli Þór Helgason, stjórnarformaður 16.10 Yfirlit hafnarstjóra um verkefni og framkvæmdir ársins 2020 Gísli Gíslason, hafnarstjóri 16:30 Uppbygging á Austurbakka – skipulag í Örfirisey Hildur Gunnlaugsdóttir, skipulagsfulltrúi 16:45 Rafmagn til skipa – framhald mála Gunnar Tryggvason, aðstoðarhafnarstjóri 17:00 Hátækni vöruhús Innnes Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innness 17:15 Átakið #kvennastarf Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri Skipstjórnar- og Véltækniskóla Tækniskólans 17:30 Umræður og fyrirspurnir 18:00 Fundarslit Fundarstjóri: Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. eru sérstaklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar um það sem varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini. Gísli Gíslason, hafnarstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.