Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 67
víra og gera skipið tilbúið fyrir kol-
munnavertíðina sem verður fram að
jólum.
Áhugasvið Alberts hefur lengi
verið hestamennska og hefur hann
átt hesta síðan um fermingaraldur.
„Þessi áhugi blundaði í mér alla tíð
frá því að ég man eftir mér. Þegar ég
var 6-7 ára gamall og hjólaði á hverj-
um degi upp í hesthús til að fylgjast
með hestunum og hestamönnunum.
Enginn skildi í þessum áhuga mín-
um því ekki nokkur maður í minni
fjölskyldu hefur verið í hesta-
mennsku. Langafi minn, Haraldur
Böðvarsson, var þó hestamaður,“ en
Albert er með fimm hross núna en
var mest með tíu.
Fjölskylda
Eiginkona Alberts er Ásta Pála
Harðardóttir, f. 27.6. 1970, yfir-
þroskaþjálfi hjá Fjöliðjunni – Akra-
neskaupstað. Foreldrar Ástu Pálu:
Hjónin Hörður Sigþórsson, fv. um-
sjónarmaður, f. 2.8. 1947, og Freyja
Kolbrún Þorvaldsdóttir móttökurit-
ari, f. 26.2. 1947, d. 16.11. 2016.
Börn Alberts og Ástu Pálu eru 1)
Sindri Albertsson, f. 29.11. 1990,
leiðbeinandi, bús. á Akranesi 2) Atli
Albertsson, f. 3.11. 1994, íþrótta-
fræðingur, sambýliskona er Eva
Katrín Friðgeirsdóttir, f. 29.12 1994,
íþróttafræðingur, þau búa í Reykja-
vík; 3) Albert Páll Albertsson, f.
19.1. 1996, nemi og sjómaður, sam-
býliskona er Emilía Halldórsdóttir
íþróttafræðingur, f. 29.12. 1993, þau
búa á Akranesi.
Bróðir Alberts er Sturlaugur
Friðrik Sveinsson, f. 27.7. 1976, sjó-
maður, bús. á Akranesi.
Foreldrar Alberts eru hjónin
Sveinn Sturlaugsson, f. 9.6. 1951, fv.
útgerðarstjóri og Halldóra Friðriks-
dóttir, f. 20.5. 1950, tannsmiður. Þau
eru búsett á Akranesi.
Albert Sveinsson
Halldóra Loðmfjörð Sigurðardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Stefán Loðmfjörð Jónsson
sjómaður í Reykjavík
Karla Stefánsdóttir
húsmóðir í Reykjavík og á Akranesi
Halldóra Friðriksdóttir
tannsmiður á Akranesi
Friðrik Jónsson
skipstjóri og síðar útgerðarstjóri
Sementverksmiðju ríkisins
Ástríður María Eggertsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Jón Eyjólfur Bergsveinsson
skipstjóri og erindreki
Slysavarnafélags Íslands
Sturlaugur Sturlaugsson fv
framkvæmdastjóri hjá HB & Co
Haraldur Sturlaugsson
fv. forstjóri HB & Co
Matthea Kristín Pálsdóttir Torp
saumakona í Reykjavík
Pálmi Hannesson
rektor MR. Kjörfaðir:
Christian Evald Torp
veitingamaður í Rvík
Rannveig Pálmadóttir Torp Böðvarsson
húsmóðir á Akranesi
Sturlaugur Haraldsson Böðvarsson
útgerðarmaður á Akranesi
Ingunn Sveinsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Haraldur Böðvarsson
útgerðarmaður á Akranesi
Úr frændgarði Alberts Sveinssonar
Sveinn Sturlaugsson
fv. útgerðarstjóri á Akranesi
DÆGRADVÖL 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
„ÉG SKILAÐI ALDREI NEINNI HEIMAVINNU.
ÉG NEITA AÐ BIÐJAST AFSÖKUNAR Á
EINHVERJU SEM ÉG GERÐI EKKI.”
„BÍDDU, BÍDDU! LESTU AFTUR PARTINN UM
AÐ VERA TRÚ, ELSKA OG VIRÐA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stefnumót við
örlögin.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG VONA AÐ VIÐ
LIFUM ÞETTA AF!
ÉG VARAÐI
ÞIG VIÐ!
DREPIST!
DREPIST!
DREPIST!
ÞAÐ MÁ EKKI GANGA Á
GRASINU HJÁ ÓLA GAMLA!
GANGIÐ
EKKI Á
GRASINU
Ó,
AFSAKIÐ FAGFÓLK ER
VANDFUNDIÐ
Frétt kom í Morgunblaðinu umað Samson klónaður undan
Sámi væri fæddur. Kötturinn Jós-
efína Meulengracht Dietrich gat
ekki orða bundist: „Þegar ég las
þessa frétt rifjaðist upp fyrir mér
að síðast þegar við Eiður frændi
héldum draugablót birtist dauður
hundur og kvað döprum rómi:
Samson minn í kví kví
komdu hérna því því
ég skal bíta í rófuna þína,
rófuna þína ég glefsa í.“
Á hinn bóginn er Hjálmar Frey-
steinsson fullur „bjartsýni“:
Ef ég kerskni allri sleppi
á því fulla trú ég hef,
að verði mesti sóma seppi
Sámur II. Moussaieff.
Gunnar Örn Ólafsson gaukaði
þessari skemmtilegu vísu að mér.
Hún er eftir Kolbein í Kollafirði:
Öldur háar flóum frá
földum slá að dröngum;
haustsins brá er öllu á
Esjan grá í vöngum.
Hér er önnur staka eftir Kolbein:
Aldrei betur auðnudís
yndið lét við stráki
en hart á vetrar hálum ís
henst að geta á fáki.
Ragnheiður Stefánsdóttir birtir
þessi fallegu erindi á Boðnarmiði:
Þú átt í huga þínum margar myndir
og minningar um það sem áður var.
Hlátur, gleði, ást og sætar syndir
en sorgin á sér líka bústað þar.
Seinna þegar göngu lífsins lýkur
og leggur þú í ferð á æðra stig.
Verður einhver hér af reynslu ríkur
að rifja upp góðar minningar um þig.
Pétur Stefánsson yrkir og fyrst
ferskeytt:
Árla morguns upp ég rís
útsofinn og glaður.
Er ég til þess alveg vís
að yrkja lygablaður.
Margt er sér til gamans gert
sem gerir lífið betra.
Mér er afar mikilsvert
að mega kvæðin letra.
Síðan yrkir hann braghent sam-
rímað:
Kaffitár og kleinuhringir kæta geðið.
Bráðum hefst hér stefjastreðið,
sterkum rómi verður kveðið.
Innra með mér enn má greina andans
strauma.
Enda finn ég í mér krauma
einhverskonar frægðardrauma.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um klónun og
snjóar í fjöll