Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 VIÐTAL Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum „Það var íþróttasýning, sem Helga Hallbergsdóttir, forveri minn í starfi, setti upp í sumar og þar sé ég mynd af manni frá Vestmanna- eyjum sem hafði fengið viðurkenn- ingu fyrir að hafa farið á Ólympíu- leikana í Berlín 1936,“ segir Hörður Baldvinsson, forstöðumaður Sagn- heima í Vestmannaeyjum, um það sem kveikti áhuga hans á Íslend- ingum sem fóru á Ólympíuleikana þetta ár í Berlín þegar Adolf Hitler og nasistaflokk- urinn réðu öllu í Þýskalandi. Alls fór um 50 manna hópur frá Íslandi og þar af fimm frá Vest- mannaeyjum. Var þetta mikið ævintýri fyrir þessa menn, að koma frá litla Ís- landi sem var svo langt á eftir Evr- ópulöndum í flestu, til Þýskalands sem á þessum tíma skaraði fram úr og tjaldaði öllu til að Ólympíuleikarnir yrðu sem glæsilegastir; áttu að sýna yf- irburði þýsku þjóðarinnar og nas- ismans. Leikmynd sem byggð var á hörmungum og var rústir einar inn- an við áratug síðar þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk. Íslendingum var sérstaklega boð- ið á leikana og tóku gestgjafarnir einstaklega vel á móti þeim. Þeir sem fóru frá Vestmannaeyjum voru Sigurður Sigurðsson sem keppti í hástökki og þrístökki þar sem hann komst í úrslit. Karl Vilmundarson keppti í tugþraut en hætti eftir tvær greinar. Friðrik Jesson sýndi glímu. Hann var fimmfaldur Íslandsmeist- ari í frjálsum og talinn einn fjölhæf- asti íþróttamaður landsins á þeim tíma. Jón Ólafsson sýndi einnig glímu. Hann var alhliða íþróttamað- ur, stundaði bæði frjálsar íþróttir og knattspyrnu og þótti afburðagóður kylfingur. Þorsteinn Einarsson, glímukóngur Ármanns, methafi í kúluvarpi, formaður íþróttaráðs Vestmannaeyja og síðar íþrótta- fulltrúi ríkisins, var fararstjóri hóps- ins. Fimm frá Eyjum Hörður segir að myndin góða hafi kveikt í sér svo um munaði. „Ég fór að skoða hvort það væru til ein- hverjar myndir eða frásagnir af þessari ferð. Þannig byrjaði þetta. Ég fer að gúgla og fer inn á tímarit.is frá þessum tíma. Hélt áfram að gramsa, finn brot og brot og sé að þetta eru fimm menn frá Eyjum. Þrír eru í hópnum sem sýna glímu og tveir taka þátt í frjáls- íþróttakeppninni á leikunum,“ seg- ir Hörður og nú var áhuginn vakn- aður fyrir alvöru. „Staðreyndin er sú að það er afskaplega lítið skrifað um þessa Ólympíuleika hér á landi ann- að en að þetta hafi verið nasista- áróður. Hafði ég samband við ÍSÍ en þar var ekkert til. Ekkert. Svo er ég að gramsa inni í skjalageymslu, finn þar fyrstu ljósmyndina og fer að hringja í ættingja. Hringi m.a. í son Sigurðar Sigurðssonar, Sigurð Sæv- ar, og spyr hvort eitthvað hafi varð- veist en hann hélt að svo væri ekki. Tveimur til þremur vikum seinna fékk ég þær fréttir að fundist hefði kassi í geymslu hjá dóttur hans,“ segir Hörður og þarna fór boltinn að rúlla af krafti. Afkomendur hjálplegir Börn Sigurðar gáfu kassann til safnsins og í ljós kom að hann hafði ekki bara að geyma ljósmyndir. „Þarna voru viðurkenningar, blöð og bækur sem hann fékk á meðan hann var þarna úti. Þarna fer púsl- unum að fjölga og seinna koma dóttir og tengdasonur Friðriks Jes- sonar, Ágústa og Kristján Egilsson, með gögn. Sonur Jóns, Sigurður Þórir, átti í fórum sínum eitt og annað sem nýttist mér vel. Enn seinna fæ ég albúm með myndum og ég get farið að teikna þessa sögu upp,“ segir Hörður sem leitaði fanga hjá Ljósmyndasafni Reykja- víkur, Þjóðminjasafninu, þýska sjónvarpinu og aflaði gagna eins víða og hann taldi mögulegt. „Loksins var ég kominn með frá- sögn sem mér fannst að mætti alveg heyrast. Setti mig inn í tíðarandann. Finn viðtal í Þjóðhátíðarblaðinu við Sigurð Sigurðsson þar sem hann segist hafa kynnst Jesse nokkrum Owens sem er kannski frægasti frjálsíþróttamaður allra tíma. Sigr- aði þýska keppandann í 100 metra hlaupinu, sem ekki var Hitler að skapi. Þeim varð vel til vina og fékk hann eiginhandaáritun Owens sem verður til sýnis hér á Sagnheimum.“ Ólíkar aðstæður Hörður hefur skoðað alla um- gjörð leikanna, leikvanginn, ólymp- íuþorpið og bar saman frásagnir. „Sigurður var eins og hver annar Eyjamaður, í sinni vinnu en var greinilega mikill íþróttamaður frá náttúrunnar hendi. Hleypur hér upp um öll fjöll og lýsir því þegar hann í mestu frostum fékk að æfa inni í Lifrarsamlaginu þar sem var moldargólf. Þetta var illa séð hjá fullorðnum sem spurðu: af hverju ert þú ekki að vinna strákur? Hvaða djöfulsins sprikl er þetta? Það er gaman að bera þetta saman við nú- tímann og leikvanginn í Berlín sem rúmaði 100.000 manns í sæti. Reyna að ímynda sér hvernig það var fyrir Íslendingana að labba inn á þennan leikvang, þar sem áhorfendur voru fleiri en bjuggu á Íslandi. Þetta er slíkur fjöldi, ekki síst fyrir peyjana frá Eyjum þar sem tíu til tuttugu mættu til að horfa á. Þeir voru bara sveitamenn og upplifelsið, allt frá því þeir stigu á land í Hamborg þar til haldið var heim aftur. Lúxus í lestinni Þegar Goðafoss kemur til Eyja, þar sem fimmmenningarnir eru ferjaðir um borð, er búið að setja trégólf í afturlestina og til að undir- strika lúxusinn var sett segl innan á lestina og 50 dýnur. Það var ekki verið að bæta við björgunabátum þótt 50 manns væru í lestinni. Sal- ernisaðstaðan var eftir því sem ég veit best klósett og einn vaskur og sturtan spúl uppi á dekki. Þetta er ferðalag sem tók á annan mánuð. Eftir móttöku í Hamborg tekur við hraðlest til Berlínar. Enginn þeirra hafði séð járnbrautarlest, hvað þá stigið inn í hana. Það er farið með þá í ráðhús Hamborgar sem er 112 metra há bygging og 27 þúsund fer- metrar, alveg gríðarleg bygging. Þessir menn höfðu aldrei séð neitt í líkingu við þetta. Þeir koma í borgir með hellulögðum strætum, margra hæða húsum, bílum, strætisvögnum og mótorhjólum sem hefur verið gríðarleg upplifun fyrir Íslend- ingana sem þarna voru mættir.“ Níu árum síðar, í febrúar 1945, er Dettifoss skotinn niður af Þjóð- verjum skammt undan Reykjanesi og varð mikill mannskaði. Ævintýraferð til Berlínar 1936  Fimmtíu Íslendingar sóttu Ólympíuleikana þetta ár, þar af fóru fimm frá Vestmannaeyjum  Forstöðumaður Sagnheima hefur nú raðað saman ferðasögunni úr frásagnarbrotum og myndum Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Sögumaður Hörður Baldvinsson, safnstjóri Sagnheima í Eyjum, með mynd af Friðriki Jessyni í fullri stærð. KORRIDOR steypudýr fleiri tegundir til Verð frá 6.990,- Kringlunni | KARTELL BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- RITZENHOFF ASPERGO Verð 4.900,- 6 stk. í pakka HOLMEGAARD Kertalukt grey Verð frá 9.990,- stk. COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða Verð frá18.900,- SPECKTRUM SCARLETT Vasi - fleiri litir Verð 6.790,- SPECKTRUM CRUSH Kertastjaki - fleiri litir Verð 7.490,- stk. HOLMEGAARD Karafla Jól 19 Verð 0,7L 6.990,- Kringlunni | Sími 588 0640 20% afsláttur af gjafavöru á miðnæturopnun í kvöld 7. nóv KARTELL BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 21.900,- KAY BOJESEN Söngfugl –fleiri litir Verð frá10.990,- SPECKTRUM SILO Vasi - fleiri litir Verð 4.890,- stk. ROSENDAHL KAREN BLIXEN Jólaóróar Verð frá 2.190,- stk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.