Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 53
Við minnumst okkar ástkæru móður Jónínu Hólmfríðar Víg- lundsdóttur, Nínu, eins og hún var alltaf kölluð. Hún fæddist 17. febrúar 1942 á Hólum í Fljótum í Skagafirði og lést 7. nóvember 2018. Foreldrar hennar voru Víg- lundur Arnljótsson og Hermína Marinósdóttir. Þau eignuðust 14 börn og var Nína þriðja elst. Hún ólst upp á Akureyri en fór 16 ára gömul til Siglufjarðar að vinna í síld. Þar lágu leiðir þeirra Þóris Jónína Hólmfríður Víglundsdóttir ✝ Jónína Hólm-fríður Víg- lundsdóttir fæddist 17. febrúar 1942. Hún lést 7. nóv- ember 2018. Útförin fór fram 18. nóvember 2018. Björnssonar saman og hófu þau búskap. Þau giftu sig 23. febrúar 1964. Það voru engar tísku- verslanir í bænum en Nína saumaði, breytti og bætti föt- in þannig að allir tóku eftir henni hvert sem hún fór, enda einstaklega glæsileg kona. Barnalánið lék við þau og eign- uðust þau sitt fyrsta barn, Gunn- hildi Gigju, árið 1960. Ári síðar fæddist Björn, Hermann 1963 og Fjóla 1966. Var þá orðið þröngt í kotinu og flutti fjölskyldan í stærra hús á Suðurgötu 76. Ári síðar féll snjóflóð á húsið. Eign- uðust þau svo Jónþór árið 1968. Þau fluttu til Vestmannaeyja árið 1970 og þar fæddist Sonja árið 1972. Eldgosið 1973 varð til þess að fjölskyldan fluttist í fyrsta viðlagasjóðshúsið í Garða- bæ. Nokkrum árum síðar fluttu þau í Lækjarfit 3. Það heimili vekur góðar minningar hjá fjöl- skyldunni enda var þar oft glatt á hjalla og allir voru velkomnir. Nína var hagsýn og dugleg húsmóðir og hélt fallegt heimili. Hún var mikil prjóna- og sauma- kona og saumaði ekki aðeins föt- in á sig heldur einnig á börnin og barnabörnin. Allir voru dressað- ir upp. Hún var umburðarlynd og barngóð kona og yndisleg amma. Henni þótti gaman að spila, fara í bingó með Helgu systur og að dansa, þar sem hún var glæsileg- asta konan á dansgólfinu. Hún hafði mikinn húmor og gat gert grín að sjálfri sér. Nína var mikil félagsvera framan af en um fer- tugt missti hún stóran hluta af heyrninni og hafði það veruleg áhrif á lífsgæði hennar. Stórt skarð var höggvið í fjöl- skylduna þegar Hermann sonur þeirra lést af slysförum aðeins 21 árs að aldri. Nína naut sín ein- staklega vel í hópi systkina sinna og voru þau miklir vinir. Villa- ættarmótin hafa verið ófá og skemmtileg. Þau hjónin nutu þess að ferðast innanlands í tjaldi, hjól- hýsi og húsbíl ásamt því að dvelja á Spáni. Nína og Þórir voru samheldin og unnu saman við eigin rekstur í fjölmörg ár. Nína hafði einstakt lag á börn- um og gaf sér alltaf tíma til að sinna barnabörnunum 13 og barnabarnabörnunum sjö. Ömm- ustrákurinn Viktor Ingi var mik- ið inni á heimili ömmu og afa og kom oft til þeirra eftir skóla til að spila og lesa fyrir ömmu og reikna með afa. Síðustu árin fór heilsu Nínu að hraka en aldrei var kvartað. Síðustu mánuði var mjög af henni dregið og ljóst hvert stefndi. Óskaði hún eftir að eiga síðustu stundirnar í faðmi fjöl- skyldu sinnar heima og fór útför- in fram í kyrrþey. Elsku mömmu verður minnst sem fallegrar og yndislegrar konu og hún kvödd með hlýju í hjarta eftir gæfuríka ævi. Gunnhildur Gígja, Björn, Fjóla, Jónþór og Sonja. braut. Minningar skapaðar sem við eigum saman og eru mjög kærkomnar á stund sem þessari. Þú ert einn af þeim vinum sem héldu sambandi eftir menntaveg- inn þrátt fyrir að líf okkar hafi þróast í mismunandi áttir og lönd. Við héldum því áfram að eiga góðar stundir saman. Utanlands- ferðirnar standa þar upp úr þar sem við félagarnir fengum okkar tíma saman, upplifðum nýja staði, borðuðum góðan mat og nutum lífsins. Við félagarnir fórum saman til New York, þar varst þú ákveðinn í því að vera fararstjóri enda verið þar áður með systrum þínum og hafðir ákveðna sýn á allt sem átti að gera. Fyrir vikið varð ferðin mjög litrík og skemmtileg. Til dæmis fórum við á NBA-leik. Okkar sæti voru frekar hátt uppi í höllinni og útsýnið eftir því. Þá ákvaðstu bara að fara niður á gólfið til að sjá betur þar sem bestu sætin voru. Það var bara einn maður af okkur félögunum sem var nægj- anlega ákveðinn og sjarmerandi til að geta komið sér í neðstu sæt- in og það varst þú. Alveg ógleym- anlegt þegar þú hringdir svo í okkur til að lýsa leiknum enda við enn fastir í sömu sætum. Þegar við fórum í skíðaferðir til St Anton var alveg augljóst hvað þér leið vel þar, endalausar brekkur, útivist, náttúra og fólk. Keppnisskapinu og útivistarþörf- inni var þar fullkomlega mætt enda varstu alltaf klár í brekk- urnar, vildir fara lengra en dag- inn áður og helst bóka næstu ferð strax. Ferðirnar okkar verða víst ekki fleiri í bili, þegar ég hugsa til þín núna Halli þá trúi ég að þér líði vel á hestinum þínum Glóa í fallegum og björtum dal á leiðinni inn í sólina. Með trega í hjarta kveð ég þig, elsku vinur. Þorvarður Jóhannesson. Það er erfitt að kveðja góðan vin. Ég kynntist Hallgrími þegar ég flutti til Íslands fyrir tæpum 20 árum. Með okkur myndaðist fljótt traustur og góður vinskap- ur, hvort sem Halli bjó í Reykja- vík eða annars staðar. Þegar ég bjó á Öldugötunni var Halli mikill heimilisvinur og það- an á ég margar góðar minningar frá pottaferðum og grillveislum þar sem við sátum oft langt fram eftir úti í garði að spjalla á góðum sumarkvöldum. Einnig áttum við margar góðar stundir saman á ferðalögum, hvort sem við fórum í sumarbú- stað, útilegur eða til útlanda í sumarfrí. Fótboltinn var okkar sameig- inlega áhugamál. Við vorum stór hópur vina sem hittumst reglu- lega til að horfa saman á Liver- pool-leiki og nú hefur stórt skarð verið höggvið í fótboltahópinn okkar sem erfitt verður að fylla. Hallgrímur var stór partur í lífi strákanna minna og var hann nánast eins og frændi þeirra. Elís og Leó litu upp til hans og voru svo heppnir að fá að fara með honum á landsleiki í fótbolta og oft var farið á KR-völlinn. Þetta eru minningar sem þeir munu aldrei gleyma og geta sagt litla bróður frá seinna. Fyrir nákvæmlega ári vorum við hjá Halla á Hótel Búðum og það var svo gaman að sjá hvað hann var ánægður í sínu starfi þar sem veislustjóri. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn, kæri vinur, og von- andi eigum við einhverntímann eftir að sjást síðar. Ég sendi foreldrum hans og systkinum mínar dýpstu samúð- arkveðjur. Þinn vinur, Gjen. Elsku Halli. Það er erfitt að átta sig á sam- hengi hlutanna þegar ungur mað- ur, æskuvinur, kveður svo skyndilega. Maður situr eftir og rifjar upp gamla góða tíma, einn eða í kringum alla hina fjölmörgu vini þína. Það er erfitt að finna orðin en minningarnar eru ljóslif- andi, sorgin mikil og tárin ófá. Þó er alltaf stutt í brosið þegar ég hugsa til baka. Uppátækin voru mörg. Þú gast verið með afbrigðum stríðinn, meira að segja við móður mína, sem mér þótti skemmtilegt, en líka við mig, sem mér þótti stundum verra. Þá gátum við báð- ir verið þrjóskir en sættumst allt- af að lokum. Það var alltaf gaman að kíkja í heimsókn til þín, hvort sem það var til að horfa á leik, borða saman með strákunum eða bara spjalla. Þar voru alltaf allir velkomnir og oft mikið fjör, ærslagangur og gleði. Ég mun sakna þess. Mest mun ég þó sakna góðs vinar. Fjölskyldu og vinum Hall- gríms sendi ég innilegar samúð- arkveðjur. Þinn vinur, Einar. Hallgrímur var afar kær sam- starfsfélagi á Hótel Búðum og fagmennska einkenndi öll störf hans í samskiptum við gesti og samstarfsfólk. Í starfi sínu sem veitingastjóri á Hótel Búðum þurfti Hallgrímur að sinna mörgum og ólíkum störf- um, en meðal annars sinnti hann sumum af flóknustu verkefnum sem komu upp í rekstri Hótel Búða. Til að mynda hafði hann umsjón með brúðkaupsveislum sem algengt er að halda á hót- elinu og er einn mikilvægasti og fallegasti dagur í lífi hjóna þar sem helst ekkert má fara úrskeið- is. Hann fékk mikið hrós fyrir störf sín frá bæði íslenskum og al- þjóðlegum gestum fyrir skipulag, samviskusemi og fallega fram- komu við gesti. Hallgrímur hafði mikinn metnað fyrir veitingadeild Hótel Búða og hafði ánægju af að kynna fyrir gestum nýjungar frá litlum innlendum framleiðendum. Hótel Búðir er lítill og náinn vinnustaður þar sem hluti starfs- fólks vinnur og býr saman stóran hluta ársins og því er söknuður allra mjög mikill að þurfa að kveðja náinn samstarfsfélaga undanfarinna ára með svo skyndilegum og sorglegum hætti. Fyrir hönd starfsfólks og eig- anda Hótel Búða votta ég fjöl- skyldu Hallgríms mína dýpstu samúð og bið góðan guð að styrkja þau á þessum sorgartím- um. Sigurður Arnór Hreið- arsson, framkvæmdastjóri Hótel Búða. Kær vinur og samstarfsfélagi Hallgrímur Þormarsson er í dag borinn til grafar. Það er svo und- arlegt hvað allt getur breyst á svipstundu, þú ert ekki lengur á Hótelbarnum skenkjandi freyð- andi víni og gullnar veigar á lífs- ins gleðistundum. Þú ert farinn í ferðalagið sem enginn getur fylgt þér í. Harmi þrungin kveðjum við þig (í bili) elsku Halli „Búðingur“. Enginn getur fylgt þér á göngu þinni upp himinbogann að hliðum ljóssins. Þegar heimurinn hverfur þér eins og grein, sem fellur af sjálfu sér og tíminn og forlögin ríkja ekki lengur yfir þér. Þegar þú stendur í skugga eilífðarinnar og hlustar á söng hinna djúpu vatna sem eiga sér engar strendur. Enginn getur fylgt þér, þegar þú á göngu þinni upp himin- bogann, hlustar á sönginn, sem kallar á sál þína að hliðum ljóssins. (Gunnar Dal) Agnes Lind Heiðarsdóttir og Berglind Arnardóttir, samstarfskonur Hallgríms á Hótel Búðum. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 ✝ ÞórarinnBrynjar Þórð- arson fæddist 2. október 1929 í Keflavík. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 20. október 2019. For- eldrar hans voru Kristjana Magnús- dóttir, f. 1904, d. 2003, og Þórður Sigurðsson, f. 1898, d. 1937. Alsystkini Þórarins Brynjars: Höskuldur Arnar, f. 1926, Dallý Arna, f. 1927, og Þóra Hjördís, f. 1935, d. 2004. Bróðir samfeðra Guðmundur, f. 1919, d. 2000, og systur sam- mæðra Jóhanna Sigurþórs- dóttir, f. 1945, og Guðfinna Sig- urþórsdóttir, f. 1946. Þórarinn Brynjar kvæntist árið 1951 eftirlifandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Valtýsdóttur, f. í Vestmannaeyjum 17.6. 1930. Foreldrar hennar voru Ásta Sig- rún Guðjónsdóttir, f. 1905, d. Árnason, f. 1959. Synir þeirra: Ragnar Már, Árni Þorkels, Ást- þór Valur, Ágúst Helgi og Jón Aðalberg. 6) Sigurþór, f. 1966. Eiginkona hans Inga Sif Gísla- dóttir, f. 1968. Börn þeirra: Sig- urþór Ingi og Ólöf Jóhanna. Fyrir átti Inga Sif soninn Gísla Steinar Sverrisson. Afkomend- ur Þórarins Brynjars og Jó- hönnu eru 60. Þórarinn Brynjar stundaði sjómennsku á yngri árum. Var á farskipum, m.a. um árabil á ms. Kötlu. Hann var menntaður rennismiður og vélvirki. Hann rak vélsmiðjuna Óðin sf. í Kefla- vík frá árinu 1958 til 2003 ásamt Höskuldi bróður sínum. Þórar- inn Brynjar var virkur félagi í Björgunarsveitinni Stakk. Hann var félagi í Rótarýklúbbi Kefla- víkur í um áratug. Ferðir um óbyggðir Íslands ásamt eigin- konu, fjölskyldu og vinafólki voru um árabil ástríða hans og gamli Weaponinn reyndist vel í þeim svaðilförum. Ævintýra- ferðir erlendis áttu hug þeirra hjóna um skeið og í Grímsnesinu byggðu þau sér sumarbústað Útför Þórarins Brynjars fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 7. nóvember 2019, og hefst at- höfnin klukkan 13. 1999, og Valtýr Brandsson, f. 1901, d. 1976. Börn Þór- arins Brynjars og Jóhönnu: 1) Þór- anna, f. 1951. Eig- inmaður hennar Kristmann Klem- ensson, f. 1946. Börn þeirra: Krist- ján, Guðrún, Jó- hanna, Brynja og Péturína Lára. 2) Valdís, f. 1953. Eiginmaður hennar Helgi Hermannsson, f. 1953, d. 2005. Synir þeirra: Her- mann, Jóhann Þór og Pétur Örn. 3) Kristján, f. 1954. Eigin- kona hans Erla Sólbjörg Kjart- ansdóttir, f. 1954. Börn þeirra: Kjartan Steinar, Ágústa Kol- brún, Þórarinn Brynjar og Kristján Þór. 4) Brynjar, f. 1957. Eiginkona hans er Hulda Guð- laug Sigurðardóttir, f. 1952. Börn þeirra: Þórður Freyr og Sigrún Lovísa. 5) Ásta, f. 1961. Eiginmaður hennar er Árni Þór Faðir minn, Þórarinn Brynj- ar, varð níræður 2. október síð- astliðinn. Þeim merka áfanga náði hann ekki að fagna með þeim hætti sem við í fjölskyld- unni hefðum kosið. Veikindi settu strik í reikninginn og að- eins fáum vikum síðar lést hann á Landspítalanum. Vegna starfa minna á þeim vettvangi auðnaðist mér að sitja löngum stundum við hlið hans síðustu dagana í lífi hans; fylgja honum eftir síðustu sporin. Fyrir mér var það mikilvægt. Svo mikið á ég honum að þakka. Þessa daga dáðist ég að rólyndi hans og æðruleysi. Og þannig var hann að skaplyndi. Miklaði ekki hlut- ina fyrir sér, rólyndur og yf- irvegaður og lét fátt koma sér úr jafnvægi. Pabbi var mér fyr- irmynd á mörgum sviðum. Hann var ákaflega handlaginn og nákvæmur í öllu handverki, hvort heldur hann stóð við rennibekkinn, byggði sumarbú- stað eða aðstoðaði börnin sín við ýmsar framkvæmdir. Þegar ég stóð í byggingarfram- kvæmdum fyrir nokkrum árum munaði um liðsinni hans. Þegar eitthvað gekk ekki upp í mínum huga mat hann stöðuna í róleg- heitum og fann oftar en ekki lausnina. Hann var úrræðagóð- ur, ekkert var í hans huga óyf- irstíganlegt. Vandamálin eru til þess að leysa þau sagði hann gjarnan. Pabbi var ekki mikið fyrir að hreykja sér en sam- ferðamenn hans sögðu mér ýmsar sögur af hæfileikum hans, hugviti og verklagni. Pabbi var greiðvikinn maður og vel liðinn af samferðamönnum sínum. Hann var félagslega sinnaður og naut þess að starfa í ýmsum félagasamtökum. En mikilvægast í huga hans var fjölskyldan. Við systkinin minn- umst þess, hvernig hann og móðir okkar mótuðu heimilis- brag sem var okkur til eftir- breytni. Jákvæðni, hlýja og um- burðarlyndi en ekki síst var okkur innrætt, að samvisku- semi og vinnusemi væri dyggð. Ég kveð pabba minn með sökn- uði í hjarta en um leið með þakklæti fyrir allt sem hann var mér. Megir þú hvíla í friði, elsku pabbi minn. Þinn sonur, Sigurþór. Frá fyrstu kynnum var tengdafaðir minn, Þórarinn Brynjar, mér kær. Hann var mikill öðlingur og naut virð- ingar og elsku allra þeirra sem honum tengdust. Fjölskyldan átti hug hans allan og hann fylgdist alla tíð af áhuga með börnum sínum og barnabörn- um. Ég kveð góðan mann og kæran tengdaföður með þess- um ljóðlínum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Inga Sif Gísladóttir. Kveðja frá Stakksfélögum og ferðahópnum Brynjar í Óðni var það nafn sem við kölluðum hann oftast enda kenndur við vélsmiðjuna Óðin sem hann rak og vann í stóran hluta lífs síns. Þegar sá sem þetta ritar kynntist þeim hjónum höfðum við Brynjar eignast öflugar fjórhjóladrifnar bifreiðar sem voru notaðar óspart til ferðalaga um óbyggð- ir Íslands. Þau Brynjar og Jó- hanna ásamt börnum voru afar dugleg við að stunda slíkar ferðir og njóta. Ég minnist ótal ferða norður fyrir Hofsjökul í Ásbjarnarvötn, suður Sprengi- sand til Veiðivatna og þaðan yf- ir Hófsvað til Landmannalauga. Til slíkra ferða þurfti traustar bifreiðar og trausta stjórnend- ur sem ekki voru ragir við að takast á við fjölbreytt viðfangs- efni og áskoranir sem ferðir um lítt og ókannað hálendi Íslands voru. Þar voru þau Brynjar og Jóhanna á réttum stað. Suð- urnesjafólk var orðið ansi þekkt í þeim þrönga hópi ferða- langa sem fóru slíkar ferðir á þeim tíma en þar voru áberandi Brynjar, Knútur Höiriis ásamt undirrituðum sem allir áttu traustar fjallabifreiðir sem báru sama litinn og var því eft- ir þeim tekið hvar sem þeir fóru. Þetta voru góðir og ánægjulegir tímar með glöðu og skemmtilegu fólki. Það er freistandi að minnast á einstak- ar ferðir eins og þegar kabyss- an í Landmannalaugum leitaði útrásar eða páskaferðirnar í Öræfasveitina þar sem mörg óvænt og spennandi ævintýri biðu okkar. Brynjar var einn stofnenda Björgunarsveitarinn- ar Stakks sem hann og Jó- hanna störfuðu í af miklum krafti. Á mörgum ferða okkar um óbyggðirnar, mest að sum- arlagi, vorum við oft búin að hugsa um hvernig við gætum notið þess að ferðast þar um einnig að vetri til. Það fór svo að hópur samrýmdra ferða- félaga stofnaði félagsskap um kaup á snjóbíl, fyrst einum en síðar öðrum. Brynjar sá um og smíðaði sleða fyrir báða snjó- bílana, til aðseturs í slíkum ferðum. Það tímabil var okkur mikill gleðigjafi, páskaferðir í Landmannalaugar og víðar með fjölskyldum og vinum voru afar ánægjulegar. Hópur ferða- og björgunarsveitafélaga tók sig saman eftir gott starf innan björgunarsveitarinnar um að stofna ferðahóp til að viðhalda tengslum og minningum um þá góðu tíma. Þar létu þau Brynj- ar og Jóhanna sitt ekki eftir liggja. Hópurinn kallar sig 1313 og hefur haldið sambandi í 36 ár. Það er erfitt að kveðja góða vini og félaga eftir ánægjulegt samstarf til margra ára. Sam- starf sem byggst hafði á trausti og áreiðanleika þar sem oft reyndi á þolinmæði og útsjón- arsemi þegar við lentum í erf- iðum og óvæntum aðstæðum. Þá var gott að hafa þau Brynj- ar og Jóhönnu í hópnum. Við félagar þeirra í fjalla- ferðum og björgunarstarfi þökkum Brynjari samfylgdina af heilum hug og munum sakna hans með djúpu þakklæti fyrir samstarfið, ánægjuna og ljúf- mennskuna sem fylgdi honum í öllum okkar ferðum. Okkar dýpsta samúð er hjá Jóhönnu, börnum þeirra og fjölskyldum. Brynjar, góða ferð á hverjar þær slóðir sem þú ert lagður á og kæra þökk fyrir samfylgd- ina. Fyrir hönd félaga í Björg- unarsveitinni Stakki og Ferða- hópsins 1313, Garðar Sigurðsson. Þórarinn Brynjar Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.