Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 55
Á Reykjalundi fer fram alhliða endur-
hæfing sem miðar að því að bæta
lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu
þeirra sem þangað leita. Reykjalundur
er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands
íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga
(SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum
um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Um
þjónustuna gildir þjónustusamningur milli
Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalundar.
Nánari upplýsingar um Reykjalund má
finna á www.reykjalundur.is.
Laus er til umsóknar staða forstjóra á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS.
Leitað er að öflugum einstaklingi í krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarf þar sem reynir á
samskiptahæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Um er að ræða 100% stöðu sem veitist
frá 1. janúar 2020 eða eftir nánara samkomulagi.
Forstjóri ber ábyrgð á að stofnunin starfi í samræmi við lög og þjónustusamning við SÍ. Hann ber
jafnframt ábyrgð á þeirri þjónustu sem stofnunin veitir og að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma
sé í samræmi við fjárveitingu. Forstjóri fer með ráðningarvald á Reykjalundi.
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum
rekstri stofnunarinnar
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Eftirfylgni með stefnu og ákvörðunum stjórnar
og samþykktum aðalfundar
• Ábyrgð á starfsemi Reykjalundar gagnvart stjórn
• Samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila
• Stjórnun mannauðs
• Samningagerð
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Háskólamenntun á sviði stjórnunar og rekstrar
• Æskileg er menntun og íslenskt starfsleyfi
á sviði heilbrigðisvísinda
• Þekking og farsæl reynsla á rekstri heilbrigðisstofnana
• Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
• Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla
• Þekking og reynsla af mannauðsmálum
• Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Forstjóri
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
!"
!#$%
"&'