Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Ármúla 24 • S. 585 2800
60 ára Örn Helgi ólst
upp í Breiðholti en býr í
Kársnesinu í Kópavogi.
Hann er húsasmíða-
meistari að mennt og
er mælinga- og upp-
setningarstjóri hjá
Glerborg.
Maki: Ása Þorkelsdóttir, f. 1962, bóka-
safnsfræðingur í Borgarholtsskóla.
Börn: Erla, f. 1986, og Steinar Örn, f.
1987. Barnabörnin eru Ása Karitas og
Ylfa Björg, dætur Erlu, og Örn Óskar
Steinarsson.
Foreldrar: Haraldur Eyjólfsson, f. 1931,
d. 2016, verkstjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og einn af stofnendum
Þróttar, og Erla Helgadóttir, f. 1935, d.
2014, húsfreyja í Reykjavík.
Örn Helgi
Haraldsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Mismunandi menning, umhverfi
og fólk ýtir undir sköpunargleði þína.
Hægðu á þér, þú ferð stundum of hratt yf-
ir.
20. apríl - 20. maí
Naut Fylgdu málum vel eftir jafnvel þótt
þér kunni að leiðast öll smáatriðin. Ekki
láta tímann líða í tilgangsleysi, drífðu þig á
námskeið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fólk ber sérstaklega mikla virð-
ingu fyrir þér í dag. Reyndu að skyggnast
undir yfirborð hlutanna áður en þú gerir
upp hug þinn, því flas er hreint ekki til
fagnaðar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er orðið tímabært að þú ýtir
úr vör verkefni sem þig hefur lengi dreymt
um að framkvæma. Hikaðu ekki við að
deila leyndarmálum þínum með vinum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er ekki rétti mánuðurinn til að
kaupa nýja tölvu, bíl eða annað dót. Þér
finnst þú utanveltu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er hinn fínasti dagur til að
reikna út hversu mikið þú hefur handanna
á milli og leggja drög að framtíðarplönum.
Þér finnst gott að vera í sviðsljósinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú situr uppi með sjálfa/n þig, sama
hvað þú reynir. Þú byrjaðir með tvær
hendur tómar en uppskerð fyrst núna,
mörgum árum seinna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er fyrir öllu að þú haldir
jafnaðargeði og látir hvorki menn né at-
burði slá þig út af laginu. Gefðu þér tíma
til að rækta sálarlíf þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú dregst varla úr sporunum
um þessar mundir, reyndu að taka þér
pásu og endurnæra þig. Treystu á innsæ-
ið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skapsveiflur einhvers í fjöl-
skyldunni skapa óþægilegri spennu. Fram-
kvæmdu hugmynd þína áður en einhver
annar verður fyrri til.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú elskar að fá að vera með, en
líka að fá frið. Sumir skilja ekki fyrr en
skellur í tönnum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gefst ekki auðveldlega upp.
Fyrstu mánuðir ástarsambandsins gefa
oft tóninn.
fyrir sjó líka til að kæla hráefnið.
Svo þurfum við færri ferðir en áður
þegar verið er að sækja langt eins og
á kolmunnanum og því er þetta á all-
an hátt hagkvæmara.
Við vorum að klára síldarvertíðina
og erum að skipta yfir á kolmunnann
hæsta skipið á landinu í fyrra.
„Manni fannst þetta vera ævin-
týralega stórt skip fyrst, en ég held
það sé ekki of stórt. Ef maður ætlar
að koma með vel kælt og gott hrá-
efni í land þá veitir ekkert af pláss-
inu og það þarf að vera nóg pláss
A
lbert Sveinsson er fædd-
ur 7. nóvember 1969 á
Akranesi. Fyrstu upp-
vaxtarár ólst Albert
upp á Vogabraut hjá
móðurömmu sinni og afa, Körlu og
Friðrik. Síðar fluttist hann með for-
eldrum sínum á Krókatún og síðar
að Reynigrund, með smá viðkomu á
Vesturgötu hjá Rannveigu föður-
ömmu Alberts.
Albert dvaldi nokkur sumur í sveit
á Arnbjargarlæk hjá hjónunum
Davíð og Guðrúnu. Einnig var hann
við sveitastörf á Skipanesi.
Albert lauk grunnskólaprófi frá
Brekkubæjarskóla á Akranesi og
lauk stýrimannsprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík.
Fyrsta vinna Alberts var þegar
hann var 10-12 ára að járnabinda í
steypumót hjá fjölskyldufyrirtækinu
HB&Co. Síðan vann hann á Sleggj-
unni, eins og Vélaverkstæði HB&Co
var kallað. „Ég hugleiddi að læra
vélvirkjun en ég ætlaði alls ekki að
fara á sjó, var drullusjóveikur á
fyrsta túrnum mínum, en svo var
bara haldið áfram.“
Síðan þá hefur Albert allan sinn
starfsaldur stundað sjómennsku,
fyrst sem háseti en síðar stýrimaður
og svo skipstjóri. Hann fór sinn
fyrsta túr á Haraldi Böðvarssyni
AK-12 og var á honum í tvö ár og var
síðan á Höfrungi í níu ár. Á þessum
tíma fór hann í Stýrimannaskólann
og var undir lokin annar stýrimaður
á Höfrungi og leysti af sem fyrsti
stýrimaður. Fyrsta reynslan af skip-
stjórn var þegar hann leysti af á
Elliða GK á loðnuveiðum 23 ára
gamall. Hann varð síðan fyrsti stýri-
maður á gamla Víkingi AK-100
næstu tvö árin. Hann tók svo við
sem skipstjóri á Elliða og var á hon-
um í tvö ár, meðal annars í Tasman-
íu um tíma. Tók siglingin þangað 62
daga. Hann var síðan skipstjóri á
Faxa RE-9 og Ingunni AK-150 þar
til hann varð skipstjóri á nýjum Vík-
ingi árið 2015 og sótti hann til Tyrk-
lands.
Víkingur er uppsjávarskip og get-
ur tekið allt að 2.800 tonn af afla.
Það er með stærri skipum á landinu
þótt þau fari stækkandi og var afla-
núna,“ segir Albert, sem var á leið
heim eftir að hafa verið um borð í
Víkingi þegar blaðamaður talaði við
hann. „Ég á að vera í fríi núna, en
þegar skipið er í landi er maður allt-
af eitthvað að sinna því. Við erum að
taka trollin um borð og skipta um
Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK 100 – 50 ára
Fjölskyldan Albert ásamt Ástu Pálu, sonum og foreldrum sínum á jólafagnaði fyrir margt löngu.
Stýrir einu aflahæsta skipi Íslands
Hjónin Albert og Ásta Pála stödd í Brighton um síðustu helgi. Á sjó Þegar Albert var stýrimaður á Ingunni.
40 ára Fanney ólst
upp í Laugarnesi í
Reykjavík en býr á
Kársnesi í Kópavogi.
Hún er félagsfræð-
ingur frá HÍ og er
verkefnastjórí hjá
Þjóðgarðinum á Þing-
völlum. Hún er ritari Þingvallanefndar.
Maki: Arnar Sigmarsson, f. 1976, smiður
hjá Einari P. og kó og einn af eigendum.
Börn: Silvía Dís, f. 2005, Emilíana Lárey,
f. 2008, Einar Örn, f. 2011, og Eiríkur
Hrafn, f. 2014.
Foreldrar: Einar Nikulásson, f. 1945, síð-
ast stöðvarstjóri hjá N1, bús. í Reykjavík,
og Lára Einarsdóttir, f. 1952, vinnur hjá
Samskipum, bús. í Reykjavík. Þau áttu
saman Laugarneskjör til margra ára.
Fanney
Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
Sauðárkrókur Svanhildur Mía Wermelinger
Kristjánsdóttir fæddist 18. febrúar 2019 kl.
3.56. Hún vó 3.825 g og var 56 cm löng. For-
eldrar hennar eru Stefanie Wermelinger og
Kristján Elvar Gíslason.
Nýr borgari