Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 69
ÍÞRÓTTIR 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
Ekki náði Ólafur Jóhannesson
að halda það lengi út að vera í
fríi frá knattspyrnuþjálfun. Eins
og fram kemur í blaðinu var
hann í gær ráðinn til Stjörn-
unnar þar sem hann og Rúnar
Páll Sigmundsson munu stýra
karlaliði félagsins í sameiningu.
Ólafur má eiga að hann er allt
annað en fyrirsjáanlegur. Maður
var farinn að trúa því að hann
tæki sér árs frí frá sparkinu þeg-
ar hann dúkkar óvænt upp í
Garðabænum. Hann hefur sjálf-
sagt verið orðinn viðþolslaus
eftir rúman mánuð frá íþróttinni.
Ekki ætti að skorta þekkingu í
Garðabænum. Ólafur og Rúnar
með karlaliðið, Kristján Guð-
mundsson með kvennaliðið og
yfirþjálfari, og Ejub Purisevic í
yngriflokkaþjálfun.
Þjálfaraferill Ólafs er mjög
merkilegur á margan hátt. Hann
er þekktastur í félagsliðaþjálfun
fyrir að hafa lagt grunninn að
miklu blómaskeiði FH-inga sem
lengi voru eins og jójó á milli
efstu og næstefstu deildar.
En Ólafur gerði einnig athygl-
isverða hluti fyrr á þjálfaraferl-
inum sem ekki eru mikið í um-
ræðunni. Sem ungur spilandi
þjálfari var hann nálægt því að
gera FH að meisturum árið
1989. Annar ungur þjálfari, Guð-
jón Þórðarson hjá KA, hafði bet-
ur.
Ólafur fór með Skallagrím upp
í efstu deild á tíunda áratugnum.
Ég held að það megi kalla mikið
afrek. Með fullri virðingu fyrir
íþróttalífinu í Borgarnesi þá var
knattspyrnuhefðin þar ekki rík.
Tveimur árum áður en liðið fór
upp í efstu deild hafði það tapað
5:0 á Ísafirði í c-deild. Í liðinu
voru heimamenn og leikmenn
sem höfðu fengið lítil tækifæri á
Akranesi, í Vestmannaeyjum og
Keflavík.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
september. Rúnar spilaði bikarleik á
dögunum og í þeirri keppni fær hann
líklega tækifæri til að sýna sig. „Ég
spilaði í bikarnum í síðustu viku og
mun fá bikarleiki áfram. Hér eru
tvær bikarkeppnir og við erum enn
með í annarri þeirra. Ég mun fá að
spila þá leiki.“
Lánssamningur ekki á dagskrá
Rúnar gerði fjögurra ára samning
við Dijon og á því enn rúm tvö og
hálft ár eftir af samningi sínum við fé-
lagið. Hann er því ekki í skemmtilegri
stöðu ef þjálfarinn mun halda sig við
að nota annan markvörð. Spurður
hvort það hafi komist til tals að hann
verði lánaður segir hann svo ekki
vera.
„Ég er ekki byrjaður að hugsa um
mögulegan lánssamning ennþá. Ég
kem til með að setjast niður með
þjálfaranum og markmannsþjálf-
aranum í desember eða janúar. Ef
staðan breytist ekki, og það væri ein-
hver möguleiki að vera lánaður til
annars liðs, þá finnst mér það áhuga-
verður kostur. Ég er fótboltamaður
og vil spila enda er það skemmtilegra
en að æfa bara. En ég er samnings-
bundinn til fjögurra ára og þetta er
ekki bara undir mér komið.“
Þar sem Rúnar gerði langan samn-
ing er staðan snúin. Atburðarásin var
hins vegar ekki fyrirsjáanleg því
hann stóð sig vel á fyrsta tímabili sínu
í Frakklandi og spilaði þá marga leiki.
Fyrir 24 ára gamlan markvörð var
það dýrmæt reynsla og Rúnar var því
fullur tilhlökkunar í sumar.
„Á heildina litið var mjög gott að fá
að spila svo marga leiki í jafn sterkri
deild og þeirri frönsku á síðasta tíma-
bili. Ég held að fólk heima geri sér
ekki grein fyrir því hversu sterk
franska deildin er, en hún er talin
vera sú fjórða eða fimmta sterkasta í
heimi. Ég er rosalega stoltur af því að
hafa náð mörgum leikjum í þessari
deild á þessum tímapunkti. Ég stefni
á að spila fleiri leiki þótt ég sé ekki í
neinni óskastöðu eins og er.“
Mun umfangsmeira í
Frakklandi en í Danmörku
Rúnar Alex lék í mörg ár með Nor-
dsjælland í Danmörku áður en hann
færði sig til Frakklands. „Það eru eitt
til tvö skref fram á við varðandi allt
sem tengist fótboltanum að fara frá
Danmörku til Frakklands. Áhuginn
er meiri, umfjöllunin er meiri, leik-
vangarnir miklu stærri og betri um-
gjörð í kringum leikina. Inni á vell-
inum er hraðinn meiri, líkamlegur
styrkur leikmanna er meiri og gæði
einstaklinga eru meiri. Mér skilst að
ensku úrvalsdeildarliðin kaupi flesta
leikmenn frá frönskum liðum. Það
segir eitthvað um styrkleikann.
Ég þurfti líka hálft ár til að komast
inn í hlutina hérna og aðlagast en
tungumálið hjálpaði ekki til. Þegar
það var komið og ég var farinn að tala
frönsku fannst mér þetta smella. Þeg-
ar ég gat talað við alla á þeirra tungu-
máli breytti það öllu varðandi það
hvernig mér var tekið í hópnum. Þá
fór ég að kynnast fólki að einhverju
ráði og það mér. Ég var mjög spennt-
ur fyrir þessu tímabili og því er leið-
inlegt hvernig það byrjar en það er
mikið eftir af vetrinum,“ sagði Rúnar
Alex Rúnarsson enn fremur.
Snúin staða hjá Rúnari
Alex í Frakklandi
Fær lítið að spreyta sig um þessar mundir Ánægður með síðasta tímabil
AFP
Frakkland Rúnar Alex Rúnarsson í leik með Dijon gegn PSG.
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hefur nú kynnst
leiðinlegri hliðunum á atvinnu-
mennsku. Hann gerði langan samn-
ing við franska liðið Dijon, sem leikur
í efstu deild, og spilaði mikið á sínu
fyrsta tímabili. Síðasta sumar urðu
hins vegar þjálfaraskipti og Rúnar
hefur setið á varamannabekknum í
deildarleikjum að undanförnu. Rúnar
Alex er markvörður eins og knatt-
spyrnuunnendur þekkja og því aðeins
pláss fyrir einn slíkan í byrjunarlið-
inu.
„Ég er ekki í neinni óskastöðu akk-
úrat núna. Hingað kom nýr þjálfari,
Stéphane Jobard, með nýjar
áherslur. Hefur hann fengið marga
menn til félagsins og notar þá menn
sem keyptir voru.
Þjálfarinn vildi fá nýjan markvörð í
hópinn og hann hefur verið í markinu
að undanförnu. Upp á síðkastið hafa
úrslitin verið allt í lagi og um daginn
náði liðið mjög flottum úrslitum (vann
meistarana í Paris Saint Germain
2:1). Ekki eykur það líkurnar á því að
maður fái að spila. Svona lagað getur
gerst í boltanum og maður getur ekk-
ert annað gert en að leggja sig fram á
æfingum og spila eins og maður þeg-
ar tækifæri gefst,“ sagði Rúnar, en
einungis þrír leikmenn sem spiluðu
reglulega á síðasta tímabili gera það
einnig um þessar mundir. Margir
aðrir eru í sömu stöðu og Rúnar.
Spiluðu mikið í fyrra en eru nú fyrir
utan byrjunarliðið og samnings-
bundnir Dijon.
„Ég spilaði fyrstu fjóra leikina en
eftir landsleikina í september var mér
tilkynnt að ég myndi ekki spila næstu
leiki. Ekkert hefur breyst eftir það,“
sagði Rúnar, en markvörðurinn Alf-
red Bomis var keyptur til félagsins í
Það hefur ekki gengið sem skyldi hjá
Kristjáni Andréssyni með þýska
handboltaliðið Rhein-Neckar Löwen,
en eftir 11 leiki er Löwen í sjötta sæti
þýsku Bundesligunnar. Kristján tók
við þjálfun þýska liðsins af Dananum
Nicolaj Jacobsen, þjálfara heims-
meistara Dana, fyrir tímabilið en
jafnframt því að þjálfa lið Löwen er
Kristján landsliðsþjálfari Svía.
Andy Schmid, leikstjórnandi
Löwen og lykilmaður í liðinu, kemur
Kristjáni til varnar í viðtali við þýska
blaðið Rhein-Neckar Zeitung.
„Það má ekki gleyma því að þetta
er fyrsta ár hans í Bundesligunni.
Það er alltaf talað um að gefa leik-
mönnum tíma til að aðlagast hlut-
unum og það sama gildir um þjálf-
arana. Á hinn bóginn hafa menn ekki
þennan tíma í Bundesligunni. Þetta
snýst um að vinna og safna stigum.
Staðreyndin er sú að allir í hópnum
verða að bera ábyrgð,“ segir Schmid.
Löwen á erfiðan leik fyrir höndum í
kvöld en þá tekur liðið á móti Kiel,
sem er í öðru sæti deildarinnar en á
tvo leiki til góða.
AFP
Pressa Það hefur ekki gengið vel hjá Kristjáni Andréssyni með þýska
handboltaliðið Rhein-Neckar Löwen á leiktíðinni.
Kristján fær stuðning
frá lykilmanni Löwen