Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 70
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Arnar Freyr Arnarsson gat ekki
leikið með íslenska landsliðinu í
handknattleik í vináttulandsleikj-
unum gegn Svíum í Svíþjóð á dög-
unum. Sársauki í hné var farinn að
gera Arnari erfitt fyrir en hann seg-
ir meiðslin ekki vera alvarlegs eðlis.
„Fyrir landsleikjahlé í síðasta
mánuði var sprautað í hnéð. Hægt
og rólega ætti ég að verða góður í
hnénu. Læknarnir hérna segja að
þetta séu álagsmeiðsli en ég fékk
fyrst verki á síðasta tímabili þegar
ég spilaði í Svíþjóð. Sársaukinn hef-
ur aukist og eitthvað þurfti að gera
til að ég gæti beitt mér eðlilega á
vellinum. Eins og staðan er núna
tek ég ekki mikinn þátt í æfingum
liðsins en ég hef reynt að spila og
hjálpa liðinu aðeins. En ég tel að ég
sé á batavegi og finn ekki fyrir
neinu þegar ég geng upp stiga svo
ég taki dæmi. Ég þarf að ná upp
eðlilegum styrk í hnénu og í vöðv-
unum í kringum hnéð. Það var nauð-
synlegt að fá tíu daga frí þegar
landsliðin komu saman.“
Spurður hvort hann óttist að vera
ekki fullfrískur þegar EM landsliða
fer fram í janúar segist Arnar ekki
sjá annað fyrir sér en að hann verði
orðinn góður.
„Nei, nei. Maður veit aldrei en
hvað þessi meiðsli varðar eiga þau
ekki að vera nein hindrun.“
Frá Svíþjóð til Danmerkur
Arnar færði sig síðasta sumar frá
Kristianstad í Svíþjóð yfir til GOG í
Danmörku. „Liðin eru klárlega
sterkari í Danmörku en í Svíþjóð.
Leikmenn eru líkamlega sterkari,
en í dönsku deildinni er einnig tals-
vert af þekktum nöfnum. Munurinn
á þessum deildum er töluverður,“
sagði Arnar, en hann spilar bæði
vörn og sókn hjá GOG eins og hann
gerði hjá Kristianstad. „Ég er í
miðri vörninni og spila bæði sókn og
vörn. En ég fékk ekki stórt hlutverk
í upphafi tímabilsins.“
GOG er í 9. sæti í dönsku deild-
inni eftir níu umferðir. Liðið hefur
unnið fjóra leiki en tapað fimm, sem
þykir ekki ásættanlegt á þeim bæn-
um. Liðið leikur einnig í Meist-
aradeild Evrópu og þar gengur öllu
betur því liðið er í 2. sæti í sínum
riðli. Hefur unnið fjóra leiki en tap-
að tveimur.
„Okkur hefur ekki gengið eins vel
og við bjuggumst við. Mörgum leikj-
um höfum við tapað klaufalega og
vorum yfir í mörgum tapleikjunum.
Það hefur því verið svolítil brekka
hjá okkur í deildinni og þar er staða
okkar ekki nógu góð en við höfum
verið fínir í Meistaradeildinni. Liðið
á meira inni, en í hópnum eru marg-
ir nýir leikmenn og við þurfum því
líklega að slípa okkur betur saman
til að ná betri úrslitum.“
Þrír Íslendingar í GOG
GOG teflir fram þremur Íslend-
ingum í vetur. Óðinn Þór Ríkharðs-
son kom til liðsins sumarið 2018 og
síðasta sumar bættust þeir Arnar
Freyr og markvörðurinn Viktor
Gísli Hallgrímsson við. Íslending-
arnir halda hópinn talsvert.
„Við keyrum alltaf saman á æf-
ingar og höfum haldið nokkur
matarboð. Við búum allir í Óðins-
véum og erum í göngufæri hver frá
öðrum,“ sagði Arnar, en Viktor Gísli
er að stíga fyrstu skref sín í atvinnu-
mennsku um þessar mundir. Miklar
vonir eru bundnar við að hann verði
framtíðarmarkvörður í landsliðinu.
Hvernig hefur honum gengið hjá
GOG?
„Hinn markvörðurinn okkar
meiddist og Viktor fékk því að spila
helling í upphafi tímabilsins. Nú
hjálpast þeir meira að, en ég ímynda
mér að erfitt hafi verið fyrir hann að
vera einn í markinu þegar hann var
nýkominn út. Mér finnst hann hafa
staðið sig vel,“ sagði Arnar Freyr
Arnarsson í samtali við Morgun-
blaðið, en hann er samningsbundinn
GOG fram á sumar 2021.
Meiðslin ekki alvarleg
Eitthvað þurfti þó að gera, segir Arnar Freyr sem missti af vináttulandsleikj-
unum gegn Svíum í október Íslendingarnir halda hópinn í Óðinsvéum
Ljósmynd/Robert Spasovski
Hraustur Arnar Freyr stöðvar Makedóna í landsleik. Í markinu stendur Viktor Gísli, samherji hans.
70 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Krókháls 1 • 110 Reykjavík • S. 567 8888 • www.pmt.is
Allt til merkinga & pökkunar
Kemur með snertiskjá og WiFi Hægt er að fá ofninn í mörgum litum
TURBOCHEF ECO
er minnsti og sparneytnasti ofninn
frá TurboChef
Hentar sérstaklega vel fyrir kaffihús, bensínstöðvar og minni staði
sem eru með skyndibita.
Danmörk
Aalborg – Ribe-Esbjerg...................... 30:27
Janus Daði Smárason skoraði 8 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon lék
ekki með liðinu vegna meiðsla.
Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 3 en
Daníel Þór Ingason lék ekki vegna meiðsla.
Kolding – Bjerringbro/Silkeborg..... 27:27
Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj-
ólfsson voru ekki á meðal markaskorara
hjá Kolding.
Þráinn Orri Jónsson skoraði ekki fyrir
Bjerringbro-Silkeborg.
Silkeborg-Voel – Esbjerg................... 26:30
Rut Arnfjörð Jónsdóttir lék ekki með liði
Esbjerg.
Svíþjóð
Sävehof – Önnered.............................. 30:27
Ágúst Elí Björgvinsson varði 12 skot í
liði Sävehof.
Noregur
Bækkelaget – Elverum....................... 28:40
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3
mörk fyrir Elverum.
Haslum – Drammen ............................ 33:25
Óskar Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir
Drammen.
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Flensburg – Paris SG.......................... 29:30
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk
fyrir Paris SG.
Staðan: Paris 12, Barcelona 10, Pick Sze-
ged 9, Aalborg 8, Flensburg 7, Celje Lasko
2, Elverum 1, HC Zagreb 1.
HANDKNATTLEIKUR
Coca Cola bikar kvenna, 16-liða úrslit:
Víkin: Víkingur – FH .................................19
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Kaplakriki: FH U – Víkingur...............20.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Ásvellir: Haukar – ÍR ...........................19.15
Dalhús: Fjölnir – Þór Þ.........................19.15
Ásvellir: Haukar – ÍR ...........................19.15
Höllin: Þór Ak. – Keflavík ....................19.15
Í KVÖLD!
Úrvalsdeildarlið Njarðvíkur í
körfuknattleik hefur samið við
Bandaríkjamanninn Chaz Calvaron
Williams um að leika með liðinu.
Williams er leikstjórnandi og er
ekki alveg ókunnugur íslenskum
körfubolta. Hann kláraði tímabilið
2017-18 með Þór Þorlákshöfn þar
sem hann lék undir stjórn Einars
Árna Jóhannssonar, sem er þjálfari
Njarðvíkur-liðsins.
Williams kom til landsins í gær
og þykir ólíklegt að hann spili með
Val annað kvöld en hann ætti að
verða klár í slaginn gegn Þór Akur-
eyri í næstu viku.
gummih@mbl.is
Njarðvíkingar fá liðsstyrk
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Liðsstyrkur Chaz Calvaron Willi-
ams er kominn í Njarðvík
Íþróttir
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur
heldur betur komið sterkur inn í
lið Levski Sofia eftir að hann
sneri til baka úr erfiðum hné-
meiðslum í september. Hólmar,
sem sleit krossband í nóvember á
síðasta ári, skoraði fyrsta mark
sinna manna með skalla í 3:0
sigri gegn Etar í búlgörsku úr-
valsdeildinni í fótbolta í gær.
Þetta var þriðja mark Hólmars í
tíu leikjum og sjötta mark hans
fyrir félagið en hann gekk í raðir
þess fyrir rúmum tveimur árum.
gummih@mbl.is
Hólmar enn
að skora
Ljósmynd/Levski Sofia
Drjúgur Hólmar Ö. Eyjólfsson skor-
aði þriðja mark sitt á tímabilinu.