Morgunblaðið - 18.11.2019, Page 1
M Á N U D A G U R 1 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 271. tölublað 107. árgangur
VALSMENN
SLÓGU BREGENZ
ÚT Í AUSTURRÍKI
FÓTBOLTAÓÐAR
UNGLINGSSTELPUR
Í BREIÐHOLTI
STAÐA ÚTVARPSSTJÓRA AUGLÝST 10 NÝ BÓK BRYNHILDAR 28ÍÞRÓTTIR 25
Sala lausasölulyfja
» Svíar leyfðu sölu lausasölu-
lyfja utan apóteka árið 2009.
» Af Norðurlandaþjóðunum
banna aðeins Ísland og Finn-
land sölu lausasölulyfja í al-
mennum verslunum.
Embætti landlæknis leggst gegn
breytingum á lyfjalögum sem lagt
er til að gerðar verði samkvæmt
frumvarpi þriggja þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins. Embættið gerir al-
varlegar athugasemdir við hug-
myndir um að veita Lyfjastofnun
heimild til að veita undanþágu til
sölu tiltekinna lausasölulyfja í al-
mennri verslun og mælir gegn því
að frumvarpið verði að lögum.
Frumvarpið var áður flutt á síð-
asta þingi og er nú lagt fram óbreytt
af Unni Brá Konráðsdóttur, Óla
Birni Kárasyni og Bryndísi Har-
aldsdóttur. Flutningsmenn telja
brýnt að auka frelsi í sölu lausasölu-
lyfja og breyta lögum í því skyni að
heimila sölu þeirra í almennum
verslunum.
„Ísland stendur mörgum Evrópu-
ríkjum að baki hvað varðar sölu á
lausasölulyfjum í almennum versl-
unum, en í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð er slík sala heimil. Sem
dæmi um lausasölulyf má nefna væg
verkjalyf, ofnæmislyf og magalyf.
Þetta fyrirkomulag hefur ekki
leitt til ofnotkunar lyfja eða haft
slæm áhrif á lýðheilsu,“ segir m.a. í
greinargerð.
Gegn breytingu á lyfjasölu
Landlæknir vill ekki að lausasölulyf verði seld í almennum verslunum
Þrír þingmenn hafa lagt fram frumvarp um aukið frelsi í sölu lausasölulyfja
MLandlæknir leggst gegn … »11
Gott skíðafæri var í Bláfjöllum í gær, vægt frost,
fremur hægur vindur og mjög fallegt veður.
Margir nýttu sér góðar aðstæður til að fara á
skíði. Í nótt átti hins vegar að ganga í hvassa
suðaustanátt, 15-23 m/s, á suðvestanverðu land-
inu með snörpum vindhviðum við fjöll.
Skíðafólk naut góða veðursins í Bláfjöllum í gær
Morgunblaðiððið/Hari
„Mér finnst
eðlilegt að verða
við þessari
beiðni. Svo reyn-
ir bara á hvort
og þá hvenær
ráðherra hafi tök
á að koma,“ segir
Lilja Rafney
Magnúsdóttir,
formaður at-
vinnuveganefndar Alþingis.
Beiðnin sem um ræðir kemur frá
þingmanni Vinstri-grænna og snýr
að því að Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegsráðherra svari spurn-
ingum nefndarinnar um mál Sam-
herja sem helst lýtur að meintum
mútugreiðslum fyrirtækisins í
Namibíu. »2 og 14
Vilja Kristján Þór á
fund um Samherja
Kristján Þór
Júlíusson
„Ég tel að íslensku stafi ekki ógn af
erlendum tungum, eins og enskunni.
Íslendingar hafa ávallt átt mikil sam-
skipti við erlendar þjóðir og notið
þess að mörgu leyti, meðal annars
menningarlega, og þess sér stað
mjög víða. Ógnirnar eru aðrar, svo
sem að við lok grunnskóla geta 28%
íslenskra drengja ekki lesið sér til
gagns, og það segir okkur að eitthvað
hafi brugðist, skólafólk getur trúlega
gert grein fyrir hvað það er,“ segir
Jón G. Friðjónsson málvísindamað-
ur.
Á Degi íslenskrar tungu sl. laug-
ardag, 16. nóvember, voru Jóni veitt
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
fyrir störf sín í þágu íslensks máls. Í
áratugi hefur Jón sinnt rannsóknum
á íslenskri tungu, kennt málvísindi og
íslenska málfræði í Háskóla Íslands
og samið kennsluefni. Þá hefur hann
verið brautryðjandi í kennslu ís-
lensku sem annars máls við HÍ. Með-
al almennings er Jón vel þekktur fyr-
ir rit sín um íslenska orðfræði. Í
ritum Jóns er m.a. fjallað um orðtök,
orðatiltæki, málshætti og orðskviði
íslensks máls, sem breytist hratt rétt
eins og samfélagið sjálft. »6
Telur að erlend mál
ógni ekki íslenskunni
„Við rífum bara þangað til hættir
að loga í húsinu en sennilega verð-
ur ekkert eftir nema grunnurinn,“
sagði Ólafur Stefánsson, slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri, um hús við
Norðurgötu sem kviknaði í á
sunnudagsmorgun.
Húsið er gjörónýtt og gekk
slökkvistarf hægt.
„Það kviknar alltaf í þessu aftur
og aftur,“ sagði Ólafur þegar blaða-
maður ræddi við hann um fimm-
leytið síðdegis í gær.
Þegar Morgunblaðið fór í prent-
un í gærkvöldi var unnið að því að
rífa húsið og vonaði varðstjóri
slökkviliðs Akureyrar að verkefn-
inu yrði lokið fyrir miðnætti. »4
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Bruni Húsið var illa leikið eftir eldsvoðann
en það var á þremur hæðum og úr timbri.
Unnið að því að rífa
húsið á Norðurgötu
„Við höfum oft þurft að standa í
samningaviðræðum gegnum tíðina
og orðið að berjast fyrir okkar kjör-
um. Við höfum einnig verið lengur
með lausa samninga en í þessari lotu
núna. Okkar saga hefur einkennst af
mikilli kjarabaráttu,“ segir Guð-
björg Pálsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga.
Í dag eru nákvæmlega 100 ár liðin
síðan stofnað var fyrsta stéttarfélag
hjúkrunarfræðinga, sem fékk heitið
Félag íslenskra hjúkrunarkvenna.
Frá 1994 hefur félagið borið núver-
andi heiti eftir sameiningu Félags
háskólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga og Hjúkrunarfélags Íslands.
Hjúkrunarfræðingar hafa verið með
lausa samninga síðan 31. mars sl.
Deilunni hefur ekki verið vísað til
sáttasemjara en samninganefndir
ríkis og sveitarfélaga hafa fyrst vilj-
að klára samninga við félög BHM og
BSRB. Alls eru um 3.300 hjúkrunar-
fræðingar starfandi í landinu en fé-
lagsmenn eru yfir 4.000. „Við erum
enn að tala saman, þó að hægt gangi.
Við leggjum mikla áherslu á stytt-
ingu vinnuvikunnar og betra starfs-
umhverfi,“ sagði Guðbjörg. »14
Vilja fá styttri vinnuviku
Hjúkrunarfræðingar með lausa samninga síðan 31. mars
Morgunblaðið/Eggert
Hjúkrunarfræðingar 100 ár eru í
dag frá stofnun fyrsta félags þeirra.
EFTIRSÓTT EMBÆTTI