Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 50 ára Helga Margrét ólst upp í Hafnarfirði og Mosfellsbæ en býr í Reykjavík. Hún er BA í stjórnmálafr. og fjöl- miðlun. Hún var fram- kvæmdastjóri True- north um 15 ára skeið. Maki: Halldór Andri Halldórsson, f. 1967, framkvæmdastjóri heildsölunnar Einstök matvara. Stjúpbörn: Andri Jóhann, f. 1986, Tara Ösp, f. 1989, Viktor Alexander, f. 1992 og Aron Jóhann, f. 1996. Stjúpbarnabörn eru orðin þrjú. Foreldrar: Jóhannes Reykdal, f. 1944, þýðandi og fv. blaðamaður, og Birna Ey- björg Gunnarsdóttir, f. 1948, fv. skrif- stofumaður. Þau eru búsett í Mosfellsbæ. Helga Margrét Reykdal Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Settu þér það takmark að vera öðr- um góð fyrirmynd. Það eru mikil veisluhöld fram undan, mundu að allt er best í hófi. 20. apríl - 20. maí  Naut Þaggaðu efasemdir um einhvern nið- ur innra með þér. Hættu að gagnrýna allt og alla, það breytir engu. Þú ert í náðinni hjá yfirmanninum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Skrifaðu niður eftir hverju þú sækist ef þú ert í ástarsambandi. Þú ert með munninn fyrir neðan nefið, það hefur oft bjargað þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er alltaf gaman að leyfa barninu í sér að njóta sín. Einhver leysir frá skjóðunni um fjölskylduleyndarmál og það mun hafa áhrif á þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert vinsæl/l í vinahópi og nóg er um að velja í félagslífinu. Byrjaðu strax á því að ræða málin við þá sem þú telur geta hjálpað þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er í lagi að vilja ekki lána eitt- hvað sem maður á. Fljótfærni er ekki til í orðabók þinni og getur þú gert fólk gráhært vegna þess. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur í svo mörgu að snúast að þú þarft að fá fólk í liði með þér til þess að hlutirnir gangi upp. Það daðrar einhver við þig eins og enginn sé morgundagurinn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér berast leiðinleg tíðindi sem valda þér miklu hugarangri. Bjóddu gestum í heimsókn eða farðu út á meðal fólks. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú trúir á ævintýri og það er partur af aðdráttarafli þínu. Allt á sinn tíma og nú er aðalmálið að halda fast utanum budduna. 22. des. - 19. janúar Steingeit Óformlegar viðræður eru ekki síður mikilvægar en þær sem formlegar kallast. Þú færð atvinnutilboð sem þú ert spennt/ur fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú dregst varla úr sporunum um þessar mundir, reyndu að taka þér pásu og endurnæra þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hittir spennandi persónu og get- ur ekki hætt að hugsa um hana. Stígðu skrefið óttalaus og bjóddu viðkomandi á stefnumót. ópu. Við réðum innlenda og erlenda sérfræðinga til Lyfjastofnunar sem gerði Íslandi kleift að taka virkan þátt í mati á nýjum lyfjum. Þetta samstarf var til hagsbóta fyrir inn- lendan lyfjaiðnað og veitti íslenskum sérfræðingum aðgang að þekkingu og helstu sérfæðingum á Evrópska efnahagssvæðinu í lyfjamálum. Á 15 árum þrefaldaðist fjöldi starfsmanna og tekjur stofnunarinnar sjöföld- uðust.“ Frá því að Rannveig lauk störfum sem forstjóri Lyfjastofnunar hefur hún m.a. tekið að sér ráðgjafarverk- efni í Noregi og á Íslandi á vegum Evrópusambandsins og frá 2018 hef- ur hún verið í fagráði Rannís. „Til ánægjuauka bætti ég við námi í leið- sögn og var fróðlegt að sjá hversu mikil nýtt hefur komið fram í jarð- fræði og sögu lands og þjóðar frá skólaárunum.“ Rannveig hefur tekið virkan þátt í sameining og uppbygging stofnunar- innar og þátttaka okkar í helstu sér- fræðinefndum Lyfjastofnunar Evr- R annveig Gunnarsdóttir er fædd 18. nóvember í Stokkhólmi en flutti þaðan 6 mánaða þegar faðir hennar lauk námi. „Ég ólst upp í Reykjavík og hef búið þar utan tveggja ára þegar ég var við framhaldsnám í London. Ég var tvö ár í sveit í Svarfaðar- dalnum og vann ýmsa sumarvinnu m.a. í fiski, á sumarhóteli hér heima, á heilsuhæli í Danmörku og á rann- sóknarstofu í Sápugerðinni Frigg. Rannveig gekk í Réttarholtsskóla og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík. 1969. „Þar kynntist ég manninum mínum, Tryggva Pálssyni. Við horfum til gullbrúðkaups næsta haust.“ Í sérnámi Rannveigar kláraði hún fyrri hluta lyfjafræði í HÍ og M.Sc. Biopharmacy frá Chelsea College (London University). „Lær- dómsríkt var að starfa með námi á Middlesex-sjúkrahúsinu í London. Ég hef verið iðin í símenntun og lauk m.a. diplóma í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu og dipl- óma í opinberri stjórnsýslu. Hugur minn stóð alltaf til þess að verða klínískur lyfjafræðingur. Áður en ég var ráðin í lyfjabúr Landspít- alans haustið 1976 sem fyrsti menntaði sjúkrahúslyfjafræðing- urinn hafði ég tækifæri til að kynna mér nokkur sjúkrahúsapótek í tveggja mánaða dvöl á Norðurlönd- unum. Ég er stolt af því að hafa skipulagt og þróað fyrsta sjúkra- húsapótekið á Íslandi og síðar stýrt því. Þegar ég lít yfir starfsferil minn þá má segja að hann einkennist af breytingastjórnun og uppbygg- ingu.“ Á árinu 1995 gegndi Rann- veig starfi sem settur skrifstofu- stjóri í lyfjamáladeild heilbrigðis- ráðuneytisins þar til hún var skipuð framkvæmdastjóri lyfjanefndar rík- isins. Þetta var á þeim tímum þegar Ísland varð að uppfæra upplýsingar um öll lyf á markaði vegna Evrópu- löggjafarinnar. Svo var Rannveig skipuð forstjóri Lyfjastofnunar október 2000 þegar lyfjanefnd rík- isins og lyfjaeftirlit ríkisins voru sameinuð. „Þá tók við krefjandi félagsstörfum og var í stjórn Stétt- arfélags lyfjafræðinga og samtaka norrænna lyfjafræðinga. „Ánægju- legt var að taka þátt í stofnun Rót- arýklúbbsins Reykjavík Miðborg og gegna embættum ritara og forseta. Í tvo áratugi höfum við hjónin geng- ið um landið og farið í ferðir með gönguhópi klúbbsins. Tengt Rótarý höfum við líka m.a. tekið þátt í stíflugerð og bólusetningu við löm- unarveiki á Indlandi. Ég hef verið meðlimur í kvennasamtökunum Leiðtoga-Auður og Exedra. Áhugamálin eru fjölmörg og nú gefst betri tími til að sinna þeim. Um skeið vorum við með hesta en golfið hefur tekið við ásamt ferða- lögum, veiði og samvera á Snæfells- nesi þar sem við erum með aðstöðu ásamt vinum okkar. Dýrmætasta áhugamálið í dag er þó að sinna og vera með barnabörnum okkar og fjölskyldu.“ Rannveig Gunnarsdóttir, lyfjafræðingur og fyrrverandi forstjóri – 70 ára Fjölskyldan Talið frá vinstri: Sólveig Lísa, Anna Erika, Klara Sigrid, Guðmundur Gísli, Emma Lovísa, Gunnar Páll, Tryggvi og fyrir framan Birna Rannveig, Laufey, Karen, Tryggvi og Rannveig. Breytingar og uppbygging Nöfnur Rannveig og ömmustelpan Birna Rannveig. 30 ára Gunna Helga ólst upp á Háaleitis- braut í Reykjavík og býr á Háaleitisbraut. Hún lærði leikstjórn og framleiðslu í Kvik- myndaskóla Íslands og er núna á iðnaðar- samningi í hárgreiðslu á Slippnum hár- greiðslustofu. Áhugamál Gunnu Helgu eru útivist, fjallganga og austurlensk matar- gerð. Dóttir: Mía Þórhildur Bragadóttir, f. 2016. Systkini: Eva Lind Albertsdóttir, f. 1988, og Eyþór Andri Sváfnisson, f. 1999. Foreldrar: Sváfnir Sigurðarson, f. 1969, markaðsfulltrúi Þjóðleikhússins, og Þór- hildur Ýr Olgeirsdóttir, f. 1969, kennari í Vættaskóla. Þau eru búsett í Reykjavík. Guðrún Helga Sváfnisdóttir Til hamingju með daginn Þessar duglegu stúlk- ur, Regína Diljá Rögn- valdsdóttir, Sigrún Dania Egilsdóttir Heinesen, Emilía Ósk Birkisdóttir, Brynja Dís Hafdal Axels- dóttir og Herdís Elf- arsdóttir, héldu tom- bólu við Iceland á Akureyri og gáfu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn, 4.913 krónur. Tombóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.