Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „of stórir?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að deila öllu nema almenningssalernum. ELÍN … DAG EINN MUN ÉG BJARGA ÞÉR FRÁ ÖLLU ÞESSU EN MÉR LÍKAR AÐ VERA HÉR HJÚKKETT! TAKK FYRIR AÐ FÆRA MÉR MÚRSTEINANA SEM ÉG BAÐ UM! EKKERT AÐ ÞAKKA! HVAÐ ERTU AÐ BYGGJA? HANDSTYRK! „ÆTLAST ÞÚ TIL ÞESS AÐ VIÐ TRÚUM ÞVÍ AÐ ÞÚ HAFIR EKKI SKIPULAGT FLÓTTANN?” Fjölskylda Eiginmaður Rannveigar er Tryggvi Pálsson, f. 28.2. 1949, hag- fræðingur og fyrrverandi banka- stjóri. Foreldrar hans voru hjónin Páll Ásgeir Tryggvason, f. 19.2. 1922, d. 1.9. 2011, sendiherra, og Björg Ásgeirsdóttur, f, 22.2. 1925, d. 7.8. 1996, sendiherrafrú. Þau voru búsett í Reykjavík. Börn Rannveigar og Tryggva eru Gunnar Páll, f. 9.12. 1977, fram- kvæmdastjóri Alfa Framtaks, bú- settur í Reykjavík. Maki: Karen Ax- elsdóttir, viðskiptafræðingur og þjálfari. Börn: Tryggvi, f. 2001, Laufey, f. 2003, og Birna Rannveig, f. 2016; 2) Sólveig Lísa, f. 24.3. 1980, arkitekt, búsett í Garðabæ. Maki: Guðmundur Gísli Ingólfsson lögfræðingur. Börn: Emma Lovísa, f. 2011, Klara Sigrid, f. 2013, og Anna Erika, f. 2016. Bræður Rannveigar: Árni Gunnarsson, f. 18.8. 1948, verkfræð- ingur, búsettur í Reykjavík; Björn Gunnarsson, f. 29.9. 1951, 1951, d. í maí 2006, viðskiptafræðingur; Sigurjón Gunnarsson, f. 15.4. 1954, tölvunarfræðingur, búsettur í Kópa- vogi; Gunnar Örn Gunnarsson, f. 14.1. 1958, verkfræðingur, búsettur á Seltjarnarnesi; Halldór Gunn- arsson, f. 8.1. 1962, kvikmynda- tökumaður, búsettur í Svíþjóð; Þór- arinn Gunnarsson, f. 29.1. 1964, verslunarmaður, búsettur í Reykja- vík. Foreldrar Rannveigar voru hjón- in Gunnar Kristján Björnsson, f. 20.1. 1924, d. 26.2. 2009, efnaverk- fræðingur, og Lovísa Hafberg Björnsson, f. 27.2. 1925, d. 21.5. 2013, húsfreyja. Þau voru búsett í Reykjavík. Rannveig Gunnarsdóttir Lovísa Hafberg Björnsson húsfreyja í Reykjavík, kjörforeldrar: Sigurjón Jónsson héraðslæknir á Dalvík og Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja Halldóra Loðmfjörð Sigurðardóttir húsfreyja á Akureyri Soffía Pálsdóttir húsfreyja á Helgafelli Sigurður Guðmundsson bóndi á Helgafelli í Svarfaðardal Ásta Björnsdóttir fv. handavinnukennari á Kópaskeri Rannveig Björnsdóttir forseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri Guðmundur Björnsson verkfræðingur og prófessor við HÍ Gunnþórunn Björnsdóttir húsfr. í Rvík Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur Kristveig Björnsdóttir húsfreyja á Skógum Gunnar Árnason bóndi og smiður á Skógum í Kelduhverfi Rannveig Gunnarsdóttir húsfreyja á Kópaskeri Björn Kristjánsson alþingismaður og kaupfélagsstjóri á Kópaskeri Jónína Aðalbjörg Þórarinsdóttir húsfreyja á Víkingavatni Kristján Kristjánsson bóndi á Víkingavatni í Kelduhverfi , N-Þing. Úr frændgarði Rannveigar Gunnarsdóttur Gunnar Kristján Björnsson efnaverkfræðingur í Reykjavík Stefjagleði er ný vísnabók eftirPétur Stefánsson og sú sjöunda í röðinni. Kynningu hennar á Leir fylgir þessi staka: Þó herði frost og gráni grundir, gáskafullur yrki brag. Eflaust mun þér stytta stundir Stefjagleði margan dag. Stefjagleði er góð bók og skemmtileg. Í fyrri hluta bók- arinnar er ferskeytlan í fyrirrúmi en í síðari hlutanum eru ljóð undir ýmsum háttum, sonnetta og forn- yrðislag. Það er bjart yfir þessari bók og tónninn sleginn með þessari stöku: Það er margt sem yndi eykur á ævi minnar stuttu ferð. Þegar allt í lyndi leikur leik ég mér að vísnagerð. Pétur yrkir til konunnar, – og er botninn óvæntur: Að giftast þér var gæfuspor, ég greini það alltaf betur, þú ert eins og ylríkt vor eftir frostavetur. Hagyrðingum hefur alltaf látið vel að yrkja til spóans og lóunnar: Eftir vætu yfrið nóga unaðs tíma loksins sé, horfi ég á grasið gróa og grænka lauf á hverju tré. Vorið kom með vell í spóum, vængjaþyt og söng í lóum. Auðvitað leikur Pétur sér að limrunni: Hann Eyjólfur knúsaði og kyssti konu og hjá henni gisti. Það indælis kvöld var ástin við völd og Brynhildur meydóminn missti. Ort í „Þurrkatíð“: Margt veldur bændunum baga, blíðviðrissól alla daga. Ég heyrði þá fregn að húrrandi regn myndi búskapinn bæta og laga. Hér yrkir Pétur undir „Káins- lagi“: Kominn er ég enn á stjá eitilhress og dreyminn. Nú er dýrleg sjón að sjá sólina skína á heiminn. Það er farið að kólna og þó enn sé jörð auð hér syðra er ekki svo fyrir norðan: Kápu góðri klæðast skalt, kauptu brodda á skóinn. Bjart er úti og býsna kalt, bætir enn í snjóinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stefjagleði ber nafn með rentu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.