Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is SAMSTARFSAÐILI ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS 09:41 100% Undankeppni EM karla 2020 A-RIÐILL: Búlgaría – Tékkland ................................ 1:0 Kósóvó – England .................................... 0:4 Lokastaðan: England 8 7 0 1 37:6 21 Tékkland 8 5 0 3 13:11 15 Kósóvó 8 3 2 3 13:16 11 Búlgaría 8 1 3 4 6:17 6 Svartfjallaland 8 0 3 5 3:22 3  England og Tékkland á EM. Kósóvó og Búlgaría í umspil. B-RIÐILL: Lúxemborg – Portúgal ............................ 0:2 Serbía – Úkraína ...................................... 2:2 Lokastaðan: Úkraína 8 6 2 0 17:4 20 Portúgal 8 5 2 1 22:6 17 Serbía 8 4 2 2 17:17 14 Lúxemborg 8 1 1 6 7:16 4 Litháen 8 0 1 7 5:25 1  Úkraína og Portúgal á EM. Serbía í um- spil. C-RIÐILL: Þýskaland – Hvíta-Rússland................... 4:0 Norður-Írland – Holland......................... 0:0 Staðan: Þýskaland 7 6 0 1 24:6 18 Holland 7 5 1 1 19:7 16 Norður-Írland 7 4 1 2 8:7 13 Hvíta-Rússland 8 1 1 6 4:16 4 Eistland 7 0 1 6 2:21 1  Þýskaland og Holland á EM. Norður-Ír- land og Hvíta-Rússland í umspil. E-RIÐILL: Aserbaídsjan – Wales .............................. 0:2 Króatía – Slóvakía .................................... 3:1 Staðan: Króatía 8 5 2 1 17:7 17 Ungverjaland 7 4 0 3 8:9 12 Wales 7 3 2 2 8:6 11 Slóvakía 7 3 1 3 11:11 10 Aserbaídsjan 7 0 1 6 5:16 1  Króatía á EM. G-RIÐILL: Slóvenía – Lettland .................................. 1:0 Austurríki – Norður-Makedónía ............ 2:1 Ísrael – Pólland......................................... 1:2 Staðan: Pólland 9 7 1 1 15:3 22 Austurríki 9 6 1 2 19:8 19 Slóvenía 9 4 2 3 14:8 14 Ísrael 9 3 2 4 16:17 11 N-Makedónía 9 3 2 4 11:13 11 Lettland 9 0 0 9 2:28 0  Pólland og Austurríki á EM, Ísrael og Norður-Makedónía í umspil. KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Kaplakriki: FH – Stjarnan .................. 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Origo-höllin: Valur U – ÍR................... 19.45 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: VHE-höllin: Höttur – Skallagrímur ... 19.15 Smárinn: Breiðablik – Snæfell ............ 19.15 Ice Lagoon-höllin: Sindri – Selfoss.......... 20 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætti ofjarli sínum á Grikklandi í undankeppni EM í gær. Eftir óspennandi leik vann Grikkland að lokum 89:54, þrátt fyrir að Ísland ynni seinni hálfleikinn með einu stigi. Grikkland spilaði hápressuvörn sem íslenska liðið réð ekkert við og fékk leikstjórnandinn Þóra Kristín Jónsdóttir oftar en ekki tvo ákafa Grikki á sig um leið og sóknir íslenska liðsins hófust. Fyrir vikið átti hún erfitt með að dreifa boltanum og urðu töpuðu boltarnir ansi margir. Það nýttu sterkir Grikkir sér og röðuðu niður stigunum. Öll tólf stig íslenska liðsins í fyrsta leikhlutanum komu úr þriggja stiga körfum og fékk Ísland ekki vítaskot fyrr en í seinni hálfleik, svo illa gekk að koma boltanum í hættusvæði. Margt þarf að breytast Grikkir slökuðu á í vörninni í seinni hálfleik og var ákefðin mun minni, enda löngu ljóst hvort liðið myndi vinna. Það gerði íslenska liðinu auð- veldara fyrir. Helena Sverrisdóttir komst betur inn í leikinn og Sylvía Rún Hálfdanardóttir átti góða innkomu af bekknum. Gunnhildur Gunn- arsdóttir nýtti öll fjögur skotin sín í leiknum. Það eru því jákvæðir punktar í leiknum og sennilega fleiri en gegn Búlgaríu á fimmtudag, gegn miklum mun sterkari andstæðingi. Gunnhildur ræddi við Morgunblaðið eftir leik og viðurkenndi að leikmenn Íslands hefðu gert sér grein fyrir því að gríska liðið væri sterkara en það íslenska og úrslitin hefðu ekki endilega komið á óvart. „Við vissum að þær væru kannski þetta mikið betri en við, en við ætluðum að mæta með íslensku baráttuna og reyna að standa betur í þeim í fyrri hálfleik, sem tókst ekki alveg,“ sagði Gunnhildur, áður hún bætti við að Ísland þyrfti að eignast fleiri atvinnu- menn. Sara Rún Hinriksdóttir er eini leikmaður liðs- ins sem leikur utan Íslands. Ekki bætir úr skák að margir í íslenska liðinu eru í aukahlutverkum í sínu liði þar sem bandarískir leikmenn ráða oft ríkjum. Það þarf margt að breytast svo Ísland eigi nokkurn möguleika gegn jafnsterkum þjóð- um og Grikklandi.  Tap í tveimur fyrstu leikjunum FIBA Erfitt Gunnhildur Gunnarsdóttir fórnar höndum í Grikklandi í gær. Ísland lenti á grískum vegg Aron Pálmarsson sýndi löndum sín- um í Álaborgarliðinu enga miskunn þegar þeir heimsóttu Barcelona í Meistaradeildinni. Aron skoraði sex mörk og Barcelona 44 mörk í 44:35- sigri. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk fyrir Álaborg. Þar er Arnór Atlason aðstoðarþjálfari en Ómar Ingi Magnússon er frá vegna höfuðáverka. Barcelona og PSG eru efst í A- riðli með 14 stig en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki fyrir PSG sem vann Flensburg 32:30. Álaborg er í 4. sæti með átta stig. sport@mbl.is Engin miskunn í Katalóníu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Góður Aron Pálmarsson skoraði 6 mörk gegn dönsku meisturunum. Skautafélag Akureyrar gerði góða ferð til Reykjavíkur og vann 4:2-sigur á Fjölni í Hertz- deild karla í íshokkíi. Með sigr- inum fór SA upp í 15 stig og upp að hlið Fjölnis í toppsæti deild- arinnar. Hafþór Sigrúnarson og Jóhann Már Leifsson skoruðu fyrir SA í fyrstu tveimur leikhlutunum. Ró- bert Hafberg og Sigurður Þor- steinsson komu SA í 4:0 áður en þeir Michal Stoklosa og Hilmar Sverrisson minnkuðu muninn fyr- ir Fjölni. johanningi@mbl.is Akureyringar upp að hlið Fjölnis Skoraði Hafþór Sigrúnarson (23) gerði fyrsta mark SA gegn Fjölni. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Frönsku heimsmeistararnir höfn- uðu í efsta sæti H-riðils okkar Ís- lendinga í undankeppni EM karla í knattspyrnu. Frakkland vann Alb- aníu 2:0 á Kombëtare-vellinum í Tirana í Albaníu í gær. Corentin Tolisso og Antoine Griezmann skoruðu mörk Frakka, sem rökuðu saman 25 stigum í riðlinum. Tyrkland varð í 2. sæti með 23 stig en Ísland fékk 19 stig og kom næst á eftir Tyrkjum. Í lokaumferð riðilsins í gær fóru Tyrkir til And- orra og unnu 2:0. Enes Unai skor- aði bæði mörkin. Albanía fékk 13 stig, Andorra fjögur og Moldóva þrjú. Hollendingar hafa náð vopnum sínum eftir mögur ár, að einhverju leyti að minnsta kosti. Holland gerði markalaust jafntefli gegn Norður-Írlandi í Belfast og er kom- ið áfram ásamt Þýskalandi þótt riðlinum sé ekki lokið. Þjóðverjar eru með 18 stig, Hollendingar 16 og N-Írar 13. Holland vann N-Írland í fyrri leik liðanna í Hollandi og er því með betri árangur í innbyrðis- viðureignum. Holland hefur misst af síðustu tveimur stórmótum eftir að hafa hafnað í 3. sæti á HM 2014. Evrópumeistararnir frá Portúgal unnu 2:0 í Lúxemborg í B-riðli og tryggðu sér sæti í lokakeppninni. Úkraína kom mörgum á óvart og vann riðilinn án þess að tapa leik. Úkraínumenn fengu 20 stig, Portú- gal 17 stig og Serbía 14 stig. Riðlakeppni EM heldur áfram í kvöld og lýkur annað kvöld. Í kvöld verður mikil spenna hjá Írum og Dönum sem mætast í Dublin. Dön- um dugir stig til að komast á EM og Svisslendingar eru líklegir til að komast einnig áfram úr D-riðli. Frakkarnir tryggðu sér efsta sætið AFP Kátir Griezmann (7) var laufléttur í gær og fagnar hér marki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.