Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 HANDBOLTI Olísdeild karla ÍBV – HK .............................................. 32:26 Afturelding – ÍR ................................... 31:31 Haukar – Fjölnir .................................. 32:24 Selfoss – Fram...................................... 30:24 Staðan: Haukar 10 8 2 0 275:246 18 Afturelding 10 7 1 2 274:256 15 ÍR 10 6 1 3 298:275 13 Selfoss 10 6 1 3 303:302 13 ÍBV 10 5 1 4 275:264 11 FH 9 5 1 3 248:243 11 Valur 10 5 1 4 259:232 11 KA 10 4 1 5 279:282 9 Fram 10 3 1 6 247:253 7 Stjarnan 9 1 3 5 226:245 5 Fjölnir 10 2 1 7 254:293 5 HK 10 0 0 10 242:289 0 Grill 66 deild karla KA U – Fjölnir U.................................. 26:25 Olísdeild kvenna ÍBV – Fram........................................... 23:24 Haukar – HK ........................................ 29:23 Afturelding – Valur .............................. 19:27 Staðan: Fram 9 8 0 1 281:189 16 Valur 9 7 1 1 251:189 15 Stjarnan 9 4 3 2 218:197 11 KA/Þór 9 5 0 4 218:248 10 HK 9 3 2 4 232:247 8 Haukar 9 3 1 5 194:221 7 ÍBV 9 2 1 6 182:220 5 Afturelding 9 0 0 9 165:230 0 Grill 66 deild kvenna Grótta – Selfoss .................................... 22:22 FH – ÍBV U .......................................... 32:20 Fram U – Fjölnir.................................. 37:25 Meistaradeild karla Barcelona – Aalborg........................... 44:35  Aron Pálmarsson skoraði 6 mörk fyrir Barcelona.  Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er frá vegna meiðsla. París SG – Flensburg.......................... 32:30  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki fyrir PSG. Elverum – Pick Szeged....................... 25:26  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3 mörk fyrir Elverum.  Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í leikmannahópi Pick Szeged. Rabotnik – Sävehof ..............................32:31  Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í marki Sävehof. Medvedi – GOG .................................... 36:28  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 7 mörk fyrir GOG en Arnar Freyr Arnarsson skor- aði ekki.. Viktor Gísli Hallgrímsson var með 7% markvörslu. Áskorendabikar karla 32ja liða úrslit, fyrri leikir: Drammen – Dicken ............................. 32:24  Óskar Ólafsson skoraði1 mark fyrir Drammen. Hurry Up – Alingsås ........................... 21:32  Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr- ir Alingsås. Á SELFOSSI Í MOSFELLSBÆ Guðmundur Karl Ívar Benediktsson Íslandsmeistarar Selfoss unnu öruggan sigur á Fram í Olísdeild karla í handbolta á heimavelli sínum í Iðu á Selfossi í gærkvöldi, 30:24. Leikurinn var jafn fyrstu 45 mín- úturnar en þá hrönnuðust upp mis- tökin hjá Fram og meistararnir áttu ekki í neinum vandræðum með að refsa þeim. Selfyssingar urðu fyrir miklu áfalli eftir tíu mínútna leik þegar Árni Steinn Steinþórsson fór meidd- ur af velli. Grímur Hergeirsson, þjálfari Selfoss, þurfti að breyta uppstillingu liðsins talsvert við þetta, bæði í vörn og sókn, og ábyrgðin fór á herðar ungra leik- manna. Þeir stóðu fyllilega undir því, til dæmis Reynir Freyr Sveins- son sem stóð sig vel í vörninni og enn betur í sókninni. Hann kann auk þess þá list að kynda upp í stuðn- ingsmönnum liðsins. Haukur Þrastarson skoraði sjö af átta mörkum sínum í fyrri hálfleik en Framarar reyndu að klippa hann út í seinni hálfleik. Þá tók Hergeir Grímsson við kyndlinum og var dug- legur bæði að skora og finna Atla Ævar Ingólfsson inni á línunni. Her- geir átti frábæran leik í vörn og sókn. Staðan var 17:15 í leikhléi og Framarar náðu að jafna 18:18 í upp- hafi seinni hálfleiks. Þeir fengu eitt tækifæri til þess að komast yfir en tókst það ekki og eftir það gáfu Sel- fyssingar ekki fleiri færi á sér og kláruðu leikinn vel. Andri Heimir Friðriksson var at- kvæðamestur Framara í sóknar- leiknum, en eins og félagar hans gerði hann sig sekan um mörg mis- tök. Stefán Darri Þórsson var sterk- ur í vörninni en varnarleikur Fram var óagaður á köflum. Kaflaskipt jafntefli Liðin í öðru og þriðja sæti Olís- deildar karla, Afturelding og ÍR, gerðu jafntefli þegar þau leiddu saman hesta sína á Varmá í Mos- fellsbæ á laugardagskvöldið, 31:31. Afturelding var marki yfir að lokn- um fyrri hálfleik, 17:16. Staða lið- anna tveggja er óbreytt í deildinni. Afturelding heldur öðru sæti, nú með 15 stig og þremur á eftir Hauk- um. ÍR er í 3. sæti með 13 stig. Leikurinn var nokkuð kaflaskipt- ur og Mosfellingar með yfirhöndina lengst af. Þeim tókst hins vegar aldrei að hrista af sér baráttuglaða leikmenn ÍR-liðsins. Afturelding náði nokkrum sinnum fjögurra marka forskoti, bæði í fyrri hálfleik og í þeim síðari. Það dugði skammt því þegar ÍR-ingar náðu sér á strik léku þeir við hvern sinn fingur í sóknarleiknum svo ekki stóð steinn yfir steini í varnarleik Aftureld- ingar. Reyndar var varnarleikur ÍR- liðsins heldur ekki burðugur lengi vel. Markverður beggja liða náðu sér hins vegar vel á strik. Sigurður Ingiberg Ólafsson, markvörður ÍR, varði 18 skot, mörg hver á mikil- vægum tíma undir lokin þegar Aft- ureldingarmenn freistuðu þess að ná frumkvæði í leiknum á nýjan leik. Arnór Freyr Stefánsson varði vel í marki Aftureldingar og var ekki öf- undsverður af hlutverki sínu fyrir framan vörnina, sem var óvenju- döpur. Arnór Freyr varði boltann 13 sinnum. Sennilega eru leikmenn Aftureld- ingar vonsviknari með úrslit leiksins en ÍR-ingar. Aftureldingarmenn höfðu yfirhöndina lengi vel og fengu auk þess möguleika á að tryggja sér sigurinn á lokamínútunni. Allt kom fyrir ekki. Birkir Benediktsson var eins og stundum áður allt í öllu í sóknarleik Aftureldingar. Hann skoraði 11 mörk og átti auk þess hið minnsta fimm stoðsendingar. Guð- mundur Árni Ólafsson var næstur með níu mörk, þar af sex af vítalín- unni þar sem hann var með full- komna nýtingu. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson hitti netmöskvana í sex skipti. Eins og oft áður var Björgvin Þór Hólmgeirsson atkvæðamestur ÍR- inga við að skora. Hann skoraði sjö sinnum. Akureyringarnir Bergvin Þór Gíslason og Hafþór Már Vign- isson skoruðu sex mörk hvor. Berg- vin átti afar góðan leik. Hann spændi upp vörn Aftureldingar hvað eftir annað með krafti sínum. Haf- þór Már var daufur í fyrri hálfleik en veðraðist allur upp í síðari hálf- leik og skoraði þá flest sín mörk. iben@mbl.is Haukar enn ósigraðir Haukar eru enn ósigraðir á toppi deildarinnar eftir 32:24-sigur á Fjölni á heimavelli. Staðan að lokn- um fyrri hálfleik var 16:10, Haukum í vil. Adam Haukur Baumruk skor- aði átta mörk fyrir Hauka og Atli Már Báruson sex. Viktor Berg Grét- arsson skoraði sex fyrir Fjölni. Kristján skoraði 11 mörk ÍBV lagði botnlið HK, 32:26, í Vestmannaeyjum. Gestirnir fóru vel af stað og höfðu tveggja marka for- ystu um miðbik fyrri hálfleiks en frábær kafli Eyjamanna skildi að lokum botnliðið eftir. Kristján Örn Kristjánsson var frábær í liði ÍBV og skoraði 11 mörk en Kristófer Andri Daðason og Þorgeir Bjarki Davíðsson skoruðu fimm mörk fyrir HK. Haukar juku forskotið  Afturelding og ÍR fengu sitt stigið hvort  Árni meiddist í sigri Selfyssinga Morgunblaðið/Hari Stórskytta Ekki veitir af að gæta Birkis Benediktssonar en hér reyna þrír ÍR-ingar að halda aftur af honum. Íslensku kylfingarnir féllu nokkuð niður keppendalist- ann á þriðja og lokastigi úrtökumótanna fyrir Evr- ópumótaröð karla í golfi á Spáni í gær. Andri Þór Björnsson lék best á þriðja keppnisdegi í gær á 71 höggi. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í 82.-96. sæti á -1 samtals eftir að hafa leikið þrjá fyrstu hringina á 72-67- 75. Er hann höggi frá niðurskurðarlínunni eins og hún er núna. Bjarki Pétursson er í sæti nr. 121-132 á +2 eftir að hafa leikið hringina á 74, 66 og 77. Minnstar sveiflur hafa verið hjá Andra en hann hefur hins vegar ekki náð lágu skori ennþá. Andri er í 121.-132. á +2 eins og Bjarki en hefur leikið á 72, 73 og 71 höggi. Bjarki og Andri þurfa á mjög góðu skori að halda á morgun til að eiga möguleika á að komast í gegnum niðurskurð keppenda eftir fjóra hringi af sex. sport@mbl.is Bakslag hjá kylfingunum Guðmundur Ágúst Kristjánsson Sandra María Jessen reyndist ör- lagavaldur Leverkusen í þýsku bik- arkeppninni er hún skoraði sigur- markið gegn Frankfurt, 1:0, á útivelli í 16-liða úrslitunum. Sandra var í byrjunarliði Lever- kusen og skoraði markið á 29. mín- útu. Liðið er því komið í pottinn fyr- ir 8-liða úrslitin eins og Wolfsburg sem sló út stórlið Bayern München. Wolfsburg vann 3:1 á útivelli í Bæjaralandi með Söru Björk Gunn- arsdóttur, íþróttamann ársins 2018, innanborðs. sport@mbl.is Báðar áfram í bikarnum Ljósmynd/Leverkusen Skoraði Sandra María Jessen hafði ástæðu til að brosa um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.