Morgunblaðið - 18.11.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019
HANDBOLTI
Olísdeild karla
ÍBV – HK .............................................. 32:26
Afturelding – ÍR ................................... 31:31
Haukar – Fjölnir .................................. 32:24
Selfoss – Fram...................................... 30:24
Staðan:
Haukar 10 8 2 0 275:246 18
Afturelding 10 7 1 2 274:256 15
ÍR 10 6 1 3 298:275 13
Selfoss 10 6 1 3 303:302 13
ÍBV 10 5 1 4 275:264 11
FH 9 5 1 3 248:243 11
Valur 10 5 1 4 259:232 11
KA 10 4 1 5 279:282 9
Fram 10 3 1 6 247:253 7
Stjarnan 9 1 3 5 226:245 5
Fjölnir 10 2 1 7 254:293 5
HK 10 0 0 10 242:289 0
Grill 66 deild karla
KA U – Fjölnir U.................................. 26:25
Olísdeild kvenna
ÍBV – Fram........................................... 23:24
Haukar – HK ........................................ 29:23
Afturelding – Valur .............................. 19:27
Staðan:
Fram 9 8 0 1 281:189 16
Valur 9 7 1 1 251:189 15
Stjarnan 9 4 3 2 218:197 11
KA/Þór 9 5 0 4 218:248 10
HK 9 3 2 4 232:247 8
Haukar 9 3 1 5 194:221 7
ÍBV 9 2 1 6 182:220 5
Afturelding 9 0 0 9 165:230 0
Grill 66 deild kvenna
Grótta – Selfoss .................................... 22:22
FH – ÍBV U .......................................... 32:20
Fram U – Fjölnir.................................. 37:25
Meistaradeild karla
Barcelona – Aalborg........................... 44:35
Aron Pálmarsson skoraði 6 mörk fyrir
Barcelona.
Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá vegna meiðsla.
París SG – Flensburg.......................... 32:30
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki
fyrir PSG.
Elverum – Pick Szeged....................... 25:26
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3
mörk fyrir Elverum.
Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í
leikmannahópi Pick Szeged.
Rabotnik – Sävehof ..............................32:31
Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í
marki Sävehof.
Medvedi – GOG .................................... 36:28
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 7 mörk
fyrir GOG en Arnar Freyr Arnarsson skor-
aði ekki.. Viktor Gísli Hallgrímsson var
með 7% markvörslu.
Áskorendabikar karla
32ja liða úrslit, fyrri leikir:
Drammen – Dicken ............................. 32:24
Óskar Ólafsson skoraði1 mark fyrir
Drammen.
Hurry Up – Alingsås ........................... 21:32
Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Alingsås.
Á SELFOSSI
Í MOSFELLSBÆ
Guðmundur Karl
Ívar Benediktsson
Íslandsmeistarar Selfoss unnu
öruggan sigur á Fram í Olísdeild
karla í handbolta á heimavelli sínum
í Iðu á Selfossi í gærkvöldi, 30:24.
Leikurinn var jafn fyrstu 45 mín-
úturnar en þá hrönnuðust upp mis-
tökin hjá Fram og meistararnir áttu
ekki í neinum vandræðum með að
refsa þeim.
Selfyssingar urðu fyrir miklu
áfalli eftir tíu mínútna leik þegar
Árni Steinn Steinþórsson fór meidd-
ur af velli. Grímur Hergeirsson,
þjálfari Selfoss, þurfti að breyta
uppstillingu liðsins talsvert við
þetta, bæði í vörn og sókn, og
ábyrgðin fór á herðar ungra leik-
manna. Þeir stóðu fyllilega undir
því, til dæmis Reynir Freyr Sveins-
son sem stóð sig vel í vörninni og
enn betur í sókninni. Hann kann auk
þess þá list að kynda upp í stuðn-
ingsmönnum liðsins.
Haukur Þrastarson skoraði sjö af
átta mörkum sínum í fyrri hálfleik
en Framarar reyndu að klippa hann
út í seinni hálfleik. Þá tók Hergeir
Grímsson við kyndlinum og var dug-
legur bæði að skora og finna Atla
Ævar Ingólfsson inni á línunni. Her-
geir átti frábæran leik í vörn og
sókn. Staðan var 17:15 í leikhléi og
Framarar náðu að jafna 18:18 í upp-
hafi seinni hálfleiks. Þeir fengu eitt
tækifæri til þess að komast yfir en
tókst það ekki og eftir það gáfu Sel-
fyssingar ekki fleiri færi á sér og
kláruðu leikinn vel.
Andri Heimir Friðriksson var at-
kvæðamestur Framara í sóknar-
leiknum, en eins og félagar hans
gerði hann sig sekan um mörg mis-
tök. Stefán Darri Þórsson var sterk-
ur í vörninni en varnarleikur Fram
var óagaður á köflum.
Kaflaskipt jafntefli
Liðin í öðru og þriðja sæti Olís-
deildar karla, Afturelding og ÍR,
gerðu jafntefli þegar þau leiddu
saman hesta sína á Varmá í Mos-
fellsbæ á laugardagskvöldið, 31:31.
Afturelding var marki yfir að lokn-
um fyrri hálfleik, 17:16. Staða lið-
anna tveggja er óbreytt í deildinni.
Afturelding heldur öðru sæti, nú
með 15 stig og þremur á eftir Hauk-
um. ÍR er í 3. sæti með 13 stig.
Leikurinn var nokkuð kaflaskipt-
ur og Mosfellingar með yfirhöndina
lengst af. Þeim tókst hins vegar
aldrei að hrista af sér baráttuglaða
leikmenn ÍR-liðsins. Afturelding
náði nokkrum sinnum fjögurra
marka forskoti, bæði í fyrri hálfleik
og í þeim síðari. Það dugði skammt
því þegar ÍR-ingar náðu sér á strik
léku þeir við hvern sinn fingur í
sóknarleiknum svo ekki stóð steinn
yfir steini í varnarleik Aftureld-
ingar. Reyndar var varnarleikur ÍR-
liðsins heldur ekki burðugur lengi
vel. Markverður beggja liða náðu
sér hins vegar vel á strik. Sigurður
Ingiberg Ólafsson, markvörður ÍR,
varði 18 skot, mörg hver á mikil-
vægum tíma undir lokin þegar Aft-
ureldingarmenn freistuðu þess að
ná frumkvæði í leiknum á nýjan leik.
Arnór Freyr Stefánsson varði vel í
marki Aftureldingar og var ekki öf-
undsverður af hlutverki sínu fyrir
framan vörnina, sem var óvenju-
döpur. Arnór Freyr varði boltann 13
sinnum.
Sennilega eru leikmenn Aftureld-
ingar vonsviknari með úrslit leiksins
en ÍR-ingar. Aftureldingarmenn
höfðu yfirhöndina lengi vel og fengu
auk þess möguleika á að tryggja sér
sigurinn á lokamínútunni. Allt kom
fyrir ekki. Birkir Benediktsson var
eins og stundum áður allt í öllu í
sóknarleik Aftureldingar. Hann
skoraði 11 mörk og átti auk þess hið
minnsta fimm stoðsendingar. Guð-
mundur Árni Ólafsson var næstur
með níu mörk, þar af sex af vítalín-
unni þar sem hann var með full-
komna nýtingu. Þorsteinn Gauti
Hjálmarsson hitti netmöskvana í
sex skipti.
Eins og oft áður var Björgvin Þór
Hólmgeirsson atkvæðamestur ÍR-
inga við að skora. Hann skoraði sjö
sinnum. Akureyringarnir Bergvin
Þór Gíslason og Hafþór Már Vign-
isson skoruðu sex mörk hvor. Berg-
vin átti afar góðan leik. Hann
spændi upp vörn Aftureldingar hvað
eftir annað með krafti sínum. Haf-
þór Már var daufur í fyrri hálfleik
en veðraðist allur upp í síðari hálf-
leik og skoraði þá flest sín mörk.
iben@mbl.is
Haukar enn ósigraðir
Haukar eru enn ósigraðir á toppi
deildarinnar eftir 32:24-sigur á
Fjölni á heimavelli. Staðan að lokn-
um fyrri hálfleik var 16:10, Haukum
í vil. Adam Haukur Baumruk skor-
aði átta mörk fyrir Hauka og Atli
Már Báruson sex. Viktor Berg Grét-
arsson skoraði sex fyrir Fjölni.
Kristján skoraði 11 mörk
ÍBV lagði botnlið HK, 32:26, í
Vestmannaeyjum. Gestirnir fóru vel
af stað og höfðu tveggja marka for-
ystu um miðbik fyrri hálfleiks en
frábær kafli Eyjamanna skildi að
lokum botnliðið eftir. Kristján Örn
Kristjánsson var frábær í liði ÍBV
og skoraði 11 mörk en Kristófer
Andri Daðason og Þorgeir Bjarki
Davíðsson skoruðu fimm mörk fyrir
HK.
Haukar juku forskotið
Afturelding og ÍR fengu sitt stigið hvort Árni meiddist í sigri Selfyssinga
Morgunblaðið/Hari
Stórskytta Ekki veitir af að gæta Birkis Benediktssonar en hér reyna þrír ÍR-ingar að halda aftur af honum.
Íslensku kylfingarnir féllu nokkuð niður keppendalist-
ann á þriðja og lokastigi úrtökumótanna fyrir Evr-
ópumótaröð karla í golfi á Spáni í gær.
Andri Þór Björnsson lék best á þriðja keppnisdegi í
gær á 71 höggi.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í 82.-96. sæti á -1
samtals eftir að hafa leikið þrjá fyrstu hringina á 72-67-
75. Er hann höggi frá niðurskurðarlínunni eins og hún
er núna.
Bjarki Pétursson er í sæti nr. 121-132 á +2 eftir að
hafa leikið hringina á 74, 66 og 77.
Minnstar sveiflur hafa verið hjá Andra en hann hefur
hins vegar ekki náð lágu skori ennþá. Andri er í 121.-132. á +2 eins og
Bjarki en hefur leikið á 72, 73 og 71 höggi.
Bjarki og Andri þurfa á mjög góðu skori að halda á morgun til að eiga
möguleika á að komast í gegnum niðurskurð keppenda eftir fjóra hringi af
sex. sport@mbl.is
Bakslag hjá kylfingunum
Guðmundur Ágúst
Kristjánsson
Sandra María Jessen reyndist ör-
lagavaldur Leverkusen í þýsku bik-
arkeppninni er hún skoraði sigur-
markið gegn Frankfurt, 1:0, á
útivelli í 16-liða úrslitunum.
Sandra var í byrjunarliði Lever-
kusen og skoraði markið á 29. mín-
útu. Liðið er því komið í pottinn fyr-
ir 8-liða úrslitin eins og Wolfsburg
sem sló út stórlið Bayern München.
Wolfsburg vann 3:1 á útivelli í
Bæjaralandi með Söru Björk Gunn-
arsdóttur, íþróttamann ársins 2018,
innanborðs. sport@mbl.is
Báðar áfram
í bikarnum
Ljósmynd/Leverkusen
Skoraði Sandra María Jessen hafði
ástæðu til að brosa um helgina.