Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Skúli Halldórsson sh@mbl.is Íbúar Louisianaríkis kusu demó- kratann John Bel Edwards til áframhaldandi setu í stóli ríkisstjóra á laugardag. Sigur hans þykir fela í sér nokkurt högg fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem heimsótti ríkið nokkrum sinnum í að- draganda kosninganna til að sýna stuðning sinn við frambjóðanda repúblikana, á sama tíma og fulltrúa- deild þingsins stendur fyrir rann- sókn á háttsemi hans í embætti. Frambjóðandinn sem Trump studdi, fjármálamaðurinn Eddie Rispone, hlaut 48,7% greiddra at- kvæða gegn 51,3% Edwards. Ríkið hefur yfirleitt þótt öruggt fyrir repúblikana og sigraði Trump sjálfur í ríkinu með 20 prósentustiga mun í forsetakosningunum árið 2016. Verðið að færa mér sigur Aðeins er um vika síðan ríkisstjóri Kentucky, Matt Bevin, beið ósigur gegn mótframbjóðanda sínum úr röðum demókrata, Andy Beshear, en forsetinn hafði einnig ítrekað stuðn- ing sinn við kjósendur í því ríki. „Þið verðið að færa mér stóran sigur,“ sagði Trump í síðustu viku við kjósendur sem saman voru komnir á stuðningsfundi í Louisiana, og vísaði til ósigursins í Kentucky. Skilaboðin virðast ekki hafa dugað til. Edwards sagði í þakkarræðu sinni á laugardagskvöld að „sameiginleg ást okkar á Louisiana er ætíð mik- ilvægari en þær flokkslínur sem stundum tvístra okkur. Og hvað for- setann varðar: Guð blessi hjarta hans“, sagði Edwards og uppskar hlátur og fögnuð viðstaddra, en kveðja þessi getur verið tvíræð í suð- urríkjum Bandaríkjanna. Sama kvöld undirgekkst forsetinn tveggja klukkustunda læknisskoðun á sjúkrahúsi í Washingtonborg, sam- kvæmt upplýsingum frá Hvíta hús- inu. Læknisskoðunin var þó ekki á dagskrá forsetans, öfugt við þá sem hann undirgekkst á sama sjúkrahúsi í febrúar. Stephanie Grisham, fjölmiðla- fulltrúi Hvíta hússins, segir forset- ann hafa viljað nýta helgina til að hefja hluta af árlegri læknisskoðun sinni, þar sem hann búist við að mik- ið verði að gera á komandi ári. AFP Forseti Trump hafði ekki farið leynt með stuðning sinn við frambjóðendur repúblikana í ríkisstjórakosningunum. Annar ósigur og ann- að högg fyrir Trump  Tapað tvennum ríkisstjórakosningum á tveimur vikum Sigur Ríkisstjórinn John Bel Edwards ávarpar stuðningsmenn sína. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Geysimikill og sjaldgæfur gagnaleki frá kínversku ríkisstjórninni varpar ljósi á aðgerðir hennar gegn mús- limum í Xinjiang-héraði, þar sem forsetinn Xi Jinping skipaði emb- ættismönnum að viðhafa „alls enga miskunn“ í baráttu við aðskilnaðar- og öfgahyggju. Bandaríska dagblaðið New York Times gerði skjölin að umfjöllunar- efni á laugardag, en mannréttinda- samtök hafa fullyrt að meira en milljón uighur-múslima hafi verið safnað saman og þeir fluttir inn í net fangabúða í héraðinu, sem er í norðvesturhluta landsins. Ekki allir sáttir við aðgerðirnar Skjölin telja alls 403 blaðsíður og gefur efni þeirra fordæmalausa inn- sýn í umdeildar aðgerðir kínverska kommúnistaflokksins að sögn blaðs- ins. Aðgerðirnar hafa mætt sífellt vaxandi gagnrýni í alþjóðasamfélag- inu, ekki síst frá Bandaríkjunum. Síðurnar hafa meðal annars að geyma óbirtar ræður eftir Xi, auk skipana og skýrslna um eftirlit og stjórn með uighur-múslimum. Lek- inn þykir einnig benda til að ekki séu allir á eitt sáttir innan flokksins um framgang aðgerðanna. Hefur dagblaðið eftir uppljóstr- aranum, sem nýtur nafnleyndar en starfar innan kommúnistaflokksins, að hann vonist til að lekinn valdi því að leiðtogar ríkisins geti ekki forð- ast sök sína á aðgerðunum. Þekktur fyrir aðferðir sínar Eftir að vígamenn úr röðum uig- hur-múslima drápu 31 mann á lest- arstöð í Suðvestur-Kína árið 2014 kallaði Xi Jinping eftir „allsherjar- baráttu gegn hryðjuverkum, njósnastarfsemi og aðskilnaðar- hyggju“ og því að embættismenn ríkisins sýndu „alls enga miskunn“, samkvæmt því sem fram kemur í skjölunum. Fangabúðunum fór ört fjölgandi árið 2016 eftir að skipaður var nýr formaður flokksins í héraðinu, Chen Quanguo. Chen mun hafa dreift ræðum for- setans til að réttlæta aðgerðirnar og hvatti embættismenn til að „taka alla sem ætti að taka“. Chen mun vera þekktur innan flokksins fyrir það hvernig hann tekur á minnihlutahópum, en áður hafði hann reynt að berja harkalega niður andóf í Tíbet. Meðal gagna í lekanum eru einnig leiðbeiningar fyrir embættismenn til að svara spurningum þeirra nem- enda sem sneru aftur á heimaslóðir í Xinjiang til þess eins að finna hvergi fjölskyldur sínar. Kváðu þær meðal annars á um að embættismenn segðu nemendum að skyldmenni þeirra hefðu verið sýkt af veiru öfgahyggju. Hlúa þyrfti að þeim áður en „lítill sjúkdómur yrði alvarlegur“. Skipað að sýna „alls enga miskunn“  Sjaldgæfur gagnaleki innan úr kínversku stjórnkerfi  Gefur nýja innsýn í aðgerðir stjórnvalda gegn uighur-múslimum  Segja átti nemendum að skyldmenni þeirra hefðu sýkst af veiru öfgahyggju AFP Kína Börn ganga til skóla undir vökulu auga eftirlitsmyndavéla í Xinjiang. Andrés Bretaprins hefur verið sak- aður um dómgreindarleysi og skort á samúð eftir að viðtal við hann birtist bresku þjóðinni á BBC á laugar- dagskvöld. Þar þvertók hann fyrir að hafa átt kynmök við unglingsstúlku, sem fullyrt hefur að bandaríski barnaníðingurinn Jeffrey Epstein hafi neytt sig til þess. Mesta furðu vöktu þau svör prinsins að hann hefði verið á pítsustað með dóttur sinni dag- inn sem atvikið á að hafa átt sér stað, í mars árið 2001, og að hann gæti ekki svitnað – en í vitnisburði konunnar segir að hann hafi verið blautur af svita. Þá sagðist hann ef til vill hafa gerst sekur um að vera „of heið- virður“, og þess vegna haldið vinskap sínum áfram við Epstein þrátt fyrir að fallið hefði dómur yfir honum vegna kynferðisafbrota. Þetta er í fyrsta sinn sem prinsinn hefur svarað spurningum fjölmiðla um ásakanir stúlkunnar, Virginiu Roberts, sem nú ber fjölskyldunafnið Giuffre. Giuffre hefur haldið því fram að hún hafi verið neydd til kynmaka með prinsinum í þremur mismunandi tilvikum. Í London árið 2001 þegar hún var 17 ára, í New York og svo á einkaeyju Epsteins í Karíbahafinu. Aldrei séð neitt jafn hörmulegt Konungsfjölskyldan virðist hafa freistast til að reyna að setja punkt aftan við langa sögu þessa máls með viðtalinu fordæmalausa. Þess í stað þykir Andrés hafa varpað kastljósinu enn frekar á sjálfan sig og voru um- fjallanir breskra dagblaða í gær afar neikvæðar í hans garð. Ímyndarráðgjafinn Mark Bork- owski segir í samtali við fréttastofu AFP að viðtalið hafi verið „eins og að horfa á mann í kviksyndi“ og að hann hafi aldrei séð neitt jafn hörmulegt. Undanfarnar vikur hafa skiptar skoðanir verið innan hallarveggj- anna um hvort rétt væri fyrir prins- inn að koma fram í sjónvarpsviðtali. Í ljós kom í gær að almanna- tengslaráðgjafi Andrésar sagði af sér fyrir tveimur vikum, eftir að hafa varað hann við að samþykkja við- talið. Svör prinsins vekja furðu  „Eins og að horfa á mann í kviksyndi“ Andrés Bretaprins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.